Þórdís Lóa sigraði í fyrsta prófkjöri Viðreisnar – Þórdís Jóna hafnaði í 3. sæti

Nið­ur­stöður í fyrsta próf­kjöri Við­reisnar liggja fyrir. Sitjandi borg­ar­full­trúar höfn­uðu í tveimur efstu sæt­unum en Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir, sem sótt­ist eftir að leiða flokk­inn, varð í þriðja sæti.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sigraði í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn heldur prófkjör.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir sigr­aði í próf­kjöri Við­reisnar í Reykja­vík. Þetta er í fyrsta sinn sem flokk­ur­inn heldur próf­kjör. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík, sigr­aði í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík. Nafna hennar, Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir, sem einnig sótt­ist eftir að leiða flokk­inn, hafn­aði í þriðja sæti.

Sjö voru í fram­boði í þessu fyrsta próf­kjöri Við­reisnar og kosið var um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins. Próf­kjörið hófst í gær og lauk síð­degis í dag. 1.939 voru á kjör­skrá en eins og Kjarninn greindi frá í vik­unni hefur flokks­fé­lögum í Reykja­vík einni og sér fjölgað um 600-700 manns í aðdrag­anda próf­kjörs­ins. Alls bár­ust 1.182 atkvæði og kjör­sókn var því 60,9 pró­sent. Fjögur atkvæði voru auð en ekk­ert ógilt.

Þórdís Lóa hlaut 575 atkvæði í 1. sæti. Pawel Bartoszek borg­ar­full­trúi hafn­aði í 2. sæti með 799 atkvæði í 1.-2. sæti. Þórdís Jóna varð í 3. sæti með 646 atkvæði í 1.-3. sæti. Vara­borg­ar­full­trú­inn Diljá Ámunda­dóttir Zoega hafn­aði í 4. sæti með 885 atkvæði í 1.-4. sæti en hún sótt­ist eftir þriðja sæti.

Pawel gaf einn kost á sér í 2. sæti en auk Diljár sótt­ist Geir Finnsson um þriðja sæti list­ans. Þá ósk­uðu Erlingur Sig­valda­son og Anna Kristín Jens­dóttir eftir stuðn­ingi í 3.-4. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins.

Uppstillingarnefnd mun stilla upp lista í samræmi við reglur

Úrslit próf­kjörs­ins hafa verið afhent upp­still­ing­ar­nefnd sem síðan mun stilla upp lista í sam­ræmi við reglur Við­reisnar, til að mynda varð­andi kynja­hlut­föll.

Við­reisn bauð fyrst fram til sveit­ar­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík­ur­borg og tvo borg­ar­full­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­um.

Sam­kvæmt könn­un­ um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar, mæld­ist Við­reisn ögn undir kjör­fylgi sínu og var eini flokk­ur­inn í núver­andi meiri­hluta sem það gerði. Flokk­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­senta fylgi í könnun Mask­ínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­ar­full­trúa kjör­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár