Heilablóðfall, dauði og lausaleikskrógi: Hvar er Vladimír Pútín?

Sögu­sagnir um hvar Vladimír Pútín sé nið­ur­kom­inn, hvernig heilsa hans sé og hvort að vald hans sé enn algert verða furðu­legri og furðu­legri. Pútín hefur ekki sést opin­ber­lega frá 5. mars síð­ast­liðnum og þegar hann aflýsti opin­berri heim­sókn sinni til Astana, höf­uð­borgar Kasakstan, fóru af stað háværar sögu­sagnir um að Rúss­lands­for­seti hefði fengið heila­blóð­fall.

Þær voru bornar til baka en skömmu síðar bár­ust fréttir af því að Pútín væri dauður. Þær voru líka bornar til baka og þá spruttu upp fréttir í fjöl­miðlum víða um heim um að Pútín væri í raun í Sviss til að taka á móti barni sem hann sé að eign­ast í lausa­leik með einni af ást­konum sínum, en Pútín skildi við Lyudmilu, eig­in­konu sína til tæp­lega þriggja ára­tuga, í fyrra.

[caption id="attachment_14854" align="alignnone" width="1024"] Pútín hefur lagt mikið upp úr því að sýna fram á lík­am­legt hreysti. Hann lætur til dæmis ítrekað mynda sig beran á ofan og við að ástunda ýmis konar hættu­legar jaðar­í­þróttir eða veiðar.[/caption]

Pútín hefur lagt mikið upp úr því að sýna fram á líkamlegt hreysti. Hann lætur til dæmis ítrekað mynda sig beran á ofan og við að ástunda ýmis konar hættulegar jaðaríþróttir eða veiðar.
Pútín hefur lagt mikið upp úr því að sýna fram á lík­am­legt hreysti. Hann lætur til dæmis ítrekað mynda sig beran á ofan og við að ástunda ýmis konar hættu­legar jaðar­í­þróttir eða veiðar.

Sú saga sem er líf­seig­ust er samt sú að ástæða þess að Pútín sést ekki opin­ber­lega sé sú að harð­vítug átök séu á meðal valda­el­ít­unnar í Kreml á bak­við tjöldin, og að þar séu öfl sem vilji svipta Pútín völdum.

Kreml hefur reynt að bregð­ast við með því að birta myndir af Pútín og mynd­band fór í umferð á föstu­dag sem átti að sýna hann á „týnda tíma­bil­inu“. Þá segir for­seti Armeníu að hann hafi rætt við Pútín í síma í síð­ustu viku. Það að Pútín hringi í fólk afsannar hins vegar bara það að hann sé dauður og mynd­irnar og mynd­bandið hefðu getað verið tekin upp hvenær sem er.

Auk þess vakti það mikla athygli þegar Andrey Ill­ar­inov, fyrrum efna­hags­ráð­gjafi Pútíns, skrif­aði blogg­færslu um það að hin langa fjar­vera Pútíns benti til þess að valda­rán hefði verið framið.

Pólitískt valdarán ólíklegt


Náið hefur verið fylgst með mál­inu hjá Business Insider. Í nýj­ustu grein­ing­unni sem birt­ist þar skrifar Mark Galeotti, sem heldur úti virtu bloggi um rúss­nesk örygg­is­mál, að hann sé ekki sann­færður um að valda­rán standi yfir. Galeotti segir það lík­legra en ekki að Pútín verði ein­hvern tím­ann steypt af stóli, enda ólík­legt að hann hætti nokkru sinni sjálf­vilj­ugur nema heilsan taki í taumanna. Hann telur þann tíma þó ekki kom­inn, enda fjarri því að sú ein­ing sé til staðar á meðal valda­hópanna sem standa að baki Pútín um að tími hans sé lið­inn. Ástandið í Rúss­landi þurfi að versna til muna, og hald­ast þannig í lengri tíma, svo að póli­tískt valda­rán geti orðið raun­veru­legur val­kostur.

Galeotti úti­lokar líka valda­rán hers­ins og byggir það á því hvernig her­inn hélt sig til baka í valdarán­unum 1991 og 1993. Auk þess telur hann að Sergey Shoigu, yfir­maður rúss­neska hers­ins, sé ekki ein­hvers­konar blóð­ugur ævin­týra­maður sem sé lík­legur til að rísa upp gegn for­seta sínum.

Staðan fer hratt versnandi


Staðan í Rúss­landi hefur vissu­lega versnað und­an­farin miss­eri, eftir mik­inn efna­hags­legan vöxt árin á undan. Það hefur hins vegar ekki farið fram­hjá neinum að mis­skipt­ing þess auðs sem Rússland hefur sankað að sér er gríð­ar­leg. Margir hafa hagn­ast með þeim hætti að þeir gætu aldrei eytt öllum pen­ing­unum sínum þótt þeir myndu lifa hund­rað sinnum heila ævi. Flestir íbúar Rúss­lands hafa það hins vegar enn ekk­ert sér­stak­lega gott, einkum ef lífs­gæðin eru borin saman við það sem þykir normið í Vestur-Evrópu.

[quote font="0" align="right"]Það hefur samt ekki fjarað meira undan valdi Pútíns en svo að Forbes útnefndi hann sem valda­mesta mann heims í lok síð­asta árs. Það var annað árið í röð sem Pútín sat í efsta sæti list­ans[/quote]

Það hefur samt ekki fjarað meira undan valdi Pútíns en svo að Forbes útnefndi hann sem valda­mesta mann heims í lok síð­asta árs. Það var annað árið í röð sem Pútín sat í efsta sæti list­ans, en Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, sat í næsta sæti fyrir neðan hann. Að mati Forbes hefur Pútín gríð­ar­lega mikil völd og áhrif í heim­inum í dag, ekki síst í gegnum opin­bera orku­stefnu rík­is­stjórnar hans sem hefur áhrif um alla Evrópu, til Asíu og þannig á heims­búa­skap­inn allan. Þá hafi hann einnig sýnt ótta­leysi í sam­skiptum við Banda­ríkin.

Snýst alltaf um efnahagsmálin


Í styrk­leikum Pútín, alræð­istil­burðum hans og orku­stefnu­unni, liggja líka veik­leikar hans. Stríðið í Úkraínu hefur skaðað Rússa á alþjóða­vísu og lík­ast til valdið land­inu mun fleiri erf­ið­leikum en ávinn­ingum. Morðið á stjórn­ar­and­stæð­ingnum stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov, sem Pútín ákvað að stýra rann­sókn á sjálfur, hefur líka ýtt undir öldu óánægju bæði á meðal almenn­ings og innan valda­hópa í stjórn­mála­legu bak­landi Pútín. Reuters greindi til að mynda frá því á fimmtu­dag að morðið hefði leitt af sér sjald­séða spennu milli ýmissa hópa innan stjórn­kerfis Rúss­lands sem vana­lega standa fast á bak við Pútín.

[caption id="attachment_22211" align="alignnone" width="599"] Morðið á Boris Nemtsov hefur vakið upp mikla úlfúð hjá almenn­ingi og valda­hópum í Kreml.[/caption]

Morðið á Boris Nemtsov hefur vakið upp mikla úlfúð hjá almenningi og valdahópum í Kreml.
Morðið á Boris Nemtsov hefur vakið upp mikla úlfúð hjá almenn­ingi og valda­hópum í Kreml.

En það eru efna­hags­mál sem eru lík­leg­ust til að fella Pútín. Hríð­fallandi verð á olíu og gasi, en útflutn­ingur á slíkri orku er uppi­staðan í rúss­neska rík­is­rekstr­inum, hefur sett allt á hlið­ina í Rúss­landi. Í byrjun þessa mán­aðar und­ir­rit­aði Pútín þrjár laga­breyt­ingar sem gera það að meðal ann­ars að verkum að laun rík­is­starfs­manna verða lækkuð frá og með 1. maí næst­kom­andi. Pútín og Dmitri Medvedev for­sæt­is­ráð­herra ætla að leiða með for­dæmi og taka á sig tíu pró­sent launa­lækk­anir.

Til við­bótar ætla rúss­nesk stjórn­völd að fækka rík­is­starfs­mönnum um fimm til 20 pró­sent.

Seilast í varasjóði


Aðgerð­irnar eru hluti af víð­fermum neyð­ar­að­gerðum sem rúss­nesk stjórn­völd hafa gripið til vegna þess mikla tekju­sam­dráttar sem lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu hefur valdið land­inu. Hver tunna af olíu er nú að selj­ast á um 45 dali en fjár­lög rúss­neska rík­is­ins mið­uðu við að tunnan væri að selj­ast á um 100 dali. Þar sem olíu­út­flutn­ingur skiptir ríkið öllu máli er ljóst að risa­stórt gat er að mynd­ast í fjár­lögum árs­ins 2015.

[quote font="0" align="right"]Hver tunna af olíu er nú að selj­ast á um 45 dali en fjár­lög rúss­neska rík­is­ins mið­uðu við að tunnan væri að selj­ast á um 100 dali. Þar sem olíu­út­flutn­ingur skiptir ríkið öllu máli er ljóst að risa­stórt gat er að mynd­ast í fjár­lögum árs­ins 2015.[/quote]

Þessar fréttir bár­ust skömmu eftir að Anton Siluanov, fjár­mála­ráð­herra Rúss­lands, bað rúss­neska þingið um að fá aðgang að um 34 millj­örðum punda, um 7.000 millj­örðum króna, sem geymdir eru í vara­sjóði sem Rússland á til að fár­magna áætlun sína sem á að vinna gegn kreppu­á­hrifum. Upphæðin nemur um helm­ingi allra eigna sjóðs­ins.

Verð­bólga mæld­ist 16,7 pró­sent í Rúss­landi í febr­úar og spár Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins gera ráð fyrir að efna­hagur lands­ins drag­ist saman um þrjú pró­sent á þessu ári og eitt pró­sent til við­bótar á því næsta.

Þessar spár gera hins vegar ráð fyrir því að ástandið í Úkraínu muni lag­ast á næstu miss­erum. Það er alls ójóst að það ástand muni lag­ast og því enn tölu­verðar líkur á að sam­drátt­ur­inn í Rúss­landi verði meiri.

Ef Pútín er á lífi þá stendur hann frammi fyrir miklum vanda


Hvar sem Pútín er og hvert sem lík­am­legt ástand hann er þá er aug­ljóst að hann stendur frammi fyrir miklum vanda. Ef sögu­sagnir um yfir­stand­andi valda­ráð reyn­ast rangar, og Pútín mætir aftur í kast­ljós fjöl­miðla í næstu viku, þá mun slíkt ein­ungis slá á vanga­veltur um fram­tíð hans til skamms tíma. Áfram­hald­andi órói í Úkraínu og hið sífellt versn­andi efna­hags­á­stand mun halda honum veru­lega við efnið og auka þrýst­ing á þennan valda­mesta mann heims.

Seinni hluta apríl, skömmu áður en launa­lækk­anir opin­berra starfs­manna taka gildi, er síðan vænt­an­leg skýrsla sem hinn myrti Boris Nemtsov skrif­aði um ástandið í Úkraínu. Innihald hennar gæti orðið eld­fimt, ef Kreml hefur ekki kom­ist í hana eftir dauða Nemtsov til að „hreinsa“ frá­sögn­ina.

Og þá gætu þyrn­irnir þrír í síðu Pútíns: Úkraína, Nemtsov og efna­hags­á­standið, saman myndað neista sem gæti kveikt nýtt bál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár