Fyrrverandi ráðherra á meðal stjórnenda stofnunar sem gerir úttekt á útgerðum

Árni Mathiesen, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, er aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri fisk­veiðis­viðs stofn­un­ar­innar sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hefur falið að gera úttekt á við­skipta­háttum útgerða í þró­un­ar­löndum.

Árni M. Mathiesen, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Árni M. Mathiesen, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Alþingi

Aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri fisk­veiðis­viðs stofn­un­ar­innar sem Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur falið að gera úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga við­skipti með afla­heim­ildir er Árni M. Mathiesen, fyrr­ver­andi fjár­mála- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[links] Rík­is­stjórnin til­kynnti í dag þær aðgerðir sem hún ætlar að ráð­ast í til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins. Þar á meðal mun Kristján Þór hafa frum­kvæði að því að FAO vinni úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir, þar á meðal í þró­un­ar­lönd­unum.

Á grund­velli úttekt­ar­innar mun FAO síðan vinna til­lögur til úrbóta í sam­vinnu við aðrar alþjóð­legar stofn­anir sem vinna að heil­brigðum við­skipta­háttum, gegn spill­ingu, mútum og pen­inga­þvætti. [adspot]

Í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar segir að FAO sé stærsta alþjóð­lega stofn­unin sem sinnir reglu­bundnu starfi hvað varðar aðgerðir til að bæta stjórn fisk­veiða og þróun sjáv­ar­út­vegs á heims­vísu. „Á vett­vangi stofn­un­ar­innar hafa verið gerðir alþjóða­samn­ingar m.a. til að takast á við ólög­legar veiðar og bæta stjórn og upp­lýs­inga­gjöf með fisk­veiðum. Verk­efnið fellur því vel að hlut­verki stofn­un­ar­innar“ segir i til­kynn­ing­unni.

Árni sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn til fjölda ára eða frá 1991 til 2003. Hann var jafn­framt sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á árunum 1999 til 2005 og fjár­mála­ráð­herra 2005 til 2009. Hann hóf störf sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri fisk­veiðis­viðs FAO árið 2010 og sam­kvæmt frétt RÚV um ráðn­ing­una þá studdu íslensk stjórn­völd umsókn Árna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár