Endurskoðun þjónustusamnings RÚV á lokametrunum

End­ur­skoðun þjón­ustu­samn­ings mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins við RÚV er á loka­metr­unum. Þetta stað­festa upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins og aðstoð­ar­maður mennta­mála­ráð­herra. Ekki verða gerðar miklar breyt­ingar, segir upp­lýs­inga­full­trú­inn.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið er nú að leggja loka­hönd á end­ur­skoðun þjón­ustu­samn­ings ráðu­neyt­is­ins við RÚV.

„Þessu verður lík­lega lokið í þess­ari viku eða næstu,” segir Þorgeir Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, í sam­tali við Kjarnann. „Strangt til tekið hefði átt að gera þessa vinnu 2013, en það var ekki talin nein sér­stök þörf á því.”

Að sögn Þorgeirs verða ekki miklar breyt­ingar gerðar á samn­ingnum.

„Lögin eru svo afger­andi að það er lítið hægt að gera. Þau gefa ekki mikið svig­rúm til breyt­inga,” segir hann. „Þetta snýst mest megnis um fjár­málin og þess háttar. En það verður spenn­andi að sjá hver nið­ur­staðan verður. Nú er ekk­ert annað að gera en að hinkra nokkra daga og sjá hverju fram vindur.”

Sigríður Hall­grmís­dóttir, aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra, tekur undir með Þorgeiri að samn­ings­gerð sé á loka­metr­unum. Hún getur ekki tjáð sig um efn­is­at­riði samn­ings­ins.

Miklar umræður fóru af stað um RÚV í lok síð­asta árs þegar frum­varp Illuga um end­ur­skoðun á lækkun útvarps­gjalds fékk ekki stuðn­ing rík­is­stjórn­ar­innar. Magnús Geir Þórð­ars­son útvarps­stjóri sagði að ef útvarps­gjaldið lækki drag­ist tekjur RÚV saman um 500 millj­ónir króna á þessu ári. Þá geti stofn­unin ekki upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing sinn við ríkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár