Gunnar Bragi hættir á þingi – Gagnrýnir Framsókn fyrir undirmál og óheilindi

Þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins verður ekki í fram­boði í kosn­ing­unum í haust. Hann gagn­rýnir þá fram­sókn­ar­menn fyrir að „fara í við­töl og tala um æsk­una eða annað slíkt til þess að breiða yfir sína fram­göngu í stjórn­málum.“

Gunnar Bragi Sveinsson.
Gunnar Bragi Sveins­son. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, mun ekki verða í fram­boði í þing­kosn­ing­unum þann 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag segir hann þetta vera réttan tíma til að snúa sér að öðru.

Gunnar Bragi, hefur setið á Alþingi frá árinu 2009, fyrst fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn en hann fylgdi svo Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni út úr þeim flokki þegar sá síð­ar­nefndi stofn­aði Mið­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga 2017. Gunnar Bragi sat bæði sem utan­rík­is­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs á árunumu 2013 til 2016. Hann var kjör­inn fyrsti vara­for­maður Mið­flokks­ins en það emb­ætti hefur síðan verið lagt niður.

Gagnrýnir Framsókn fyrir undirmál og óheilindi

Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið fer Gunnar Bragi yfir það þegar þeir Fram­sókn­ar­menn sem fylgdu Sigmundi Davíð að málum ákváðu að yfir­gefa Fram­sókn­ar­flokk­inn og stofna með honum Mið­flokk­inn. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð þurfti að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra vegna Panama­skjal­anna í apríl 2016 og tap­aði svo for­manns­kosn­ingu í Fram­sókn­ar­flokknum fyrir Sigurði Inga Jóhanns­syni í aðdrag­anda kosn­inga þá um haustið.

[adspot]Þegar kosið var aftur ári síðar sættu Sig­mundur Davíð og sam­starfs­menn hans færis og stofn­uðu eigin flokk.

Gunnar Bragi segir að það sé fólk í bæði Framsókn og Mið­flokki sem geti talað saman og myndað traust þrátt fyrir þessa for­sögu, en að það sé ekki almennt. „Það var erfitt fyrir okkur mörg að stíga þetta skref, en ég sé ekki eftir því. Það var óhjá­kvæmi­legt. Það var ein­fald­lega ekki hægt að sitja undir þeirri for­ystu, sem þar var og er. Það getur vel verið að við getum unnið með þessu ágæta fólki, en við getum ekki verið saman í flokki. Og það eru auð­vitað sær­indi, eðli­lega, þegar það eru und­ir­mál og óheil­indi, eins og voru í Framsókn á þessum tíma. Það hjálpar ekki heldur þegar maður sér að þeir sem mest og verst höfðu sig í frammi með óheil­indum þá, eru núna að reyna að lappa upp á ímynd­ina með því að fara í við­töl og tala um æsk­una eða annað slíkt til þess að breiða yfir sína fram­göngu í stjórn­málum.“

Sá for­víg­is­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem hefur farið í við­tal á þessu kjör­tíma­bili og talað um erf­iða æsku sína er Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Hann fór í það við­tal i Morg­un­blað­inu í nóv­em­ber í fyrra.

Braut siðareglur með ummælum á Klaustri

Árið 2019 komst ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Gunnar Bragi og Berþór Ólason, annar þing­maður Mið­flokks­ins, hefðu brotið siða­reglur Alþingis með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018, og voru tekin upp af öðrum gesti sem þar var. Gunnar Bragi fór í leyfi frá störfum eftir að málið kom fyrst upp og hélt því fram að hann hefði verið ofurölvi þegar atburð­ur­inn átti sér stað. Sökum þess bar hann við minnis­leysi.

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­innar.

Nefndin fór yfir ummæli Gunnars Braga um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og Lilju Alfreðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra. auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dóttur, fyrr­ver­andi sund­konu. Komist var að þeirri nið­ur­stöðu að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþingis.

Hægt er að lesa ummælin hér.

Eiginkonurnar kjósi ekki Miðflokkinn með Gunnar Braga innanborðs

Halldór Gunn­ars­son frá Holti, sem situr í flokks­ráði Mið­flokks­ins, skrif­aði grein í nóv­em­ber í fyrra þar sem hann sagði að Mið­flokk­ur­inn gæti ekki náð í rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar ef Gunnar Bragi yrði í fram­boði fyrir hann haustið 2021. „Skoð­ana­kann­anir sýna að konur kjósa síst flokk­inn. Þetta stað­festir síð­asta fram­boð flokks­ins til sveit­ar­stjórnar á Aust­ur­landi á sinn hátt. Næstum án und­an­tekn­ingar heyri ég eig­in­konur manna hlið­hollra Mið­flokknum segja við mig: Ég kýs ekki Mið­flokk­inn ef Gunnar Bragi Sveins­son býður sig fram. Þegar ég spyr um ástæður er svarið það sama, sem ég þarf ekki að end­ur­segja, því allir virð­ast sam­mála um ástæð­una.“

Þar var Halldór að vísa til Klaust­ur­máls­ins.

Skömmu áður, í sept­em­ber 2020, hafði verið kosið í sveita­stjórn nýs sam­ein­aðs sveit­ar­fé­lags á Aust­ur­landi, Múla­þingi. Þar fékk Mið­flokk­ur­inn minnst fylgi þeirra flokka sem buðu fram og náði einum full­trúa inn í ell­efu manna sveit­ar­stjórn.

Sigurður Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri á Héraði, sem sat í 7. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins, sagði í aðsendri grein á vef Aust­ur­fréttar í kjöl­farið að hann væri bæði bitur og miður sín yfir úrslitum kosn­ing­anna. „Mér finnst afar ósann­gjarnt að ég og aðrir sem unnum af heil­indum í aðdrag­anda þess­arra kosn­inga skyldum enda­laust þurfa að svara fyrir fyll­er­ís­röfl Gunnars Braga Sveins­sonar á bar suður í Reykja­vík, og allar þær hug­myndir og hug­sjónir sem við hefðum væru einskis virði þess vegna.“

Fylgi Mið­flokks­ins hefur dalað að und­an­förnu og í síð­ustu könnun MMR mæld­ist flokk­ur­inn með 5,7 pró­sent fylgi. Það er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá því að mæl­ingar á fylgi flokks­ins hófust, og minna fylgi en Mið­flokk­ur­inn mæld­ist með í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins. Samkvæmt mæl­ingu MMR yrði Mið­flokk­ur­inn minnstur þeirra átta flokka sem næðu inn á þing ef kosið yrði í dag, en flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár