VG rak bestu baráttuna en Framsókn á vanstilltustu auglýsinguna

Kosn­inga­bar­áttan fór að miklu leyti fram staf­rænt. Sam­fé­lags­miðlar spil­uðu stórt hlut­verk þar sem stjórn­mála­flokk­arnir keppt­ust við að birta kosn­inga­á­róður í mynd­böndum. Kjarninn rýndi í bar­áttu hvers fokks.

Stjórmálaleiðtogarnir ræða saman fyrir umræðuþátt á Stöð 2 á fimmtudagskvöldið.
Stjór­mála­leið­tog­arnir ræða saman fyrir umræðu­þátt á Stöð 2 á fimmtu­dags­kvöldið.

Kosn­inga­bar­áttan sem nú er á enda hefur um margt verið sögu­leg. Í fyrsta skipti fór hún að stóru leyti fram staf­rænt og sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðlum, bæði umræðan og ekki síður fram­setn­ing kosn­inga­á­róð­urs flokk­anna sem kepp­ast um atkvæði okkar í dag. Kjarninn rýndi í bar­áttu hvers flokks fyrir sig, hverjar meg­in­á­herslur hans voru í bar­átt­unni, hvernig þær voru fram­settar og hvernir þeir not­uðu nýmiðlun til að koma skila­boðum sínum á fram­færi.

Sjálfstæðisflokkurinn

Stöðugleiki, stöðugleiki, stöðugleiki

Áhersla Sjálf­stæð­is­manna í bar­átt­unni var nær öll á Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Aðrir fram­bjóð­endur sáust varla í þeim aug­lýs­inga­her­ferðum sem flokk­ur­inn er að keyra í hefð­bundnum fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum. Mynd­böndin, hjartað í kosn­inga­bar­áttu flokks­ins, eru nær öll með allan fókus á Bjarna. Sjón­varps­aug­lýs­ingar sýndu hann tala um ábyrgð, stöð­ug­leika og vara við vinstri stjórn. Eini fram­bjóð­and­inn sem fékk eitt­hvað vægi utan Bjarna var rit­ari flokks­ins, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Af tólf síð­ustu mynd­böndum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur birt á Facebook-síðu sinni eru þó sjö af Bjarna. Mynd­bandið sem hefur vakið mesta athygli, og fengið mest áhorf allra kosn­inga­mynd­banda í þess­ari kosn­inga­bar­áttu, er án efa það sem sýnir Bjarna baka afmælisköku fyrir dóttur sína þar sem kakan sem Bjarni er að nostra við þjónar einnig þeim til­gangi að vera lík­ing fyrir íslenskan efna­hag.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ekki með höf­uð­á­herslu á neitt eitt kosn­inga­lof­orð heldur lagði hann áherslu á áfram­hald­andi stöð­ug­leika í efna­hags­málum – sem sé til­komin vegna góðra starfa flokks­ins á kjör­tíma­bil­inu – sem for­sendu þess að hægt sé að ráð­ast þær umbætur sem þarf á íslenska sam­fé­lags­mód­el­inu. Kosn­inga­slag­orðið er enda: „Á réttri leið“.

Framsóknarflokkurinn

Óvenjulega rólegt en svo allt í einu Höddi Magg

Hinn rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hefur rekið heldur óhefðu­bundna kosn­inga­bar­áttu á sinn mæli­kvarða. Flokk­ur­inn er þekktur fyrir að „stela“ kosn­ingum með því að keyra á einu risa­stóru lof­orði og að ná að láta kosn­inga­bar­átt­una hverf­ast að mestu um þau. Nær­tæk­ustu dæmin eru þegar hann lof­aði 90 pró­sent lánum fyrir kosn­ing­arnar 2003 og bjó til sniðugar sjón­varps­aug­lýs­ingar þar sem því var komið á fram­færi sem vöktu mikla athygli. Fyrir kosn­ing­arnar 2009 var lof­orðið 20 pró­senta leið­rétt­ing skulda og það lof­orð var síðan end­ur­nýtt með smá­vægi­legum breyt­ingum fyrir kosn­ing­arnar 2013 sem „Leið­rétt­ing stökk­breyttra hús­næð­is­lána“. Þessi lof­orð svín­virk­uðu öll fyrir flokk­inn.

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kemur nú til kosn­inga plag­aður af inn­an­meinum. Harð­vítug bar­átta um for­manns­sætið hefur skilið flokk­inn eftir í sárum og nokkuð ljóst er að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður flokks­ins, ætlar sér ekki að danska í takt við lag sem nýi for­mað­ur­inn Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur samið. Sig­mundur Davíð er enn sinn eigin for­maður.

Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir eru andlit Framsóknarflokksins í þeirri kosningabaráttu sem nú er að ljúka.
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Lilja Alfreðs­dóttir eru and­lit Fram­sókn­ar­flokks­ins í þeirri kosn­inga­bar­áttu sem nú er að ljúka.

Kosn­inga­bar­átta Fram­sóknar hófst seint af þessum sökum og þegar stefnu­málið voru loks kynnt þá vant­aði allan „hókus pókus“-þátt í þau. Efst á baugi voru ann­ars vegar skatta­lækk­anir – óvenju­legt Fram­sókn­ar­lof­orð – sem gengið hefur illa að útskýra og koma á dag­skrá, og hins vegar and­stæða gegn því að nýtt fram­tíð­ar­sjúkra­hús verði byggt upp við Hring­braut, sem er í and­stöðu við afstöðu allra ann­arra flokka sem líkur eiga á að kom­ast á þing. Ólíkt síð­ustu kosn­ingum hafa lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins því ekki náð neinu almenni­legu flugi í þetta skiptið.

Í stat­ískum aug­lýs­ingum er öll áhersla á for­mann­inn og vara­for­mann­inn, Sigurð Inga og Lilju Alfreðs­dóttur. Sig­mundur Davíð, stærsti hlut­inn af per­sónu­leika Fram­sókn­ar­flokks­ins síð­ustu átta árin, er hvergi sjá­an­legur. Á sam­fé­lags­miðlum hefur mynd­band af mann­legum Sigurði Inga að moka flór og sinna öðrum bústörfum, með áherslu á að hann gangi hreint til verka, verið fyr­ir­ferða­mikið.

Á þriðju­dag birt­ist síðan mynd­band þar sem slegin er annar tónn. Þar var varað við því að hjól efna­hags­lífs­ins muni stöðvast ef vinstri stjórn tekur við völdum. Og hræðslu­á­róð­ur­inn náði síðan nýjum, og áður óséðum, hæðum í íslenskri stjórn­mála­bar­áttu á fimmtu­dags­kvöld þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn birti hið nú alræmda fót­bolta­lík­ing­ar­mynd­band sitt, þar sem stjórn­ar­and­staðan er teiknuð upp sem lík­am­lega tak­markað fólk sem geti ekki unnið kapp­leiki en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem hinn full­komni knatt­spyrnu­maður sem getur ekki hægt að skora. And­stæð­ing­ur­inn í leiknum í aug­lýs­ing­unni er Evr­ópu­sam­bandið. Og Hörður Magn­ús­son er lát­inn lýsa öllu saman í hefð­bundnu æsing­ar­kasti.

Það má slá því föstu að mynd­bandið stal titl­inum af króka­veiða­mynd­bandi Dögunar sem van­stilltasta kosn­inga­mynd­band þess­ara kosn­inga á loka­spretti þeirra.

Viðreisn

Fagmannlegt og Færeyjar

Viðreisn hefur tek­ist ágæt­lega að setja áhersl­una á mál­efna­stöðu flokks­ins og hvað það sé sem aðskilji hann frá öðrum sem eru nálægt honum í hinu póli­tíska litrofi. Það sást til að mynda ágæt­lega þegar flokk­ur­inn hélt blaða­manna­fundi til að leggja áherslu á sín helstu stefnu­mál á sama tíma og stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir voru að hitt­ast til að leggja drög að nýrri rík­is­stjórn eftir kosn­ingar. Allt kosn­inga­efni flokks­ins var fag­mann­lega unnið og snyrti­lega fram­sett, svona eins og flestir fram­bjóð­endur flokks­ins. En fékk kannski ekki blóðið til að renna hraðar í kjós­endum.

Flokk­ur­inn býr að því að hafa raðað á lista og fengið fullt af fólki sem mis­mun­andi sér­þekk­ingu og aðdrátt­ar­afl til að taka slag­inn með sér. Því er flest öllu flaggað. Raunar má segja að Viðreisn sé eini flokk­ur­inn sem setji for­mann sinn ekki í aðal­hlut­verkið í kosn­inga­bar­átt­unni. ungt fólk á borð við Pawel Bartoszek og Sigríði Maríu Egils­dóttur hafa verið áber­andi ásamt Þor­steini Víglunds­syni, Hönnu Katrínu Frið­riks­son og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur.

Það mál sem Viðreisn hefur sett á odd­inn er mynt­ráð og að það sé lausn sem geti leyst þau vanda­mál Íslend­inga að búa við enda­lausa háa vexti og geng­is­sveiflur. Það var framan af gert með yfir­veg­uðum, hefð­bundnum og vel fram­leiddum hætti.

Nokkrum dögum fyrir kosn­ingar var skipt um gír og mynt­ráðs­hug­myndin sett fram á nýstár­legan, bráð­snjallan og skemmti­legan hátt sem sam­tal milli Íslands og Færeyja um pen­inga­stefnu­mál í Messen­ger-kerfi Facebook.

Samfylkingin

Oddný sem Hillary og of síðbúið neyðarkall Dags

Kosn­inga­stjórar Sam­fylk­ing­ar­innar ákváðu greini­lega að allt sviðs­ljós ætti að vera á Oddnýju Harð­ar­dóttur, nýkjörnum for­manni flokks­ins. Hún hefur verið dubbuð upp sem ein­hvers konar íslensk útgáfa af Hillary Clinton, sem Oddný er alls ekki. Þá virð­ist eins og að með­vitað sé verið að fela Árna Pál Árnason og Össur Skarp­héð­ins­son, tvo fyrr­ver­andi for­menn flokks­ins. En fyrir lá að Sam­fylk­ingin hefur upp­lifað sitt mesta hnign­un­ar­skeið í sögu flokks­ins und­an­farin miss­eri og nýja leik­á­ætlun þyrfti til að hressa upp á stöð­una.

Þessi áhersla á Oddnýju hefur margar birt­ing­ar­myndir. Hún er í aðal­hlut­verki í nær öllum prent og net kosn­inga­á­róðri flokks­ins, er í þeim mynd­böndum sem mest áhersla hefur verið lögð á að dreifa og búinn var til sér­stakur flipi á heima­síðu Sam­fylk­ing­ar­innar sem heitir ein­fald­lega „Oddný“. Hann er við hlið ann­ars flipa sem allt hitt „Fólkið“ í fram­boði deilir. Engin annar stjórn­mála­flokkur sem mælist inni er með sér­staka und­ir­síðu sem er ein­ungis helguð for­manni flokks­ins.

Það má slá því föstu að þessi aðferð­ar­fræði hafi, svona væg­ast sagt, ekki gengið upp. Fylgið hefur haldið áfram að hrynja af Sam­fylk­ing­unni dag frá degi án þess að brugð­ist hafi verið við. Þ.e. þangað til í gær, degi fyrir kosn­ingar. Þá var loks hringt í Dag,þ.e. borg­ar­stjór­ann Dag B. Egg­erts­son, til að senda út neyð­ar­kall til kjós­enda um að halda Sam­fylk­ing­unni lif­andi. Dagur er eini stjórn­mála­mað­ur­inn í Sam­fylk­ing­unni með per­sónu­fylgi og því ekk­ert ein­kenni­legt við að hann sé virkj­aður. En það verður að telj­ast sér­kenni­legt að beðið hafi verið með neyð­ar­kallið fram á síð­asta dag fyrir kosn­ingar.

Björt framtíð

Björt bjargar Bjartri

Kosn­inga­bar­átta Bjartar fram­tíðar hefur verið ein­föld­ust allra flokka. Flokk­ur­inn vakn­aði óvart aftur til lífs­ins með því að standa einn flokka gegn sam­þykkt búvöru­samn­inga og hefur blóð­mjólkað þá afstöðu með þeim árangri að hann getur nú gert raun­hæfar vænt­ingar til að slaga lang­leið­ina upp í kjör­fylgi sitt í síð­ustu kosn­ingum. Það verður að telj­ast mik­ill sigur.

Hitt sem hefur virkað vel fyrir Bjarta fram­tíð er Björt Ólafs­dóttir. Hún hefur verið mjög dug­leg við að finna sér rifr­ildi til að halda sér í umræð­unni og til að búa til aðskilnað milli sín og Bjartrar fram­tíðar og hinna flokk­anna sem eru að fiska eftir atkvæðum í sömu tjörn. Það má segja að Björt hafi að mörgu leyti bjargað Bjartri fram­tíð frá því að logn­ast út af sem þjóð­mála­afl.

Eftir að hafa náð fót­festu og fundið sér far­veg sem virk­aði hefur Björt fram­tíð haldið við sig þá upp­skrift að keyra bar­átt­una á ann­ars vegar Björt og hins vegar hinum geðuga, kurt­eisa, mál­efna­lega en auð­vitað óvenju­lega for­manni sínum Óttarri Proppé. Þetta ólíka tveggja manna teymi er afar áber­andi í kosn­inga­aug­lýs­ingum og sem full­trúar flokks­ins út á við, t.d. sem við­mæl­endur í fjöl­miðlum. Þau fundu ein­fald­lega eitt­hvað sem virk­aði og breyttu engu eftir það.

Vinstri græn

Katrín og Rassi Prump með annara rössum

Sig­ur­veg­ari kosn­inga­bar­átt­unnar, þegar horft er á kosn­inga­á­róður og fram­setn­ingu hans, verður að telj­ast Vinstri græn. Flokk­ur­inn sem var nálægt því að þurrkast nokkrum vikum fyrir kosn­ing­arnar 2013 hefur fundið sér ágætan far­veg undir for­ystu vin­sælasta stjórn­mála­manns þjóð­ar­innar, Katrínar Jak­obs­dóttur. Öll áhersla í aug­lýs­ingum í hefð­bundnum miðlum hefur verið á Katrínu og mikla athygli hefur vakið að Stein­grímur J. Sig­fús­son, helsta burða­rásin að stofnun flokks­ins og for­maður hans árum saman, er mjög vand­lega falin alls staðar ann­ars staðar en í heima­kjör­dæmi sínu, þar sem hann nýtur mik­ils per­sónu­fylgis. Ástæðan er ein­föld: Stein­grímur er á meðal umdeild­ustu stjórn­mála­manna þjóð­ar­innar á meðan að Katrín nýtur hylli hjá fólki úr öllum stigum sam­fé­lags­ins.

Í aðal­sjón­varps­aug­lýs­ingu Vinstri grænna sést Katrín fara yfir hvers konar rík­is­stjórn hún von­ist til að sjá eftir næstu kosn­ingar en hvetur síðan fólk til að kjósa „stjórn­mála­fólk og flokka sem það treystir.“

Föstu­dag­inn fyrir viku setti flokk­ur­inn síðan af stað ann­ars konar her­ferð sem miðuð var á sam­fé­lags­miðla og þá mark­hópa sem nálg­ast flestar sínar upp­lýs­ingar á þeim. Sú her­ferð, sem sam­anstendur af fjórum aug­lýs­ingum þar sem hinn heims­frægi lista­maður Ragnar Kjart­ans­son, einnig þekktur sem Rassi Prump, er í aðal­hlut­verki, hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Mynd­böndin eru sniðug, fyndin, vel gerð, inni­halda ókyn­ferð­is­lega hlaðna nekt og skarta íslenskri lista­stjörnu sem nýtur bæði virð­ingar og þykir móð­ins.

Mynd­böndin náðu líka að vekja umtal. Eitt þeirra sýndi nakta lista­konu með hrossa­höfuð fram­kvæma gjörn­ing og var bannað af Facebook skömmu eftir að það kom í loftið. Annað sýndi Ragnar og Katrínu ná saman og blanda sér kok­teila þar sem hrá­efnin voru lík­ingar fyrir sam­fé­lagið. Það mynd­band er lík­ast til í and­stöðu við áfengis- og tóbaks­varn­ar­lög. En fang­aði sann­ar­lega athygli og olli VG nær örugg­lega engum skaða. Þvert á móti.

Þrátt fyrir að Píratar séu flokkur sem stofn­aður var í kringum inter­netið og upp­lýs­inga­frelsi þá var flokk­ur­inn ekki neitt sér­stak­lega áber­andi í kosn­inga­á­róðri á þeim vett­vangi í bar­átt­unni. Líkt og við var búist þá var fókus flokks­ins á spill­ingu og hann not­aði hvert til­efni sem gafst til að minna á af hverju það er verið að kjósa nú, í októ­ber, en ekki í apríl eins og stóð til.

Lyk­il­fólk Pírata hafa verið Birgitta Jóns­dóttir, alþjóð­legt and­lit hreyf­ing­ar­innar, Smári McCarthy, sem virð­ist njóta mik­illar virð­ingar inn­an­flokks en hefur verið helsti skot­spónn hat­rammra and­stæð­inga Pírata alla bar­átt­una, og Jón Þór Ólafsson, sem hefur til að mynda verið mjög sýni­legur í fjöl­miðlum og komið þar fram sem full­trúi flokks­ins. Þá hefur þing­mað­ur­inn Ásta Guðrún Helga­dóttir einnig verið áber­andi.

Píratar náðu að halda vel í hrá­leik­ann sem hefur aðgreint þá frá öðrum nýjum flokkum án þess að áróð­ursefni flokks­ins sé sjoppu­legt og illa unnið eins og hjá mörgum smá­flokkum, þar sem ekk­ert var hugsað um lýs­ingu, hljóð mynd­gæði eða í raun hvað væri verið að segja heldur var bara ýtt á rec og vonað það besta.

Á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar fóru Píratar að hamra á því helsta sem flokk­ast sem spill­ing á kjör­tíma­bil­inu og fram­bjóð­endur flokks­ins not­uðu hvert tæki­færi til að minna á Panama­skjölin. Síðast gerð­ist það í gær í lokaum­ræðum leið­toga stjórn­mála­flokk­anna þegar Birgitta Jóns­dóttir tók upp spjald sem á stóð Panama­skjölin og sýndi í beinni útsend­ingu á meðan að Bjarni Bene­dikts­son var að tala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár