Ómar Már Jónsson sækist eftir að leiða Miðflokkinn í borginni

„Það er svo margt sem má bæta hér í borg­inni okkar og því gat ég ekki hugsað mér að sleppa tæki­fær­inu þegar kallið kom,“ segir Ómar Már í yfir­lýs­ingu.

Ómar Már Jónsson
Ómar Már Jónsson Mynd: Aðsend mynd

Ómar Már Jónsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur og stefnir hann á fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ómari Má sem hann setti á Facebook-síðu sína í gær.

Vig­dís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins greindi frá því í fyrra­dag að hún hefði ákveðið að sækj­ast ekki eftir að leiða flokk­inn í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor sem fara fram þann 14. maí.

„Málefni sveit­ar­stjórna eru mér ekki ókunn eftir að hafa starfað sem sveit­ar­stjóri Súða­vík­ur­hrepps um ára­bil. Þá var ég í 4. sæti á lista fram­boðs Mið­flokks­ins í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum hér í Reykja­vík. Stjórn­mál eru því stór hluti af lífi mínu þó ég hafi seinni ár helgað mig fyr­ir­tækja­rekstri mínum.

Það hefur verið nokkur aðdrag­andi að þess­ari ákvörðun minni eða allt síðan Vigdís Hauks­dóttir, hin skel­eggi borg­ar­stjórn­ar­full­trúi flokks­ins, ákvað að draga sig í hlé. Óhætt er að segja að fáir eða engir hafi haldið úti jafn kröft­ugri stjórn­ar­and­stöðu og Vigdís og við Mið­flokks­menn þökkum henni störfin. En nú er komið að öðrum að halda uppi merki flokks­ins og stefnu,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni.

Margt sem bæta má í borginni

Segist Ómar Már enn­fremur brenna fyrir mál­efnum borg­ar­innar þar sem hann býr nú ásamt fjöl­skyldu sinni og rekur fyr­ir­tæki þar.

„Það er svo margt sem má bæta hér í borg­inni okkar og því gat ég ekki hugsað mér að sleppa tæki­fær­inu þegar kallið kom. Eftir sam­ráð við fjöl­skyldu mína hef ég ákveðið að hella mér út í það verk­efni að leiða lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík.

Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið mig þá er ég bor­inn og barn­fæddur Vest­firð­ingur. Bjó í Súðavík þar til ég flutti til Reykja­víkur árið 1986 til að fara í Stýri­manna­skól­ann og þaðan lá leiðin í Tækni­skóla Íslands. Eftir útskrift, bjó ég og starf­aði í Reykja­vík þar til ég flutti til Súða­víkur árið 2002, til að taka við starfi sveit­ar­stjóra Súða­vík­ur­hrepps,“ segir hann.

Gera þarf gagngerar breytingar á rekstri borgarinnar

Ómar Már starf­aði sem sveit­ar­stjóri Súða­vík­ur­hrepps frá októ­ber 2002 og sat jafn­framt í sveit­ar­stjórn frá árinu 2006 fyrir hönd L-list­ans. Við náðum gríð­ar­legum árangri við upp­bygg­ingu Súða­vík­ur­hrepps eftir það mikla högg sem sam­fé­lagið varð fyrir í kjöl­far hörmu­legra snjó­flóða. Segja má að þessu upp­bygg­inga­starfi með áherslu á atvinnu­mál og ferða­þjón­ustu hafi verið lokið árið 2014 og þá ákvað ég að hætta afskiptum af sveit­ar­stjórn­ar­málum þar og flytja til Reykja­víkur þar sem ég hóf fyr­ir­tækja­rekstur. Þessi tólf ár í sveita­stjórn­ar­málum voru krefj­andi og skemmti­leg. Ég naut þess að kynn­ast og starfa með frá­bæru fólki og eign­ast góða félaga. Um leið fékk ég mikla inn­sýn í sveita­stjórn­ar­mál á lands­s­vísu og kynnt­ist mörgu góðu fólki þar.

Það er mikil áskorun að koma inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur á þessum tíma­mótum. Aug­ljós­lega þarf að gera gagn­gerar breyt­ingar á rekstri borg­ar­innar og ná tökum á fjár­málum hennar. Um leið þarf að styrkja þjón­ustu við íbúa hennar og ráð­ast í öll þau brýnu verk­efni sem hafa setið á hak­anum. Ég mun nú næstu vikur kynna fyrir ykkur hvar mínar mál­efna­legu áherslur liggja,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár