Dómari í Aurum-máli hætti við að birta grein vegna fjaðrafoks „sem ekki væri á bætandi“

Guðjón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari dró grein sína um Aurum-málið, sem hann hafði sent Frétta­blað­inu til birt­ingar, til baka eftir að honum varð „ljóst að birt­ingin myndi valda miklu fjaðrafoki sem ekki væri á bæt­andi.“ Þetta varð honum ljóst eftir að hafa rætt við rík­is­sak­sókn­ara og sér­stakan sak­sókn­ara.

Grein Guðjóns, sem aldrei birt­ist, var lögð fram í Hæsta­rétti og 365 miðlar höfðu sagt frá henni í fréttum og leið­ara­skrifum. Hún fjall­aði um Aurum-málið og umræð­una sem spratt upp um van­hæfi með­dóm­ar­ans Sverris Ólafs­sonar.

Í gær ómerkti Hæsti­réttur nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í Aurum-mál­inu og vís­aði því aftur til hér­aðs­dóms. Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari hafði kraf­ist ómerk­ingar á grund­velli þess að einn með­dóm­ari máls­ins, Sverrir Ólafsson, hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Sverrir er bróðir Ólafs Ólafs­sonar sem hlaut þungan dóm fyrir aðild að Al-Thani mál­inu fyrir skömmu.

Hér má lesa Hæsta­rétt­ar­dóm­inn í heild sinni.

Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitnis, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í hér­aðs­dómi.

Eftir sýknu­dóm­inn var greint frá tengslum Sverris og Ólafs í fjöl­miðlum. Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, greindi þá frá því að honum hafi ekki verið kunn­ugt um tengslin og að ef hann hefði vitað um þau hefði hann lík­lega gert athuga­semdir við það. Í kjöl­farið tjáðu bæði Sverrir og Guðjón sig um málið, og þeir hafa sagt að Ólafur hafi víst vitað um tengslin milli bræðr­anna. Sverrir fór hörðum orðum um Ólaf, sagði meðal ann­ars að það bæri vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð ef sak­sókn­ari vissi ekki af tengslum bræðr­anna, en hann tryði ekki að svo væri. „Mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerðir og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í molum,“ sagði Sverrir meðal ann­ars við RÚV. Það var svo á grund­velli þessa sem málið var ómerkt í gær.

Ummælin hafi fallið eftir „ómaklega aðdróttun“ sérstaks saksóknara

Guðjón St. sendi rík­is­sak­sókn­ara og verj­endum ákærðu í mál­inu tölvu­póst þann 18. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann ræddi málið. „Ég varð bæði undr­andi og fannst að mér vegið með ummælum sér­staks sak­sókn­ara í fjöl­miðlum eftir upp­sögu dóms­ins. Af því til­efni sendi ég hinn 10. júní 2014 stutta grein til birt­ingar í dag­blaði. Mér þótti sann­gjarnt og eðli­legt að greina rík­is­sak­sókn­ara frá þessu og ræddi því við hana í síma sama dag auk þess að senda henni grein­ina. Sama dag ræddi ég sím­leiðis við sér­stakan sak­sókn­ara sem kann­að­ist ekki við að hafa rætt bræðra­tengslin í sím­tali okkar 13. mars 2014 þótt hann kann­að­ist við sím­talið og ýmis­legt sem þar var rætt. Eftir þetta ákvað ég að birta ekki grein­ina enda ljóst að birt­ingin myndi valda miklu fjaðrafoki sem ekki væri á bæt­andi.“

Guðjón segir í tölvu­póst­inum að á þessum tíma hafi hann hvorki séð fyrir né reiknað með að krafa ákæru­valds­ins við áfrýjun yrði krafa um ómerk­ingu máls­ins. „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo verið,“ segir í tölvu­póst­inum. Þá segir hann að Sverrir hafi látið ummælin falla í fjöl­miðlum „eftir ómak­lega aðdróttun sér­staks sak­sókn­ara í hans garð og raunar gegn mér einnig“.

Í dómi Hæsta­réttar er einnig vitnað í óbirtu blaða­grein­ina, þar sem Guðjón segir að Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, hafi hringt í hann og greint honum frá tengslum Sverris Ólafs­sonar og Ólafs Ólafs­sonar að fyrra bragði þann 13. mars 2014. „Lauk sam­tal­inu með því að sér­stakur sak­sókn­ari kvað ákæru­valdið ekki ætla að gera athuga­semd við hæfi með­dóms­manns­ins og var það ekki gert.“ Þetta hefur komið fram í mál­inu áður og hefur Ólafur Þór sagt að í umræddu sím­tali milli hans og Guðjóns hafi hann rætt um það að Sverrir hafi unnið fyrir slita­stjórn Glitnis. Þetta kemur einnig fram í dómnum, þar sem vitnað er til tölvu­pósts sem Ólafur Þór sendi til rík­is­sak­sókn­ara þann 18. febr­úar. „Enn og aftur skyld­leika­tengsl með­dóm­ar­ans við C [Ólaf Ólafsson, inn­skot blaða­manns] voru ekki rædd í því sím­tali enda hefði ákæru­valdið þá klár­lega gert athuga­semd við þá skipan dóms­ins,“ segir í tölvu­póst­inum.

[caption id="attachment_8229" align="alignnone" width="640"] Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Lárus Welding, í aft­ari röð, í hér­aðs­dómi.[/caption]

Snýst um sex milljarða króna lán til eignalauss félags

Málið snýst um sex millj­arða króna lán­veit­ingu til félags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna kaup FS38, eign­ar­laust félag í eigu Pálma Har­alds­sonar, á 25,7 pró­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Holding Limited. Hluti láns­ins, einn millj­arður króna, var ráð­stafað inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­arð síðan í að borga meðal ann­ars 705 millj­óna króna yfir­drátt­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Sér­stakur sak­sókn­ari vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­ar­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Welding þegar málið var flutt í hér­aði og fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magnúsi Arnari og Bjarna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár