Spilling í sjónvarpinu: Er þetta streð til einhvers?

Ítölsku sjón­varps­s­er­í­urnar 1992 og 1993 eru fyr­ir­mynd­ar­sjón­varp sem vekur ýmsar spurn­ingar um tengsl sjón­varps­ins og kannski afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins í heild við stjórn­mál og spill­ingu í sam­fé­lag­inu.

Ég hef verið að horfa und­an­farið á ítölsku sjón­varps­s­er­í­urnar 1992 og 1993. Þegar þeirri seinni lýkur þá þarf ég að leita uppi ein­hverja streym­isveitu sem sendir út þá þriðju sem nefn­ist – ótrú­legt nokk – 1994. Þarna er nefni­lega á ferð fyr­ir­mynd­ar­sjón­varp og vekur líka ýmsar spurn­ingar um tengsl sjón­varps­ins og kannski afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins í heild við stjórn­mál og spill­ingu í sam­fé­lag­inu.

Í örstuttu máli fjalla ser­í­urnar allar um miklar sam­fé­lags­bylt­ingar sem urðu (eða virt­ust verða) á Ítalíu snemma á síð­asta ára­tug 20. aldar. Ítalskt stjórn­mála­líf hafði ára­tugum saman verið í hálf­gerðri upp­lausn, spill­ing óð upp og allir vissu að stjórn­mála­flokk­arnir – ekki síst þeir stærstu, Kristi­legir demókratar og Sós­í­alistar – voru gegn­umétnir af spill­ing­unni.

„Hreinar hendur“

Hinn öfl­ugi Komm­ún­ista­flokkur Ítalíu var líka í tómu tjóni eftir upp­lausn Sov­ét­ríkj­anna. Popúl­ískar og fasískar hreyf­ingar óðu uppi og lokk­uðu til sín stuðn­ings­menn í ljósi þess að hinir hefð­bundnu stjórn­mála­flokkar væru …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár