„Heimurinn er ekki að farast en úrlausnarefnin eru samt mörg og stór“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son svarar gagn­rýni Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands en þau gerðu athuga­semdir við mál­flutn­ing hans á þing­inu í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Formaður Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, segir að heim­ur­inn sé ekki að far­ast en úrlausn­ar­efnin séu samt mörg og stór. Það eigi ekki hvað síst við um umhverf­is­málin. „Við hljótum að vilja nálg­ast vanda­málin með það að mark­miði að finna bestu lausn­irnar fremur en að nota þau sem efni­við sýnd­ar­stjórn­mála.“

[links]Þetta skrifar hann í stöðu­upp­færslu á Facebook eftir að Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands gagn­rýndu ræðu hans á Alþingi í gær. Þau sök­uðu hann um að fara með rang­færslur um lofts­lags­mál.

Segir hann í færslu sinni að heimsenda­spá­menn taki því jafnan illa þegar bent sé á að heim­ur­inn sé ekki að versna alveg eins mikið og þeir halda fram.

„Í umræðum á þing­inu í gær nefndi ég mik­il­vægi þess að taka á lofts­lags­málum af skyn­semi og á grund­velli vís­inda. Þegar lofts­lags­breyt­ingum er kennt um allar ófarir manna og ítrkað spáð yfir­vof­andi heimsendi er ekki lík­legt að gripið verði til réttra aðgerða til að takast á við vand­ann í raun,“ skrifar hann.

Sig­mundur Davíð seg­ist jafn­framt hafa bent á að tal um að hvirf­il­byljir væru orðnir miklu fleiri og stærri en áður væri ekki rétt. Aðstoð­ar­maður ráð­herra hefði þá látið boð út ganga um að það þyrfti að stöðva slíka umræðu í fæð­ingu.

„Í því augna­miði leyfðu menn sér að fara frjáls­lega með eins og stundum áður í þessum mála­flokki. Því var haldið fram að ég hefði verið að vitna í ein­hvern félags­skap í Bret­landi sem væri skip­aður ein­hvers konar ruglu­döllum. Þar af leið­andi væri þetta vit­leysa (þið sjáið hvað þetta er traust rök­semda­færsla).

Ég var hins vegar ekki að vitna í félags­skap­inn í Bret­landi sem ég hafði aldrei heyrt um heldur í Sam­ein­uðu þjóð­irnar og gögn þeirra,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár