Félag Þorsteins Más og Helgu á 61,7 milljarða króna í hreinum eignum

Eign­ar­halds­fé­lag sem heldur utan um hlut for­stjóra Samherja og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans í Samherja Holding á að uppi­stöðu tvær eignir: hlut­inn í áður­nefndu félagi og lán upp á 33,5 millj­arða króna sem þau veittu börnum sínum.

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf., sem heldur utan um 43,48 pró­sent eign fyrr­ver­andi hjón­anna Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Helgu S. Guð­munds­dóttur í Samherja Holding ehf., átti hreina bók­færða eign upp á 61,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót.

Hagnaður félags­ins á því ári, sem var að nán­ast öllu leyti til­kom­inn vegna áhrifa hlut­deild­ar­fé­lags­ins Samherja Holding, var 1.140 millj­ónir króna. Hlut­ur­inn í Samherja Holding var bók­færður á 25,7 millj­arða króna sem þýðir að heild­ar­virði félags­ins ætti sam­kvæmt því að vera um 59 millj­arðar króna.

Aðrar eignir Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins voru að uppi­stöðu lán til tengdra aðila, tveggja barna eig­end­anna, upp á 33,5 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi félags­ins. Það skipti um upp­gjörs­mynt í fyrra og gerir nú upp í evrum í stað íslenskra króna.

Í lögreglurannsókn

Sam­herji Holding er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins. Eigið fé Sam­herja Holding var rúm­lega 58 millj­arðar króna í lok árs 2018, sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi sem félagið hefur birt. Það virð­ist að mestu óbreytt miðað við nýbirtan árs­reikn­ing ann­ars stærsta eig­enda þess.

Félagið heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, en umfangs­mikil rann­sókn hófst á henni á árinu 2019, eftir opin­berun fjöl­miðla á starfs­háttum Sam­herja í Namib­íu. Grunur er um mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Málið er til rann­sóknar hér­lendis hjá bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum auk þess sem ákært hefur verið í því í Namib­íu.

Á árinu 2018 gerð­ist það að Sam­herja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017.

Eftir það er þorri inn­­­­­lendrar starf­­­sem­i Sam­herja og starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­sem­i og hluti af fjár­­­fest­ing­­ar­­starf­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf.

Sam­herji Holding er að uppi­stöðu í eigu Þor­steins Más, Helgu og Krist­jáns Vil­helms­son­ar, útgerð­ar­stjóra Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Inni í þeim hluta starf­sem­innar eru eign­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­ur­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­mun­ir, meðal ann­ars 34,22 pró­sent hlutur í Eim­skip, sem hefur rúm­lega tvö­fald­ast í virði síð­ast­liðið ár.

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, hafi verið falið að leiða útgerð­ar­starf­semi Sam­herja í Evr­ópu, sem fer fram í gegnum Sam­herja Holding.

Samherjasamstæðunni var skipt upp í tvö félög fyrir nokkrum árum síðan. Félag Þorsteins Más og Helgu á nú einungis hlut í félaginu sem heldur utan um erlenda starfsemi og eignarhlutinn í Eimskip.
Sam­herj­a­sam­stæð­unni var skipt upp í tvö félög fyrir nokkrum árum síðan. Félag Þor­steins Más og Helgu á nú ein­ungis hlut í félag­inu sem heldur utan um erlenda starf­semi og eign­ar­hlut­inn í Eimskip.

Inni í þeim hluta er líka fjár­­­fest­inga­­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­­ur­­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­­festi á Kýp­­ur. Þau félög héldu meðal ann­­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­­íu, þar sem sam­­stæðan og stjórn­­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­­ast yfir ódýran kvóta.

Eitt stærsta fyrirtæki landsins skilar ekki ársreikningi

Samherji Holding hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi til árs­reikn­inga­skrár Skatts­ins vegna áranna 2019 og 2020. Karl Eskil Páls­son, upp­lýs­inga­full­trúi Sam­herja, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í sept­em­ber síð­ast­liðnum að vinna við árs­reikn­ing vegna árs­ins 2019 væri á loka­metr­unum og hann yrði til­bú­inn „innan tíð­ar“.

Ýmsar sam­verk­andi ástæður væru fyrir því að skil á reikn­ingn­um, sem átti sam­kvæmt lögum að vera skilað inn til árs­reikn­inga­skrár fyrir lok ágúst í fyrra, hefðu taf­ist og Karl Eskill nefndi þar sér­stak­lega að Sam­herji Holding hafi tekið þá ákvörðun að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki. Það hafi þýtt tafir á gerð árs­reikn­ings. „Aðrar ástæður eru létt­væg­ari en skipta þó máli til dæmis ferða­tak­mark­anir vegna Covid-19, sum­ar­leyfi og þess hátt­ar.“

Frestur fyr­ir­tækja af þeirri stærð­argráðu sem Samherji Holding er til að skila inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2020 rann út í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Ákvæði sem heim­ilar slit á félögum sem sinna ekki lög­­bund­inni skila­­skyldu á árs­­reikn­ingum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarn­inn greindi frá því í haust að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­­neyti sem stýrir mála­­flokkn­um,, sá hluti atvinn­u­­vega- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyt­is­ins sem heyrir undir Þór­­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­­ur, hafi ekki gefið út reglu­­gerð sem virkjar það.

Því hafði ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­­reikn­ingi að vettugi hafði fyrir vikið verið slit­ið.

Ákvæðið varð virkt 18. októ­ber 2021, eftir að reglu­gerðin var loks gefin út.

Kjarninn greindi frá því 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að árs­reikn­inga­skrá hefði þá enn sem komið er ekki kraf­ist skipta neinu félagi sem hefði ekki skilað árs­reikn­ingi innan lög­boð­ins frests.

Vildu viðhalda mikilvægum fjölskyldutengslum

Þann 15. maí 2020 birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már, Helga og Krist­ján væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Sam­herja hf. til barna sinna. Þau myndu hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eim­skip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í Sam­herja Holding.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að Bald­vin og Katla Þor­steins­börn myndu eign­ast 43 pró­sent í Sam­herja hf. Sam­hliða var greint frá því að Dagný Linda, Hall­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín, börn Krist­jáns Vil­helms­son­ar, myndu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­­sent hluta­fjár. Í til­kynn­ing­unni sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­­skyld­u­­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­­steinn í rekstr­in­­um.“ Þar kom einnig fram að und­ir­bún­ingur breyt­ing­anna á eign­ar­hald­inu hafi staðið und­an­farin tvö ár en áformin og fram­kvæmd þeirra voru form­lega kynnt í stjórn félags­ins á miðju ári 2019.

Í maí 2020, þegar Kjarn­inn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um með hvaða hætti fram­sal hluta­bréfa for­eldra til barna hefði átt sér stað, feng­ust þau svör hjá Björgólfi Jóhanns­syni, þá ann­ars for­stjóra Sam­herja, að ann­ars vegar hefðu börnin fengið fyr­ir­fram­greiddan arf, og hins vegar væri um sölu milli félaga að ræða.

Þorsteinn Már Baldvinsson og Baldvin Þorsteinsson.
Þor­steinn Már Bald­vins­son og Baldvin Þor­steins­son.

Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar hjá Sam­herja um virði þess hlutar sem til­kynnt var um að færður hefði verið á milli kyn­slóða né hvernig til­færsl­unni var skipt milli fyr­ir­fram­greidds arfs og sölu.

Skulda foreldrum sínum á fjórða tug milljarða

Í árs­reikn­ing Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins fyrir árið 2019 kemur hins vegar fram að bók­færður eign­ar­hlutur þess í Samherja hf. hafi farið úr 21,8 millj­örðum króna í um 550 millj­ónir króna.

Á sama tíma fór vaxta­ber­andi kröfur á tengda aðila úr því að vera engar í að vera 26,9 millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingi Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins fyrir árið 2020 er hlut­ur­inn í íslenska Samherja kom­inn í krónur núll. Lang­tíma­kröfur á tengda aðila eru hins vegar bók­færðar á 214 millj­ónir evra, eða um 33,5 millj­arða króna. Á meðal þeirra sem telj­ast sem tengdir aðilar eru nánir fjöl­skyldu­með­limir. Því er þarna um að ræða lán for­eldr­anna Þor­steins Más og Helgu til barna sinna, Baldvins og Kötlu.

Félag barn­anna, K&B ehf., hagn­að­ist um 20,8 millj­ónir evra, um 3,2 millj­arða króna, á síð­asta ári. Hrein eign félags­ins nam um 44,7 millj­ónum evra, um 6,9 millj­örðum króna, um síð­ustu ára­mót. Eignir félags­ins voru bók­færðar á tæp­lega 40 millj­arða króna en á móti þeim eignum eru skuldir upp á 33 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár