Ísland styður UNCCD með beinu fjárframlagi eftir að fyrrverandi ráðherra hóf störf

Framlag íslenskra stjórn­valda til skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD) til árs­ins 2023 nemur rúm­lega 77 millj­ónum króna. Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, var nýverið ráð­inn til starfa hjá stofn­un­inni.

Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD). Framlag íslenskra stjórnvalda til stofnunarinnar nema um 77 milljónum króna til ársins 2023.
Gunnar Bragi Sveins­son tók nýverið við starfi sér­staks ráð­gjafa fram­kvæmda­stjóra stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD). Framlag íslenskra stjórn­valda til stofn­un­ar­innar nema um 77 millj­ónum króna til árs­ins 2023. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd gerðu samn­ing á síð­asta ári við skrif­stofu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um aðgerðir gegn eyði­merk­ur­myndun (UNCCD) um óskil­yrt kjarna­fram­lag til þriggja ára (2021-2023) sem nemur 200 þús­und Banda­ríkja­dölum á ári, eða rúm­lega 25,8 millj­ónum króna árlega.

Stofn­unin er ein fjög­urra stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna sem íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að auka fram­lög til í sam­ræmi við loka­yf­ir­lýs­ingu COP26 lofts­lags­ráð­stefn­unnar í Glasgow sem fram fór síð­ast­liðið haust. Öll fram­lögin miða að lofts­lags­að­gerðum í þró­un­ar­ríkjum.

Í fyrsta sinn sem Ísland styður stofnunina með beinu fjárframlagi

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, síðar Mið­flokks­ins, hóf störf hjá stofn­un­inni í síð­asta mán­uði. Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að fjár­veit­ingin teng­ist ekki starfs­manna­haldi skrif­stof­unnar.

„Fram­lagið til skrif­stof­unnar var hluti af þeirri aukn­ingu fram­laga til þró­un­ar­tengdra lofts­lags­verk­efna sem til­kynnt var um á leið­toga­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna í des­em­ber 2020,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Ísland styður stofn­un­ina með beinu fjár­fram­lagi, umfram skyldu­fram­lag.

[links]Ísland er á meðal stofn­enda vina­hóps Eyði­merk­ur­samn­ings­ins á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom því til leiðar að vernd­un, end­ur­heimt og stöðvun land­eyð­ingar hlyti rík­ari sess í Heims­mark­mið­unum en áætlað var. Síð­ast­liðið ár hefur Ísland einnig leitt samn­inga­við­ræður um ályktun er varðar eyði­merk­ur­myndun og land­græðslu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur einnig fram að utan­rík­is­þjón­ustan hafi unnið vel með skrif­stofu samn­ings­ins í New York um ára­bil. Sam­starfið megi rekja til stofn­unar vina­hóps gegn eyði­merk­ur­myndun árið 2014 sem Ísland hefur leitt ásamt Namibíu allar götur síðan. Þar segir einnig að íslensk stjórn­völd hafa um ára­bil lagt áherslu á umhverfis- og lofts­lags­mál í opin­berri þró­un­ar­sam­vinnu og er land­græðsla á meðal áherslu­þátta.

Gunnar Bragi sagði skilið við stjórn­málin síð­asta haust og sett­ist á skóla­bekk við Háskól­ann á Bifröst. Hann sótti um starf sér­staks ráð­gjafa fram­kvæmda­stjóra UNCCD síð­asta sumar og fór í atvinnu­við­tal í októ­ber ásamt nokkrum öðrum. Honum bauðst starfið með skömmum fyr­ir­vara í síð­asta mán­uði og hóf þegar störf.

Ráðn­ingin er til eins árs, að minnsta kosti til að byrja með. Gunnar Bragi er búsettur í Bonn í Þýska­landi þar sem stofn­unin hefur aðsetur og sagði í sam­tali við Kjarnann eftir að ráðn­ing hans tók gildi að lífið eftir póli­tík væri „æðis­legt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þróunarsamvinna

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár