Stuðningur við ríkisstjórnina ekki mælst meiri frá því í janúar 2018

Fylgi Vinstri grænna eykst milli mán­aða en fylgi Fram­sóknar dalar og er nú aftur komið í kjör­fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með minna fylgi en hann fékk í kosn­ing­unum.

Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson búast öll við því að endurnýja stjórnarsamstarf flokka sinna í þessari viku, eða þeirri næstu.
Katrín Jak­obs­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son búast öll við því að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starf flokka sinna í þess­ari viku, eða þeirri næstu. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 53,6 pró­sent í nýrri könnun MMR sem er tæp­lega pró­sentu­stigi meira en í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem var gerð í lok októ­ber og en 0,7 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir þrír fengu í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Á milli mán­aða lækkar fylgi Fram­sókn­ar­flokks úr 19,2 í 17,5 pró­sent en er samt rétt yfir því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, þar sem hann vann kosn­inga­sigur.

Vinstri græn bæta við sig 2,4 pró­sentu­stigum milli mán­aða og alls 13,9 pró­sent segj­ast nú styðja flokk­inn, sem er 1,3 pró­sentu­stigi meira en í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með minna fylgi nú en hann fékk upp úr kjör­köss­unum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en 22,2 pró­sent segja að þeir myndu kjósa hann nú, sem er 2,4 pró­sentu­stigum minna en gerðu það í síð­ustu kosn­ingum. Þetta er annar mán­uð­ur­inn í röð sem fylgi flokks­ins mælist nán­ast það sama.

[adspot]Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 60 pró­sent og hefur ekki mælst meiri frá því í jan­úar 2018, nokkrum vikum eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók fyrst við völdum.

Stjórnarandstaðan ekki að hressast mikið

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á þingi mælist 41,9 pró­sent. Stærstir mæl­ast Píratar með 12,4 pró­sent fylgi, sem er 3,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum og aðeins meira en hann mæld­ist með í lok októ­ber.

Sam­fylk­ingin hress­ist aðeins á milli kann­ana og er með 11,1 pró­sent fylgi, sem er um 1,2 pró­sentu­stigi meira en hún fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Viðreisn virð­ist nokkuð stöðug í kjör­fylgi, sem var 8,3 pró­sent. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur fylgi flokks­ins mælst nákvæm­lega átta pró­sent.

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar á þingi mæl­ast nú með mæl­an­lega minna fylgi en þeir fengu í sept­em­ber. Alls segj­ast 4,2 pró­sent styðja Mið­flokk­inn, sem fékk 5,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum, og 6,2 pró­sent styðja Flokk fólks­ins, sem fékk 8,8 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem fékk 4,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum og náði ekki inn manni, mælist nú með 3,7 pró­sent fylgi og 0,8 pró­sent kjós­enda myndu kjósa eitt­hvað annað en ofan­greinda níu flokka ef kosið yrði í dag.

Könnunin var fram­kvæmd 10. - 15. nóv­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 918 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár