Dóra Björt sigraði í prófkjöri Pírata í Reykjavík – Alexandra önnur

Núver­andi borg­ar­full­trúar Pírata höfn­uðu í tveimur efstu sæt­unum í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík, sem lauk í dag. Magnús Davíð Norðdahl og Kristinn Jón Ólafsson gætu orðið nýir borg­ar­full­trúar flokks­ins, m.v. nýj­ustu fylgiskönnun Maskínu.

Dóra Björt Guðjónsdóttir hlaut traust flokksfélaga sinna til að leiða Pírata að nýju til kosninga í Reykjavík.
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir hlaut traust flokks­fé­laga sinna til að leiða Pírata að nýju til kosn­inga í Reykja­vík. Mynd: Aðsend

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata í Reykja­vík mun leiða lista flokks­ins til kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Alex­andra Briem for­seti borg­ar­stjórnar hafn­aði í öðru sæti í próf­kjöri flokks­ins, sem lauk kl. 15 í dag. Greint er frá úrslit­unum á vef Pírata.

Í þriðja sæti próf­kjörs­ins hafn­aði Magnús Davíð Norðdahl og Kristinn Jón Ólafsson var í fjórða sæti. Þar á eftir koma þær Elísabet Guðrúnar- og Jóns­dóttir, Rannveig Ernu­dóttir, Oktavía Hrund Jóns og Olga Margrét Cilia, en alls röð­uð­ust 22 ein­stak­lingar á lista Pírata í próf­kjör­inu í Reykja­vík, sem hefur staðið yfir und­an­farna viku.

Píratar mæld­ust með tæp­lega 15 pró­senta fylgi, sem gæfi þeim fjóra borg­ar­full­trúa, í nýlegri könnun Maskínu fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík.

Auk Dóru Bjartar gáfu þau Rann­veig Ernu­dóttir og Atli Stefán Yngva­son kost á sér til þess að leiða list­ann, en nið­ur­staðan varð sú að þau Rannveig og Atli Stefán höfn­uðu í 6. og 11. sæti.

Ekki kemur fram á vef Pírata hversu margir greiddu atkvæði í próf­kjör­inu eða hvernig atkvæðin skipt­ust.

Sigurbjörg Erla leiðir áfram í Kópavogi

Próf­kjöri Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar í Kópavogi lauk einnig kl. 15 í dag. Þar hafn­aði bæj­ar­full­trúi flokks­ins, Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir í efsta sæt­inu. Indriði Ingi Stef­áns­son hafn­aði í öðru sæti.

Niðurstöður prófkjörsins í Reykjavík:

  1. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir
  2. Alex­andra Briem
  3. Magnús Davíð Norðdahl
  4. Kristinn Jón Ólafsson
  5. Elísabet Guðrúnar- og Jóns­dóttir
  6. Rannveig Ernu­dóttir
  7. Oktavía Hrund Jóns
  8. Olga Margrét Cilia
  9. Tinna Helga­dóttir
  10. Kjartan Jónsson
  11. Atli Stefán Yngvason
  12. Vignir Árnason
  13. Huginn Þór Jóhanns­son
  14. Sævar Ólafsson
  15. Elsa Nore
  16. Alex­andra Ford
  17. Unnar Þór Sæmunds­son
  18. Kristján Thors
  19. Haraldur Tristan Gunn­ars­son
  20. Stefán Örvar Sig­munds­son
  21. Jón Arnar Magn­ús­son
  22. Halldor Emil­i­u­son

[adspot]

Niðurstöður prófkjörsins í Kópavogi

  1. Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir
  2. Indriði Ingi Stef­áns­son
  3. Eva Sjöfn Helga­dóttir
  4. Matthías Hjart­ar­son
  5. Margrét Ásta Arn­ars­dóttir
  6. Árni Pétur Árnason
  7. Kjartan Sveinn Guð­munds­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár