LSR tekur ekki þátt í að sækja skaðabætur gegn Kaupþingsmönnum

Stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins vildi ekki fram­selja hlut sinn í Kaup­þingi til Samtaka spari­fjár­eig­enda svo þau gætu rekið próf­mál. Stefna sam­tak­anna bein­ist að for­svars­mönnum Kaup­þings og í henni er farið fram á skaða­bætur vegna mark­aðs­mis­notk­unar þeirra

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, hafn­aði því að fram­selja hluti sem hann átti í Kaup­þingi fyrir hrun, og kröfu­rétt­indi sem þeim fylgdu, til Samtaka spari­fjár­eig­enda vegna máls sem þau hafa höfðað gegn fimm fyrrum stjórn­endum og eig­endum Kaup­þings. Samtökin stefndu Kaup­þings­mönn­unum þann 9. febr­úar síð­ast­lið­inn í próf­máli þar sem úr því á að fá skorist hvort fyrrum hlut­hafar Kaup­þings eigi rétt á skaða­bótum vegna mark­aðs­mis­notk­unar og blekk­inga bank­ans, sem for­svars­menn­irnir hafa verið dæmdir sekir fyrir.

Til þess að geta rekið próf­málið þurftu Samtök spari­fjár­eig­enda að fá fram­seld hluta­bréf og kröfu­rétt­indi í Kaup­þingi, enda áttu þau engin slík. Þau leit­uðu því til líf­eyr­is­sjóða lands­ins sem átt höfðu hlut í Kaup­þingi og buðu föl­uð­ust eftir kröf­unni. Í því bréfi kom fram að sam­tökin myndu bera kostn­að­inn af mála­rekstr­inum en að sjóð­irnir myndu fá ávinn­ing­inn ef málið myndi vinn­ast. Einn líf­eyr­is­sjóður ákvað að fram­selja kröfu sína með þessum hætti, Stapi líf­eyr­is­sjóður. Stefnan byggir því að end­ur­heimta mis­mun kaup­verðs Staða á bréfum í Kaup­þingi ann­ars vegar og hins vegar sölu­verð og arð af bréf­unum síð­asta árið áður en bank­inn féll. Sú upp­hæð nemur 902 millj­ónum króna.

LSR, sem var á meðal 20 stærsta eig­enda Kaupþing fyrir hrun og átti eign í bank­anum sem var metin á 17,3 millj­arða króna við hrun, vildi hins vegar ekki taka þátt.

Hægt er að lesa stefn­una í heild sinni hér.

Fengu álitsgerð lögfræðings

Haukur Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri LSR, stað­festir að sjóð­ur­inn hafi hafnað því að fram­selja kröfu sína til Samtaka spari­fjár­eig­enda þegar þau ósk­uðu eftir því. „Nið­ur­staða okkar var sú að verða ekki við beiðni þeirra. Við fengum meðal ann­ars álits­gerð frá utan­að­kom­andi lög­fræð­ingi og tókum ákvörðun út frá henni.“

Hann vill ekki segja af hverju líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi ákveðið að taka ekki þátt í mála­rekstr­inum. „Það eru ein­hverjir líf­eyr­is­sjóðir og ein­stak­lingar í mála­rekstri. Það er ekki eðli­legt að við séum að tjá okkur um þessa ákvörðun á meðan að svo er.“

Stefna Samtaka spari­fjár­eig­enda gengur út á að stjórn­end­urnir fimm sem stefnt er, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, Sigurður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans, Ingólfur Helgason, fyrrum for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, Magnús Guð­munds­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem var næst stærsti eig­andi bank­ans, hafi við­haldið of háu mark­aðs­verði á hlutum í Kaup­þingi með allskyns gjörðum.

Í stefn­unni segir m.a. að þetta hafi verið gert með end­ur­fjár­mögnun á skuldum Ólafs Ólafs­sonar til að koma í veg fyrir að eign­ar­hlutur hans færi á markað, með Al Thani-snún­ingnum, þar sem sjeik frá Katar var lánað til að kaupa 5,01 pró­sent hlut í Kaup­þingi með veði í bréf­unum en látið var líta út sem að um fjár­fest­ingu væri að ræða, með því að lána fyrir kaupum á hlut Gnúps í Kaup­þingi þegar það félag fór á hlið­ina án ann­arra veða en í bréf­unum sjálfum og með því að lána tugi millj­arða króna til starfs­manna Kaup­þings svo þeir gætu keypt bréf í bank­anum, en þau lán voru upp­runa­lega með tak­mark­aðri, og svo engri, per­sónu­legri ábyrgð. Rauði þráð­ur­inn er sá að Kaupþing hafi lánað gríð­ar­legar fjár­hæðir til kaupa á eigin bréfum til að halda verði þeirra uppi og ein­ungis tekið veð í bréf­unum sjálfum.

Í stefn­unni segir: „Veð Kaup­þings í eigin hluta­bréfum námu að jafn­aði verð­mæti milli 200 til 300 millj­arða. Þrátt fyrir lækk­andi hluta­bréfa­verð bank­ans árið 2007 hélst mark­aðsvirði á eigin bréfum nán­ast stöðugt síð­asta árið fram að falli bank­ans. Er skýr­ingin skv. Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis að verð­mæti Kaup­þings í eigin bréfum hafi í lok sept­em­ber 2008 numið alls um 214 millj­örðum króna eða sem nam 42% af öllum hluta­bréfum bank­ans. Sem dæmi má nefnda að síð­asta árið fyrir fall bank­ans keypti bank­inn hluta­bréf í sjálfum sér fyrir 96 millj­arða króna.“

Segja bankanum hafa verið skuggastýrt um árabil

Hér­aðs­dómur hefur dæmt hluta þeirra manna sem stefnt er í mál­inu seka fyrir stór­fellda mark­aðs­mis­notkun sem staðið hafi yfir um langt skeið. Sú nið­ur­staða bíður þess að vera tekin fyrir af Hæsta­rétti. Auk þess voru allir stefndu utan Ingólfs dæmdir til margra ára fang­els­is­vistar fyrir umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða.

Á grunni þess­arra nið­ur­staðna stefndu Samtök spari­fjár­eig­enda mönn­unum. „Að mati stefn­anda er ljóst af téðum saka­málum á hendur stefndu, sem voru gríð­ar­lega stórir hlut­hafar í Kaup­þingi, hafi haft ríkan og ein­beittan ásetn­ing til þess að koma í veg fyrir að mikið magn af hluta­bréfum í bank­anum fær til sölu á almennan verð­bréfa­markað. Hafi þeir m.a. beit bank­anum fyrir sig til að koma í veg fyrir að mikið fram­boð af hluta­bréfum bank­ans færi á markað með til­heyr­andi verð­lækkun bréf­anna. Hafi þeir þannig tryggt óeðli­legt verð á hluta­bréfum í bank­anum.“

Eigin hlutir, sem Kaupþing keypti eða fjár­magn­aði, hafi ekki verið dregnir frá eigin fé bank­ans eins og lög­skylt hafi verið. Ef gætt hefði verið að þess­ari laga­skyldu hefði eigið fé Kaup­þings verið mun lægra skráð en það var, og jafn­vel undir lög­bundnu mark­miði. Ef gætt hefði verið að þess­ari laga­skyldu hefði eigið fé Kaup­þings verið mun lægra skráð en það var, og jafn­vel undir lög­bundnu mark­miði. „Það hefði mögu­lega þýtt svipt­ingu starfs­leyfis og afskrán­ingar strax árið 2006“.

Í stefn­unni segir enn fremur að Hreiðar Már, Sigurður og Ingólfur hafi borið ríkar trún­aðar- og eft­ir­lits­skyldur sem stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjórar bank­ans. „Í því fólst ábyrgð og eft­ir­lit með því að starf­semi bank­ans færi í hví­vetna að lögum. Stefndu Hreiðar Már og Sigurður voru auk þess í lána­nefnd bank­ans, en þar gegndi Sigurður for­mennsku, og báru þeir einnig ríka ábyrgð sem slíkir þegar kom að lán­veit­ingum út á eigin bréf félags­ins. Stefndi Ólafur var næst stærsti hlut­hafi bank­ans frá önd­verðu og skugga­stýrði honum í eigin þágu um ára­bil.“

Al Thani-viðskiptin efldu tiltrú

Leitað var sér­stak­lega til LSR vegna þess að sjóð­ur­inn átti við­skipti með bréf í Kaup­þingi eftir að til­kynnt var um hin svoköll­uðu Al Thani-við­skipti hinn 22. sept­em­ber 2008. Kaup Al Thani voru talin hafa eflt til­trú á íslensku efna­hags­lífi, enda áttu þau að sýna að auð­ugir og umsvifa­miklir erlendir fjár­festar hefðu trú á því að íslenskur banki myndi lifa af efna­hag­sóværð­ina sem geis­aði haustið 2008. Nokkrum dögum síðar var Kaupþing hins vegar fall­inn.

Haukur segir að LSR hafi í nokkra mán­uði, í aðdrag­anda hruns bank­anna, verið „á sölu­takk­anum“ þegar kom að bréfum í þeim. „Nokkrum dögum eftir Al Thani-við­skiptin seljum við smá­vegis og aftur um viku síðar. Svo eru ein við­skipti þar sem við keyptum sem áttu sér stað eilítið seinna. Þá voru við að færa eign milli félaga enda vorum við, eins og aðrir, að velta því fyrir okkur hverjir myndu lifa af og hverjir ekki.“

Ríkið ætlar ekki í skaðabótamál vegna Al Thani-dóms

Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar að íslenska ríkið ætl­aði sér ekki að höfða skaða­bóta­mál á hendur slita­búi Kaup­þings vegna þess tjóns sem ríkið varð fyrir í tengslum við fall Kaup­þings. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í kjöl­far dóms Hæsta­réttar í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða fyrir tæpu ári fyrr að hann vildi skoða hvort ríkið ætti mögu­lega bóta­kröfu vegna þessa. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið sagði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hins vegar að það hafi metið málið sem svo að ekki væru for­sendur fyrir höfðun skaða­bóta­máls á hendur þrota­búi Kaup­þings vegna máls­ins þar sem skaða­bætur væru almennar kröfur og lúti van­lýs­ing­ar­á­hrifum.

Samtök spari­fjár­eig­enda líta hins vegar svo á, og reka þar af leið­andi ofan­greint próf­mál fyrir hér­aðs­dómi, að hægt sé að sækja slíkar skaða­bætur beint til for­svars­manna Kaup­þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár