Árni Páll: Langtímaleigusalar fái skattaafslátt

Sam­fylk­ingin vill að ríkið stuðli að auknu fram­boði á mark­aði leigu­hús­næðis með því að veita skatta­af­slátt til ein­stak­linga vegna útleigu einnar íbúðar til að lág­marki 12 mán­aða. Þetta segir Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. „Slík aðgerð gæti aukið fram­boð leigu­hús­næðis gríð­ar­lega. Um 4.000 íbúðir eru í leigu til ferða­manna í gegnum vef­síð­una Airbnb. Ef ein­ungis hluti þeirra færi í lang­tíma­leigu yrði stórum áfanga náð. Aðrir sem ekki eru að leigja út í dag, gætu séð sér leik á borði, ef þessi laga­breyt­ing yrði að veru­leika,“ segir Árni Páll.

Í grein­inni fjallar Árni Páll um ástandið á leigu­mark­aði í dag og segir það alvar­legt. Enginn fái íbúð á boð­legum kjörum og litlar íbúðir á besta stað séu ill­fá­an­legar og dýrar. Mik­il­væg­ast sé að fjölga íbúðum en auk þess leggur Árni Páll til að leigusalar fái skatta­af­slátt ef þeir leigja íbúð­ina til langs tíma.

„Ásókn ferða­manna í skamm­tíma­leigu veldur skorti á íbúðum á almennum leigu­mark­aði. Fyrir því finna náms­menn og aðrir sem þurfa á leigu­hús­næði að halda. Tekjur af leigu til ferða­manna eru enda miklu meiri en af leigu á almennum mark­aði.

En á sama tíma er líka fólk sem á íbúðir eða laus her­bergi sem það er ekki til­búið að leigja til lengri tíma, vegna þess að lítið fæst upp úr því.“

Stofna samtök um skammtímaleigu á heimilum


Eins og Kjarninn hefur fjallað um þá er víðar deilt um áhrif skamm­tíma­húsa­leigu til ferða­manna á almennt leigu­verð. Í San Francisco vilja yfir­völd setja þak á fjölda gistin­átta sem leigja má í gegnum Airbnb og aðrar leigu­síður. Sam­bæri­legar hug­myndir hafa verið ræddar á Alþingi.

Margir eiga hags­muna að gæta. Nærri tvö þús­und íbúðir í Reykja­vík eru til leigu í gegnum Airbnb og um fjögur þús­und á land­inu öllu. Leigusalar eru því margir.

Í gær var fjöl­miðlum send til­kynn­ing um stofnun sam­taka um skamm­tíma­leigu á heim­ilum. Enginn er skrif­aður fyrir til­kynn­ing­unni en í henni segir að stofn­fundur verði hald­inn í höf­uð­stöðvum Startup Reykja­vík sunnu­dag­inn 30. ágúst. „Markmið sam­tak­anna er að vinna að sam­eig­in­legum hags­muna­málum þeira sem bjóða upp á skamm­tíma­leigu á heim­ilum, íbúðum og/eða frí­stund­ar­heim­ilum á Íslandi,“ segir í til­kynn­ing­unni. Samtökin ætla að ná settum mark­miðum meðal ann­ars því að „stuðla að því að skamm­tíma­leiga verði við­ur­kenndur val­mögu­leiki fyrir ferða­menn á Íslandi“ og „beita sér fyrir því að lög­gjöf um skamm­tímagist­ingu á heim­ilum, íbúðum og eða frí­stund­ar­heim­ilum á Íslandi geri ein­stak­lingum kleift að bjóða upp á þessa teg­und með ein­földum hætti“ auk þess sem sam­tökin hyggj­ast „vinna með yfir­völdum til að auka gagn­sæi á mark­aði“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár