Mynd: Bára Huld Beck

Meirihlutinn í Reykjavíkurborg heldur og bætir við sig fylgi milli kosninga

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað mestu fylgi allra í Reykja­vík frá síð­ustu kosn­ingum en er samt stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni. Mið­flokk­ur­inn mælist vart lengur og Framsókn bætir lang­mest allra við sig.

Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn heldur með 49,8 pró­sent atkvæða sem myndi skila honum tólf borg­ar­full­trúum. Þetta er nið­ur­staða fyrstu kosn­inga­spár Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, sem fara fram 14, maí næst­kom­andi.

Það er nokkuð meira fylgi en flokk­arnir fjórir sem mynda meiri­hlut­ann: Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn, fengu í kosn­ing­unum 2018 þegar sam­an­lagt fylgi þeirra var 46,4 pró­sent. Fylg­is­aukn­ing upp á 3,4 pró­sentu­stig milli kosn­inga skilar meiri­hluta­flokk­unum þó enn sama fjölda borg­ar­full­trúa, eða tólf af 23.

Sam­fylk­ingin mælist stærst meiri­hluta­flokk­anna með 23 pró­sent fylgi. Það er 2,9 pró­sentu­stigi minna en hún fékk í kosn­ing­unum 2018 og borg­ar­full­trúum hennar myndi að óbreyttu fækka úr sjö í sex. Fimm efstu á lista Sam­fylk­ing­ar­innar eru þegar borg­ar­full­trúar þannig að eini nýlið­inn sem myndi setj­ast í borg­ar­stjórn úr flokknum er Guðný Maja Riba, sem situr í sjötta sæti list­ans. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri er sem fyrr odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík.

Píratar taka mann­inn sem Sam­fylk­ingin missir og fá þrjá borg­ar­full­trúa, en fylgi þeirra mælist nú 13,0 pró­sent sem er heilum 5,3 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu 2018. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir er áfram odd­viti Pírata líkt og í síð­ustu kosn­ingum og borg­ar­full­trú­inn Alex­andra Briem er í öðru sæti list­ans. Miðað við stöðu mála í kosn­inga­spánni myndi Magnús Davíð Norðdahl lög­fræð­ingur kom­ast nýr í borg­ar­stjórn fyrir flokk­inn.

Viðreisn myndi tapa einu pró­sentu­stigi frá síð­ustu kosn­ingum og fá 7,2 pró­sent atkvæða, sem myndi þýða að þau Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir og Pawel Bartoszek sætu áfram í borg­ar­stjórn.

Vinstri græn biðu afhroð í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018, fengu aðeins 2.700 atkvæði eða 4,7 pró­sent allra greiddra. Flokk­ur­inn er aðeins hress­ari nú en þá sam­kvæmt kosn­inga­spánni og mælist með 6,6 pró­sent atkvæða. Það dugar samt sem áður ekki til ann­ars en að halda eina borg­ar­full­trúa Vinstri grænna, Líf Magneu­dóttur, áfram í borg­ar­stjórn.

Framsókn á flugi en Miðflokkurinn nánast horfinn

Sá flokkur sem bætir við sig mestu fylgi í borg­inni frá síð­ustu kosn­ingum heitir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann mælist nú með 11,7 pró­sent fylgi en fékk 3,2 pró­sent 2018 og náði þá ekki inn manni. Framsókn teflir fram nýjum þekktum odd­vita, Einari Þor­steins­syni fyrr­ver­andi frétta­manni, og hann myndi setj­ast nokkuð örugg­lega í borg­ar­stjórn ásamt Árelíu Eydísi Guð­munds­dótt­ur, dós­ent við Háskóla Íslands og rit­höf­und­i, sem skipar annað sæt­ið á lista flokks­ins, og Magneu Gná Jóhanns­dótt­ur laga­nema sem situr í því þriðja.

Einar Þorsteinsson hefur fært sig um set úr Kastljósi í borgarmálin og ætlar sér að leiða Framsóknarflokkinn til áhrifa í Reykjavík að nýju.
Einar Þor­steins­son hefur fært sig um set úr Kast­ljósi í borg­ar­málin og ætlar sér að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn til áhrifa í Reykja­vík að nýju.

Sá flokkur sem tapar mestu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en hann mælist nú með 25,1 pró­sent stuðn­ing sem er 5,7 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk fyrir fjórum árum. Borg­ar­full­trú­unum myndi fækka um tvo í sex en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði þó áfram stærsti flokk­ur­inn í borg­inni. Auk Hildar Björns­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins, myndu tveir sitj­andi og einn fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi ná inn ásamt vara­borg­ar­full­trú­anum Ragn­hildi Öldu Vil­hjálms­dóttur og vara­þing­mann­inum Friðjóni R. Frið­jóns­syni.

Sós­í­alista­flokkur Íslands bætir lít­il­lega við sig milli kosn­inga sam­kvæmt kosn­inga­spánni og fengi sjö pró­sent atkvæða. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, eini borg­ar­full­trúi flokks­ins, hefur gefið það út að hún vilji áfram leiða hann í kom­andi kosn­ingum og búist er við því að svo verði. Sanna yrði áfram eini borg­ar­full­trúi flokks­ins að óbreyttu.

Flokkur fólks­ins stendur nán­ast í stað milli kosn­inga og mælist með 4,5 pró­sent. Kolbrún Bald­urs­dóttir er odd­viti flokks­ins í dag og eini borg­ar­full­trúi hans. Hún mun leiða Flokk fólks­ins í Reykja­vík áfram.

Mið­flokk­ur­inn hverfur hins vegar af sjón­ar­sviði borg­ar­stjórnar að óbreyttu. Fylgi hans mælist nú 1,7 pró­sent en flokk­ur­inn fékk 6,1 pró­sent fyrir fjórum árum sem skil­aði Vigdís Hauks­dóttur í borg­ar­stjórn. Vigdís til­kynnti í síð­asta mán­uði að hún fari ekki aftur fram. Ómar Már Jónsson greindi í kjöl­farið frá því að hann sækt­ist eftir odd­vita­sæt­inu en heim­ildir Kjarnans herma að brös­ug­lega hafi gengið að manna önnur þeirra 46 sæta sem þarf að manna til að vera með kjör­gengan lista. Flokk­ur­inn hefur út vik­una til að ganga frá því.

Góðar líkur á meirihluta með Samfylkingu og Pírötum

Samkvæmt útreikn­ingum kosn­inga­spár­innar eru 52 pró­sent líkur á því að núver­andi meiri­hluti haldi velli og nái að minnsta kosti þeim tólf sætum sem þarf til að stjórna borg­inni. Lík­urn­arnar á því að Fram­sókn­ar­flokkur, Sjálf­stæð­is­flokkur og Viðreisn gætu myndað meiri­hluta að óbreyttu eru 23 pró­sent og lík­urnar á því að tveir fyrr­nefndu flokk­arnir gætu náð tólf borg­ar­full­trúum án Við­reisnar eru ein­ungis þrjú pró­sent.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík. Flokkur hennar mun bæta verulega við sig fylgi milli kosninga samkvæmt kosningaspánni.
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í Reykja­vík. Flokkur hennar mun bæta veru­lega við sig fylgi milli kosn­inga sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Ef vilji er til þess að styrkja meiri­hluta­sam­starfið með því að taka Fram­sókn­ar­flokk­inn inn í stað Við­reisnar eru 81 pró­sent líkur á að slíkur meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Pírata, Fram­sóknar og Vinstri grænna næði meiri­hluta borg­ar­full­trúa. Ef Vinstri grænum yrði skipt út fyrir Viðreisn í þeirri jöfnu eru lík­urnar á meiri­hluta enn meiri, en slíkur meiri­hluti hefði 14 borg­ar­full­trúa miðað við nýj­ustu kosn­inga­spánna.

Framsókn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Flokkur fólks­ins eiga hins vegar litla mögu­leika á því að ná saman völdum í höf­uð­borg­inni. Líkurnar á því að þeir þrír flokkar nái að minnsta kosti tólf sætum eru sem stendur ein­ungis ell­efu pró­sent.

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Athuga­semd rit­stjórnar:

Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð. Fyrir mis­tök voru birtar rangar tölur um fylgi Pírata og það sagt 14,2 pró­sent þegar hið rétta er að það mælist 13 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár