Þórólfur: Aðgerðir miða ekki endilega að því að halda Íslandi veirufríu

Sótt­varna­læknir segir að hóp­sýk­ing hér á landi sýni að sýk­ing­ar­varnir hafi brugð­ist. „Það verður ekki útbreiðsla á veiru­sýk­ingum ef við gætum að okkar ein­stak­lings­bundnu sýk­inga­vörnum. Það er ljóst að veru­lega hefur verið slakað á í þeim efnum.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að lík­lega hefði verið hægt að koma í veg fyrir aðra af tveimur stórum hóp­sýk­ingum sem nú hafa komið upp hér á landi. Í hinni stóru sýk­ing­unni er hins vegar ekki enn búið að kom­ast að upp­runa hennar sem er áhyggju­efni að hans mati. Hann sagði óhætt að segja að „þessi aukn­ing sem sést hefur hér á landi er ákveðin von­brigði en þetta var ekki óvið­búið. Við höfum oft talað um að far­ald­ur­inn er í sókn í heim­inum og hefur verið að ná sér á strik í mörgum löndum og að við­búið að hingað kæmu inn smit“.

Frá 15. júní hafa um 95 þús­und manns komið til lands­ins og sýni verið tekin frá um 62 þús­und. Alls hafa 25 greinst með virkt smit í landamæra­skimun en tæp­lega 100 með gam­alt. Af þeim 25 sem greinst hafa með smit við kom­una til lands­ins eru tíu búsettir á Íslandi. En hinir koma frá löndum sem flokk­ast sem áhættu­svæði fyrir utan tvo sem komu frá Danmörku. Þórólfur sagði rétt að árétta að mjög fá smit hefðu orðið út frá þeim sem greinst hafa á landa­mærum.

[adspot]

Ellefu greindust með inn­an­lands­smit í gær. Enn er beðið eftir rað­grein­ingu og smitrakn­ingu til að kanna upp­runa. Frá 15. júní hafa 50 ein­stak­lingar greinst með inn­an­lands­smit. „Það er athygl­is­vert að flest inn­an­lands­smitin til­heyra tveimur stofnum af veirunni sem náð hafa að dreifa sér,“ sagði Þórólfur.

[links]Líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir smit sem olli öðru hópsmit­inu ef sá sem kom með veiruna til lands­ins hefði farið í sýna­töku tvö eins og reglur í dag gera ráð fyrir. Í hinu til­vik­inu hefur ekki tek­ist að rekja upp­runa smits­ins. Flest smit hér inn­an­lands tengj­ast þess­ari hóp­sýk­ingu. „Tengsl á milli ein­stak­ling­anna eru ekki ljós og leiðir það líkum að því að útbreiðsla gæti verið meiri en við vitum um,“ sagði Þórólfur.

Síðustu mán­uði hefur Þórólfur bent á að búast mætti við litlum hóp­sýk­ingum þrátt fyrir víð­tækar ráð­staf­anir. Sú hefur nú orðið raunin. „Ég tel nú eins og áður að til lengri tíma er nán­ast von­laust að koma í veg fyrir það algjör­lega að veiran ber­ist hingað til lands. Við þurfum að vera undir það búin.“

Landamæraskimun hefur skilað árangri

Þórólfur velti svo upp þeirri spurn­ingu hvort að hægt hefði verið að koma í veg fyrir þær hóp­sýk­ingar sem nú eru hér á landi. Hann sagði landamæra­skimanir hafa skilað árangri – á því væri eng­inn vafi. Ef þeir 25 ein­stak­lingar sem hafa greinst í skimun hefðu komið inn í landið án allra tak­markanna væri rétt hægt að ímynda sér hvers konar far­aldur hefði getað komið upp.

Þórólfur sagði að nokkrir af þessum 25 hefðu að lík­indum greinst í sýna­töku 2. „Við erum að nýta reynslu og upp­lýs­ingar sem við fáum til að skerpa á aðgerðum til að lág­marka áhætt­una á því að veiran komi hingað.“

Varðandi inn­lendu hóp­sýk­ing­arnar þá sagð­ist Þórólfur halda að aðra hóp­sýk­ing­una hefði verið hægt að koma í veg fyrir ef við­kom­andi hefði farið í sýna­töku tvö.

„Hin hóp­sýk­ingin er stærri og víð­tæk­ari,“ benti Þórólfur á. „Þar hefur ekki tek­ist að rekja upp­runann og er það ákveðið áhyggju­efni. Ljóst að veiran hefur komið hingað á ein­hvern máta og spurn­ing hvort við munum nokkrum tím­ann kom­ast að því.“

Íþyngandi aðgerðir en nauðsynlegar

Svo sagði Þórólfur: „Í þess­ari hóp­sýk­ingu hafa sýk­ing­ar­varnir inn­an­lands brugð­ist að ákveðnum marki. Það verður ekki útbreiðsla á veiru­sýk­ingum ef við gætum að okkar ein­stak­lings­bundnu sýk­inga­vörnum. Það er ljóst að veru­lega hefur verið slakað á í þeim efnum af okkur öllum.“

Sótt­varna­læknir sagð­ist gera sér grein fyrir því að aðgerð­irnar núna væru íþyngj­andi fyrir marga. En að þær væru nauð­syn­legar, „til að forða okkur frá útbreiddum far­aldri og alvar­legum afleið­ingum hans.“

Hann benti svo á að það tæki 1-2 vikur að sjá árangur af þeim aðgerðum sem nú eru í gildi. „Það er ljóst að ef við sjáum ekki árangur af þessum aðgerðum þurfum við að vera til­búin að grípa til harð­ari aðgerða.“

Baráttan við far­ald­ur­inn mun að sögn Þórólfs halda áfram. „Aðgerðir okkar í dag eru ekki að miða að því endi­lega að halda Íslandi veiru­fríu heldur að lág­marka dreif­ingu og áhættu sem af veirunni stafar. Þar eru ein­stak­lings­bundnu sýk­inga­varn­irnar mik­il­vægastar.“

Skoðun Þórólfs á grímum ekki breyst

Hvað notkun gríma varðar sagði hann það enn sína skoðun að almenn notkun gríma myndi senni­lega ekki skila miklu og gefa jafn­vel falska örygg­is­kennd. „Þetta hefur ekki breyst í mínum huga.“

Hins vegar hafi leið­bein­ingar frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) breyst og rann­sóknir sýnt að við vissar aðstæður, þar sem ekki er hægt að við­halda fjar­lægð­ar­mörkum milli fólks, geti þær gert gagn. „Og það er akkúrat það sem við erum að nýta okkur“.

Sótt­varna­læknir minnti að lokum á að sam­staða hefði ein­kennt allar aðgerðir sem gripið hefði verið til hér á landi til þessa. „Við höfum sýnt það fram að þessu og við getum gert það áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár