Vigdís Hauksdóttir ætlar ekki að bjóða sig fram fyrir komandi kosningar í Reykjavík

Borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins segir að síð­asta kjör­tíma­bil hafi verið mjög krefj­andi póli­tískt séð og metur það sem svo að gagn­rýni hennar á rekstur borg­ar­innar með til­lögum til úrbóta fái ekki hljóm­grunn að kosn­ingum loknum.

Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins.
Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins. Mynd: Anton Brink

Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins hefur ákveðið að sækj­ast ekki eftir að leiða flokk­inn í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor.

Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni í dag.

Mið­flokk­ur­inn fékk 3.615 atkvæði í síð­ustu kosn­ingum árið 2018 eða 6,1 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn fékk þar af leið­andi einn full­trúa í borg­ar­stjórn. Kosn­ing­arnar í vor munu fara fram þann 14. maí.

Sér ekki fyrir sér að nokkuð breytist á næsta kjörtímabili

Vigdís segir að ástæð­urnar fyrir þess­ari ákvörðun séu margar. Í fyrsta lagi hafi kjör­tíma­bilið verið mjög krefj­andi póli­tískt séð. „Ég hef flett ofan af fjár­mála­sukki í fjölda mála­flokka í borg­ar­rekstr­inum án nokk­urra afleið­inga fyrir borg­ar­stjóra og meiri­hlut­ann,“ skrifar hún.

Í öðru lagi sé fjár­hags­staða Reykja­víkur komin langt yfir hættu­mörk. „Skuld­irnar eru stjarn­fræði­legar og áætlað er að þær verði 240 millj­arðar í árs­lok 2026. Þar af er búið að skuld­setja næsta kjör­tíma­bil upp á 92 millj­arða sam­kvæmt lán­töku­á­ætlun. Það er sér­lega ósvífið.“

Í þriðja lagi hafi við­hald skóla­hús­næðis verið ófull­nægj­andi og segir Vigdís að grunn­skóla­börn séu á hrak­hólum út um alla borg. „Ekki hefur verið staðið við upp­bygg­ingu leik­skóla og borg­inni er haldið í heima­til­búnum lóða­skorti sem leiðir til fast­eigna­verðs í hæstu hæðum.“

Í fjórða lagi segir hún að ekk­ert bendi annað til þess en að borg­ar­stjóri ætli sér að halda völdum „með ein­hverjum útfærslum að nýjum við­reistum meiri­hluta eins og í kosn­ing­unum 2014 og 2018“.

„Ég sé því ekki fyrir mér að nokkuð breyt­ist á næsta kjör­tíma­bili. Ég met það svo að gagn­rýni mín á rekstur borg­ar­innar með til­lögum til úrbóta fái ekki hljóm­grunn að kosn­ingum loknum,“ skrifar Vigdís í stöðu­upp­færslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár