Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Sjálfstæðisflokkur með yfir þriðjung talinna atkvæða

Fyrstu töl­urnar úr fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins, Suð­vest­ur­kjör­dæmi, skil­uðu sér kl. rúm­lega 23 í kvöld. Ef önnur atkvæði í kjör­dæm­inu verða í takti við þau sem fyrst voru talin virð­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa unnið sterkan sigur í kjör­dæmi for­manns­ins.

Flokk­ur­inn hefur fengið 36,6 pró­sent þeirra atkvæða sem hafa verið talin og er næstum þrisvar sinnum stærri en Vinstri græn, sem eru næst stærsti flokkur kjör­dæm­is­ins sam­kvæmt þessum fyrst tölum.

Þessi nið­ur­staða myndi þýða að Arnar Þór Jónsson hér­aðs­dóm­ari yrði þing­maður, en sam­kvæmt þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar voru líkur hans á þing­sæti ein­ungis 16 pró­sent.

Sam­fylk­ingin, Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn missa einn þing­mann í kjör­dæm­inu sam­kvæmt þessum fyrstu tölum. Það myndi þýða að hvorki Sam­fylk­ingin né Mið­flokk­ur­inn fengju þing­menn, en odd­vitar þess­ara flokka höfðu 93 og 52 pró­sent líkur á þing­sæti sam­kvæmt þing­sæta­spánni.

Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn fá jöfn­un­ar­menn í kjör­dæm­inu sam­kvæmt þessum fyrstu tölum.


Talin atkvæði: 5.870

Sjálf­stæð­is­flokkur: 36,6 pró­sent - 5 þing­menn (+1)

Vinstri græn: 13,6 pró­sent - 2 þing­menn (-)

Fram­sókn­ar­flokkur: 11,9 pró­sent - 1 þing­maður (-)

Flokkur fólks­ins: 8,5 pró­sent - 1 þing­maður (+1)

Píratar: 7,7 pró­sent - 2 þing­menn (+1) jöfn­un­ar­maður

Viðreisn: 7,7 pró­sent - 1 þing­maður (-1)

Sós­í­alista­flokk­ur­inn: 6 pró­sent - 1 þing­maður (+1) jöfn­un­ar­maður

Sam­fylk­ingin: 4,3 pró­sent - 0 þing­menn (-1)

Mið­flokk­ur­inn: 3,4 pró­sent - 0 þing­menn (-1)

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn: 0 pró­sent (ekk­ert atkvæði)

[adspot]

Þingmenn kjörnir 2017:

Sjálf­stæð­is­flokkur 4

Vinstri græn 2

Viðreisn 2

Fram­sókn­ar­flokkur 1

Mið­flokkur 1

Flokkur fólks­ins 1

Sam­fylk­ingin 1

Píratar 1

Hér að neðan má sjá loka­þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fyrir Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár