Hoppuðu áfram eftir að heimsfaraldurinn skall á

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Kara Connect fékk óvæntan með­byr þegar heims­far­ald­ur­inn fór að geisa og ætlar að nýta sér aðstæð­urnar til þess að vaxa hraðar en áætlað var. Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir fram­kvæmda­stjóri Köru Connect ræddi við Kjarnann.

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Kara Connect er um nokk­urt skeið búið að vera að reyna að segja fólki hver fram­tíðin verður. Það gekk hægt, en þó eitt­hvað. „Þetta var að skríða í gang,“ segir Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir fram­kvæmda­stjóri Köru, en svo kom heims­far­ald­ur­inn og eft­ir­spurn eftir vöru fyr­ir­tæk­is­ins stjórjókst.

Vef­lausnin Kara Connect gefur sér­fræð­ingum á borð við sál­fræð­inga, náms- og starfs­ráð­gjafa og tal­meina­fræð­inga meðal ann­ars færi á að bjóða upp á örugga fjar­fundi. Fjöldi inn­skrán­inga í Köru sext­án­fald­að­ist á milli mán­aða, frá febr­úar og þar til í mars.

„Við hopp­uðum alveg massíft áfram,“ segir Þorbjörg og bætir við að margir kúnnar sem Kara Connect hafði þegar sett sig í sam­band við hafi stokkið af stað í að inn­leiða notkun lausn­ar­innar á sínum vinnu­stað. Einnig var nokkuð um „blindar skrán­ingar“ frá við­skipta­vinum bæði í Danmörku og í Belgíu frá not­endum sem ein­fald­lega skráðu sig skyndi­lega inn í kerfið. Hið síð­ar­nefnda kom sér­stak­lega á óvart, þar sem engin áhersla hafði verið lögð á að koma Köru á fram­færi á belgíska mark­aðnum.

Árs­mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins um vöxt náð­ust strax í mars og nú er staðan sú að Þorbjörg sjálf er komin út til Dan­merkur að kynna Köru frekar fyrir skand­in­av­íska mark­aðnum.

„Við náðum þessu nokkuð hratt og þar af leið­andi langar okkur að teikna upp nýjan vaxt­arás og athuga hvað við getum farið langt áfram núna næstu tvö árin, athuga hvort við getum ekki bara hlaupið hraðar en við áætl­uðum,“ segir Þorbjörg.

Fyr­ir­tækið var þegar komið með nokkurn fjölda kúnna hér á landi og þeim hefur farið fjölg­andi und­an­farnar vikur. Þorbjörg segir að áhug­inn hafi verið til staðar hjá tengiliðum þeirra innan fyr­ir­tækja og stofn­ana, en þegar far­ald­ur­inn skall á hafi svo orðið nauð­syn­legt fyrir marga sér­fræð­inga að bjóða upp á þjón­ust­una sína raf­rænt.

„Það voru kannski öfl í fyr­ir­tækj­unum sem höfðu bara ekki viljað setja tíma í þessar breyt­ingar, en þarna bara varð að gera það,“ segir Þorbjörg og bætir við að inn­leið­ing­ar­ferlið hafi gengið mjög hratt fyrir sig. Núna er að farið róast um og fást starfs­menn Köru Connect þessa dag­ana við það að kenna nýjum kúnnum betur á kerfið.

Enginn tilbúinn að fara aftur í gamla farið

Þorbjörg segir að þrátt fyrir að sótt­varna­ráð­staf­anir hamli því ekki lengur að sér­fræð­ingar hitti skjól­stæð­inga sína augliti til auglitis sé notkun tækn­innar komin til að vera.

„Við heyrum alveg að það eru allir til­búnir til þess að halda þessu áfram. Það er eng­inn sem segir að þeir ætli að fara aftur í gamla farið. Fólk sá alveg ótrú­lega marga kosti og átt­aði sig kannski ekki á því fyrr en það sett­ist um kvöldið með rauð­víns­glasið, hvað það var búið að græða mik­inn tíma. Það hverfur fullt af hlutum, sem hjálpar sér­fræð­ing­unum sem við erum að sinna mjög mikið,“ segir Þorbjörg.

Hún segir flesta sér­fræð­inga á borð við þá sem Köru Connect er ætlað að þjóna eiga það sam­merkt að vera yfir­bók­aða og hafa í mörgu öðru að snú­ast bara að veita sér­fræði­þjón­ustu sína.

„Mikill tími fer í að bíða eftir fólki eða hjálpa þeim að koma inn eða bjóða þeim vatn og kaffi. Það er mikið álag á þessu fólki og þetta er mik­il­væg­asta fólkið okkar í kerf­inu. Nú sjá margir að það er rof í deg­inum hjá þeim,“ segir Þorbjörg.

Kara virkar í raun eins og rafræn skrifstofa fyrir sérfræðinga sem eru að vinna með viðkvæmar upplýsingar.
Kara virkar í raun eins og raf­ræn skrif­stofa fyrir sér­fræð­inga sem eru að vinna með við­kvæmar upp­lýs­ingar.

Hún segir þó að það sé öruggt að fólk muni halda áfram að hitt­ast á fundum og í við­tölum, en sér­fræð­ingar geti nýtt sér Köru Connect til þess að stytta leiðir og sinnt skjól­stæð­ingum sem að öðrum kosti kom­ist ekki til við­tals, sumir af því að þeir búi langt í burtu en aðrir af því að þeir treysti sér ekki til þess að koma.

Nefnir Þorbjörg sem dæmi að fjar­við­töl geti verið kostur fyrir þá sem þurfa að sækja sér geð­heil­brigð­is­hjálp en glími við slíka van­líðan að þeir treysti sér ekki til þess að koma á stað­inn.

„Tæknin getur hjálpað þessu fólki tals­vert við að byggja upp traust og hitt­ast svo kannski eftir þrjá eða fjóra fjar­fundi. Þetta er okkar grund­vall­ar­hug­mynd­ar­fræði, að reyna að bæta aðgengi að hjálp með tækn­inni,“ segir Þorbjörg.

Á meðal fyr­ir­tækja og stofn­ana sem þegar nýta sér Köru Connect eru SÁÁ, vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar og fjöl­skyldu­hjálp Akur­eyr­ar­bæjar. Á meðan að far­ald­ur­inn geis­aði bætt­ust fleiri við, til dæmis Vinnu­mála­stofnun sem er með vef­lausn­ina í inn­leið­ing­ar­ferli hjá sér.

Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­ala er einnig að not­ast við Köru og segir Þorbjörg að það þyki henni sér­stak­lega vænt um, þar sem skjól­stæð­ing­arnir þar séu algjör­lega á heima­velli þegar kemur að notkun tækn­innar.

Eru að skoða hvaða erlendu markaðir passa

Kara Connect er á sínu fimmta starfs­ári, en árið 2015 hóf teymið sem stofn­aði fyr­ir­tækið að byggja öruggan hug­búnað fyrir við­kvæm sam­töl á milli sér­fræð­inga og skjól­stæð­inga þeirra. Þorbjörg segir að helj­ar­innar þró­un­ar­vinna með styrkjum frá bæði Tækni­þró­un­ar­sjóði og fag­fjár­festum liggi að baki vef­lausn­inni, sem fór fyrst í loftið í lok árs 2017. Í þeirri þró­un­ar­vinnu reynd­ist Tækni­þró­un­ar­sjóður öfl­ugur bak­hjarl.

Ákveðnum áfanga var svo náð hjá fyr­ir­tæk­inu síð­asta haust, þegar Kara Connect komst í gegnum síu land­lækn­is­emb­ætt­is­ins varð­andi örygg­is­mál, þar sem miklar kröfur eru gerðar. Svo miklar að fyr­ir­tækið hefur tek­ist á um það við land­lækn­is­emb­ættið um hvort að þær séu of miklar. En það hafð­ist.

„Síðan höfum við bara verið að kynna þetta fyrir sál­fræð­ingum, náms­ráð­gjöfum í skólum, sveit­ar­fé­lögum og tal­meina­fræð­ingum. Þetta er allt fólk sem vinnur öðru­vísi vinnu en læknar, þetta eru per­sónu­leg sam­skipti yfir lengri tíma, á meðan læknar hitta þig bara í fimm til tíu mín­útur. Við erum að ein­beita okkur að þessum stéttum, sem hitta skjól­stæð­inga sína reglu­lega,“ segir Þorbjörg.

Unnið hefur verið að því að byggja inn í for­ritið biðlista­kerfi, greiðslu­kerfi og yfir­sýn yfir sögu skjól­stæð­ings­ins, auk fjar­við­tals­þjón­ust­unnar. Kara Connect virkar því í dag í raun eins og raf­ræn skrif­stofa fyrir þá sem eru að vinna með við­kvæmar upp­lýs­ingar.

Þorbjörg segir Köru Connect ætla að nýta sér óvænta með­byr­inn sem far­ald­ur­inn veitti þeim til þess að reyna að vaxa hraðar en áætlað var. Áætlunin var alltaf að fara með vör­una til útlanda en það gæti verið tæki­færi núna til þess að sækja fyrr og hraðar inn á erlenda mark­aði en ef allt væri eðli­legt í heim­inum.

„Við fengum annan Tækni­þró­un­ar­sjóðs­styrk fyrir ára­mót og ætlum að nýta hann til þess að byggja aðeins hraðar upp. Þess vegna er ég komin til Dan­merkur og við erum að skoða fleiri mark­aði núna, hvaða mark­aðir passa. Skand­in­avar eru komnir svo­lítið langt í staf­rænu umhverfi, en þeir eru ekk­ert frekar en á Íslandi farnir að inn­leiða mjög mikið,“ segir Þorbjörg.

Ábending rit­stjóra: Til að gæta fulls gegn­sæis er rétt að nefna að Hall­björn Karlsson, eig­in­maður Þor­bjargar, er hlut­hafi í Kjarn­anum. Voga­bakki ehf., félag sem hann á helm­ing í, á 4,67 pró­sent hlut í útgáfu­fé­lagi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár