VR auglýsir eftir blokk til kaups

Leigu­fé­lag VR vill kaupa fjöl­býl­is­hús á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til útleigu handa félags­mönnum

VR auglýsir eftir blokk
VR aug­lýsir eftir blokk Leigu­fé­lag VR vill kaupa fjöl­býl­is­hús fyrir félags­menn sína. Mynd: Shutterstock

Leigu­fé­lag VR, Versl­un­ar­manna­fé­lags Reykja­víkur, hefur aug­lýst eftir fjöl­býl­is­húsi til kaups á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Óskað er eftir húsi með að lág­marki 20 íbúðum og er til­tekið að kostur sé ef þær séu mis­stórar. Stefnt er að því að bjóða félags­mönnum VR íbúð­irnar til leigu, ef við­un­andi eign finnst.

Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að húsið þurfi að vera í mjög góðu ásig­komu­lagi en megi einnig vera í bygg­ingu og jafn­vel óbyggt. Stefán Svein­björns­son, fram­kvæmda­stjóri VR, segir að þegar hafi verið leitað til verk­taka og fast­eigna­sala og skoð­aðar hafi verið eignir. Hins vegar hafi verið tekin ákvörðun um að aug­lýsa einnig með þessum hætti til að kanna hvað í boði sé á mark­aðnum.

Allt kemur til greina

Stefán segir að kaupin verði fjár­mögnuð ann­ars vegar með eigin fé leigu­fé­lags­ins, sem komi frá VR, og með lán­töku. Þegar hafi verið rætt við fjá­mála­stofn­anir um lán­töku.

„Við erum með vonir um að þetta gangi hratt fyrir sig en það verður hins vegar að ráð­ast af því hvaða til­boð við fáum í hend­urnar. Við erum helst að leita eftir nýju eða mjög nýlegu húsi en í sjálfu sér kemur allt til greina, og einnig hvar sem er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Stefán segir jafn­framt að þó að stefnt sé að því að það séu félags­menn VR sem geti leigt af leigu­fé­lag­inu sé það þó ekki svo að skipti fólk um störf og fari í önnur stétt­ar­fé­lög verði það að flytja úr íbúð­unum. „Hug­mynda­fræðin bak við þetta er hús­næð­is­ör­yggi og lág leiga.“

Leigu­fé­lag VR var stofnað í febr­úar síð­ast­liðnum og er mark­miðið með félag­inu að hafa áhrif í átt að heil­brigð­ari leigu­mark­aði, að því er kom fram í grein eftir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, sem birt var á síðu félags­ins. Nýta á fjár­muni úr Félags­sjóði VR til verk­efn­is­ins. Vonir standa til að hægt verið að bjóða 15-30 pró­sent lægri leigu en ger­ist á almennum mark­aði.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár