Mynd: EPA

Tengsl á milli fjárframlaga til alþjóðastofnana og ráðninga Íslendinga

Fjár­fram­lög íslenskra stjórn­valda til alþjóða­stofn­ana og verk­efna á þeirra vegum hafa auk­ist eftir að Íslend­ingar hófu þar störf. Utan­rík­is­ráðu­neytið segir aukin fram­lög til alþjóð­legrar þró­un­ar­sam­vinnu skýra aukn­ingu fjár­fram­laga.

Dæmi eru um að fjár­fram­lög íslenskra stjórn­valda til alþjóð­legra stofn­ana auk­ist þegar Íslend­ingar, nánar til­tekið fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn, hefja störf hjá við­kom­andi stofnun. Kjarninn greindi frá því í byrjun apríl að íslensk stjórn­völd hafi ákveðið að styðja skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD) með beinu fjár­fram­lagi í fyrsta sinn. Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hóf nýverið störf hjá stofn­unni sem sér­stakur ráð­gjafi fram­kvæmda­stjóra.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði að fjár­veit­ingin teng­ist ekki starfs­manna­haldi skrif­stof­unnar. Hvað sem því líður er þetta í fyrsta sinn sem Ísland styður stofn­un­ina með beinu fjár­fram­lagi. Samn­ing­ur­inn felst í óskil­yrtu kjarna­fram­lagi til þriggja ára, alls rúm­lega 77 millj­ónum eða 25,8 millj­ónum til þriggja ára, 2021-2023.

Kjarninn óskaði í kjöl­farið eftir upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um störf fyrr­ver­andi stjórn­mála­manna og aðstoð­ar­manna ráð­herra hjá alþjóða­stofn­unum og fjár­fram­lögum hins opin­berra til við­eig­andi stofn­ana.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ráðu­neytið heldur ekki skrár yfir íslenska rík­is­borg­ara sem ráð­ast til starfa hjá alþjóða­stofn­unum. Ef farið er yfir fjár­fram­lög til stofn­ana þar sem Íslend­ingar hafa starfað má hins vegar finna dæmi um hækkun á fjár­fram­lagi til stofn­un­ar­innar í kjöl­far þess að íslenskur rík­is­borg­ari hefur störf..

Fjárframlög til FAO tóku stökk við ráðningu fyrrverandi fjármálaráðherra

Árni M. Mathiesen, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Geirs H. Haarde 2005-2009 , sagði skilið við stjórn­málin eftir banka­hrunið.

Í nóv­em­ber 2010 var hann ráð­inn aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá Matvæla- og land­bún­að­ar­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, FAO. Íslensk stjórn­völd studdu umsókn Árna. FAO sinnir meðal ann­ars reglu­bundnu starfi hvað varðar aðgerðir til að bæta stjórn fisk­veiða og þróun sjáv­ar­út­vegs á heims­vísu. Í nóv­em­ber 2019 fól Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­gegs­ráð­herra, fisk­veiðisviði FAO, sem Árni stýrði, að gera úttekt á viðslipta­háttum útgerða í þró­un­ar­löndum. Úttektin var hluti af aðgerðum stjórn­valda til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins.

Kjarna­fram­lög íslenskra stjórn­valda til FAO frá 2009 nema 279,5 millj­ónum króna. 2009, ári áður en Árni hóf störf hjá FAO, var árlegt fram­lag til stofn­un­ar­innar tæpar 10,4 millj­ónir. Ári seinna var fram­lagið 9,1 milljón. Árni hóf störf hjá FAO í lok árs 2010. Árið eftir, 2011, námu fjár­fram­lögin 21,9 millj­ónum.

Næstu ár á eftir héldu fram­lögin áfram að hækka og náðu hámarki 2016 þegar íslensk stjórn­völd greiddu 41,4 millj­ónir til FAO. Eftir það tóku þau að lækka á ný og voru á bil­inu 11,9 til 17,9 millj­ónir til árs­ins 2021. Árni lét af störfum hjá stofn­un­inni í árs­byrjun 2021 eftir rúm­lega tíu ára starf. .

Verkefni sem Hanna Birna fór fyrir hjá UN Women styrkt sérstaklega

Einnig eru dæmi um að verk­efni sem íslenskir stjórn­mála­menn hafa verið í for­svari fyrir hafi verið styrkt sér­stak­lega. Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber 2019 að verk­efni sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vann að hjá UN Women var styrkt af íslenskum stjórn­völdum.

Hanna Birna var ráðin sem tíma­bund­inn ráð­gjafi á aðal­­­skrif­­stofu UN Women í New York í byrjun árs 2019. UN Women er stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um kynja­jafn­rétti og vald­efl­ingu kvenna. Hún er jafn­framt ein af áherslu­stofn­unum Íslands á sviði þró­un­ar­sam­vinnu og sam­kvæmt ramma­samn­ingi við UN Women greiðir Ísland almenn fram­lög til stofn­un­ar­inn­ar, sem og fram­lög til ein­stakra verk­efna.

Hanna Birna var meðal ann­ars ráðin til að vinna að verk­efn­inu Women's Political Empowerment and Leaders­hip en það er eitt þeirra verk­efna sem íslensk stjórn­völd ákváðu að styrkja árið 2018. Verk­efnið lýtur að póli­tískri vald­efl­ingu kvenna og leið­toga­hæfni víða um heim.

Heild­ar­stuðn­ingur Íslands til stofn­un­ar­innar frá árinu 2017 til dags­ins í dag nema tæpum 1,3 millj­örðum króna, eða um 216 millj­ónum árlega. Þar af voru kjarna­fram­lög tæpar 664 millj­ónir króna og fram­lög til sér­stakra verk­efna tæpar 539 millj­ónir króna. Árið 2019 var fram­lagið 234 millj­ónir króna, þar af voru 69,9 millj­ónum varið til Women's Polit­ical Empowerment and Leaders­hip, verk­efn­is­ins sem Hanna Birna var ráðin til.

Aukin framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu skýri aukin framlög til alþjóðastofnana

Framlög Íslands til alþjóða­stofn­ana hafa auk­ist umtals­vert á umliðnum árum.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að sú þróun hald­ist meðal ann­ars í hendur við aukin fram­lög til alþjóð­legrar þró­un­ar­sam­vinnu. Árið 2020 nam fram­lag Íslands 0,26 pró­sent af vergum þjóð­ar­tekjum en á þessu ári er gert ráð fyrir að hlut­fallið verði hærra, alls 0,35 pró­sent.

Framlög Íslands til nokkurra alþjóðastofnana, meðal annars áherslustofnana Íslands á sviði mannúðar og þróunarsamvinnu, aukist jafnt og þétt undanfarinn áratug
Framlög Íslands til nokk­urra alþjóða­stofn­ana, meðal ann­ars áherslu­stofn­ana Íslands á sviði mann­úðar og þró­un­ar­sam­vinnu, auk­ist jafnt og þétt und­an­far­inn ára­tug

Þannig hafa fram­lög Íslands til nokk­urra alþjóða­stofn­ana, meðal ann­ars áherslu­stofn­ana Íslands á sviði mann­úðar og þró­un­ar­sam­vinnu, auk­ist jafnt og þétt und­an­far­inn ára­tug. Meðal áherslu­stofn­ana eru þró­un­ar­á­ætlun SÞ (UNDP), sam­ræm­ing­ar­skrif­stofa SÞ í manníð­ar­málum (OCHA), mann­fjölda­sjóður SÞ þjóð­anna (UNFPA), Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðin (UNRWA), mat­væla­á­ætlun SÞ, auk FAO og UN Women.

Skýr stefna stjórnvalda að fjölga íslensku starfsfólki hjá alþjóðastofnunum

Þá kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins að unnið hafi verið mark­visst að því að fjölga íslenskum íslenskum sér­fræð­ingum og stjórn­endum hjá alþjóða­stofn­unum und­an­farið. „Mark­miðið er meðal ann­ars að styrkja íslenska þekk­ingu og reynslu á þessum sviðum, sem og að auka sýni­leika og fram­lag Íslands til við­kom­andi stofn­ana en líka að gæta íslenskra hags­muna og auka áhrif Íslands innan þeirra,“ segir meðal ann­ars í svari ráðu­neyt­is­ins.

Stefna íslenskra stjórn­valda er, að því er segir í svari ráðu­neyt­is­ins, í sam­ræmi við stefnu ýmissa vina­þjóða sem hafa það bein­línis að mark­miði að fleiri úr þeirra röðum ráð­ist til starfa hjá alþjóða­stofn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár