Macron: ESB verður að breytast annars verður „Frexit“

For­seta­fram­bjóð­and­inn í Frakk­landi, Emmanuel Macron, segir að Evr­ópu­sam­bandið verði að breyt­ast.

Emmanuel Macron er annar frambjóðendanna sem komust í aðra umferð frönsku forsetakosninganna.
Emmanuel Macron er annar fram­bjóð­end­anna sem komust í aðra umferð frönsku for­seta­kosn­ing­anna. Mynd: EPA

Emmanuel Macron, sem er sig­ur­strang­leg­astur fyrir aðra umferð for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi um næstu helgi, segir að Evr­ópu­sam­bandið verði að breyt­ast, ann­ars muni koma til þess sem hann kallar Frexit, það er útgöngu Frakka úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Macron er hlynntur Evr­ópu­sam­band­inu og auknu sam­starfi Evr­ópu­þjóða í alþjóða­væddum heimi, en hann segir að það sé óhjá­kvæmi­legt að hlusta á frönsku þjóð­ina og taka til­lit til þeirra sjón­ar­miða sem frá henni koma. Evr­ópu­sam­bandið sé ekki galla­laust og það þurfi að breyt­ast til að fólk fái aftur trú á því að það sé mik­il­vægt og það rétta fyrir Evr­ópu­þjóðir.

[adspot]

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali við Macron hjá breska rík­is­út­varp­inu BBC.

Samkvæmt könn­unum sem BBC fjallar um mælist Macron nú með 60 pró­sent fylgi en þjóð­ern­is­sinn­inn Marine Le Pen með um 40 pró­sent. Búist er við því að næstu dagar verði afar líf­legir í frönsku kosn­inga­bar­átt­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár