Theresa May langefst í fyrstu umferð formannskjörs í Íhaldsflokknum

Theresa May fyrir utan Downing-stræti 10.
Theresa May fyrir utan Downing-stræti 10. Mynd: EPA

Inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, Theresa May, fékk miklu fleiri atkvæði en allir aðrir fram­bjóð­endur til for­mennsku í breska Íhalds­flokknum í fyrstu umferð for­manns­kjörs­ins. May hlaut stuðn­ing 165 þing­manna flokks­ins, en næst á eftir henni var Andrea Leadsom, sem hlaut stuðn­ing 66 þing­manna.

Þriðji í kjör­inu var Michael Gove, sem hlaut 48 atkvæði, og þar á eftir Stephen Crabb, sem fékk 34. Liam Fox rak lest­ina með 16 atkvæði, og það þýðir að hann dettur út úr kjör­inu sjálf­krafa. Stephen Crabb til­kynnti svo nú í kvöld að hann myndi líka draga sig út úr kjör­inu. Hann sagð­ist af öllu hjarta styðja Theresu May til for­manns.

Önnur umferð for­manns­kjörs­ins hefst á fimmtu­dag. Ef þörf krefur verður svo kosið milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna næsta þriðju­dag, og þá munu gras­rót­ar­með­limir í flokknum geta kosið.

May sagð­ist vera ánægð og þakk­lát fyrir stuðn­ing­inn sem hún hlaut í fyrstu umferð­inni, en nán­ast algjör­lega tryggt er að hún verður annar þeirra fram­bjóð­enda sem kosið gæti verið um á þriðju­dag. „Það er mikið verk fyrir höndum hjá okkur, að sam­eina flokk­inn okkar og landið, að semja um besta mögu­lega samn­ing nú þegar við yfir­gefum ESB og að gera Bretland að landi fyrir alla.“

Úrslitin eru hins vegar áfall fyrir Michael Gove dóms­mála­ráð­herra sem brá fæti fyrir félaga sinn og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, Boris Johnson, þegar hann til­kynnti í síð­ustu viku að hann hygð­ist sjálfur sækj­ast eftir for­mennsku í flokknum. Fram að því hafði verið talið að Johnson færi fram og Gove yrði hans hægri hönd, mögu­lega sem fjár­mála- eða utan­rík­is­ráð­herra. Þeir voru báðir mjög áber­andi í bar­átt­unni fyrir því að Bretland yfir­gæfi Evr­ópu­sam­bandið.

Ákvörðun Gove hefur verið sögð stunga í bak Johnson, og atburða­rásinni líkt við House of Cards eða aðrar dramat­ískar sjón­varps­þátt­araðir.

Boris Johnson lýsti í gær form­lega yfir stuðn­ingi við Andreu Leadsom, og sagði hana hafa allt sem til þyrfti til að leiða Bretland. Talið er að stuðn­ingur hans hafi hjálpað henni mikið og fylkt stuðn­ings­mönnum þess að yfir­gefa ESB að baki henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár