Gunnar Bragi ráðinn til stofnunar SÞ um eyðimerkursamninginn

Gunnar Bragi Sveins­son tók nýverið við starfi sér­staks ráð­gjafa fram­kvæmda­stjóra stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna um samn­ing stofn­un­ar­innar um varnir gegn eyði­merk­ur­myndun (UNCCD). Hann segir lífið eftir póli­tík „æðis­legt“.

Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD).
Gunnar Bragi Sveins­son tók nýverið við starfi sér­staks ráð­gjafa fram­kvæmda­stjóra stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD). Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði skilið við stjórn­málin síð­asta haust. Í sumar sótti hann um starf hjá stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD). Hann fór í atvinnu­við­tal í októ­ber, ásamt nokkrum öðrum, og bauðst starfið með skömmum fyr­ir­vara fyrr í þessum mán­uði. Ráðn­ingin er til eins árs, að minnsta kosti til að byrja með.

Ísland er á meðal stofn­enda vina­hóps Eyði­merk­ur­samn­ings­ins á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom því til leiðar að verndun, end­ur­heimt og stöðvun land­eyð­ingar hlyti rík­ari sess í Heims­mark­mið­unum en áætlað var. Síð­ast­liðið ár hefur Ísland einnig leitt samn­inga­við­ræður um ályktun er varðar eyði­merk­ur­myndun og land­græðslu. Gunnar Bragi segir tengsl Íslands við stofn­un­ina hafa verið til staðar í mörg ár.

„Við höfum stutt við stofn­un­ina í gegnum Land­græðslu­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna og síðan hefur þetta verið hluti af okkar þró­un­ar­sam­vinnu í nokkur ár,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann. Þá segir hann utan­rík­is­ráðu­neytið hafa stutt við samn­ing­inn með fjár­fram­lögum, líkt og marga aðra, und­an­farin ár.

Óljóst hvort hann geti sinnt háskólanáminu meðfram nýja starfinu

Stofn­unin hefur aðsetur í Bonn í Þýska­landi og er Gunnar Bragi fluttur þangað en fjöl­skyldan er enn heima. „Það er verið að finna út úr þessu öllu saman.“ Gunnar Bragi starfar sem sér­stakur ráð­gjafi Ibrahim Thiaw, fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­innar, en ráð­gjafar hans eru nokkrir.

Gunnar Bragi hóf nám við Háskól­ann á Bifröst eftir að þing­mennsk­unni lauk síð­asta haust en hann segir það óljóst hvort hann geti stundað námið með­fram nýja starf­inu. Aðspurður hvernig lífið sé eftir að þing­mennsk­unni lauk segir hann það vera „æðis­legt“.

Braut siðareglur með ummælum á Klaustri

Gunnar Bragi tók sæti á Alþingi árið 2009, fyrst fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn en hann fylgdi svo Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni út úr þeim flokki þegar sá síð­ar­nefndi stofn­aði Mið­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga 2017. Gunnar Bragi sat bæði sem utan­rík­is­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs á árunum 2013 til 2016. Hann var kjör­inn fyrsti vara­for­maður Mið­flokks­ins en það emb­ætti hefur síðan verið lagt nið­ur.

[links]Stofnun Mið­flokks­ins má rekja til afsagnar Sig­mundar Davíðs sem for­sæt­is­ráð­herra vegna Panama­skjal­anna í apríl 2016 og tap­ hans í for­manns­kosn­ingu í Fram­sókn­ar­flokknum fyrir Sig­urði Inga Jóhanns­syni í aðdrag­anda kosn­inga þá um haust­ið.

Árið 2019 komst ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Gunnar Bragi og Berg­þór Óla­son, annar þing­maður Mið­flokks­ins, hefðu brotið siða­reglur Alþingis með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018, og voru tekin upp af öðrum gesti sem þar var. Gunnar Bragi fór í leyfi frá störfum eftir að málið kom fyrst upp og hélt því fram að hann hefði verið ofurölvi þegar atburð­ur­inn átti sér stað. Sökum þess bar hann við minnis­leysi.

Aðrir þing­­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­­mund­ur Davíð Gunn­laugs­­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólaf­ur Ísleifs­­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Mið­flokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­inn­ar.

Nefndin fór yfir ummæli Gunn­ars Braga um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dótt­ur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta­mála­ráð­herra. auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dótt­ur, fyrr­ver­andi sund­konu. Kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþing­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár