Sjálfstæðisflokkur myndi tapa tveimur borgarfulltrúum samkvæmt nýrri könnun

Samkvæmt nýrri skoð­ana­könnun um fylgi flokka í Reykja­vík myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missa tvo borg­ar­full­trúa og ein­ungis fá tæp­lega 22 pró­sent atkvæða. Píratar myndu bæta við sig tveimur full­trúum sam­kvæmt könn­un­inni.

Langt er síðan könnun hefur birst um fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg. Sú sem birt var í kvöld sýnir töluverðar sviptingar.
Langt er síðan könnun hefur birst um fylgi flokk­anna í Reykja­vík­ur­borg. Sú sem birt var í kvöld sýnir tölu­verðar svipt­ingar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi missa tvo borg­ar­full­trúa, Viðreisn einn og Mið­flokk­ur­inn þurrkast út, sam­kvæmt fyrstu skoð­ana­könn­un­inni sem birt­ist í þeirri kosn­inga­bar­áttu sem nú er í start­hol­unum í Reykja­vík­ur­borg.

Samkvæmt könnun Maskínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis, sem birt var í kvöld, myndu Píratar hins vegar bæta við sig tveimur borg­ar­full­trúum, Vinstri græn einum og Framsókn myndi ná inn einum manni. Könnunin var fram­kvæmd í lok jan­úar og byrjun febr­úar, sam­kvæmt því sem segir í umfjöllun Vísis.

Samfylking stærst og Píratar bæta tveimur við sig

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 27,9 pró­sent fylgi og 7 borg­ar­full­trúa, rétt eins og í dag. Þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 21,9 pró­sent fylgi, sem er 9 pró­sentum undir kjör­fylgi flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Píratar mæl­ast á tölu­verðu skriði, mæl­ast með 14,8 pró­sent fylgi og myndu sam­kvæmt því bæta við sig tveimur borg­ar­full­trúum og fá fjóra menn kjörna. Allir aðrir flokkar mæl­ast undir tíu pró­sentum, en Vinstri græn mæl­ast með 8,5 pró­sent fylgi og myndi bæta við sig einum borg­ar­full­trúa.

Framsókn, sem á engan borg­ar­full­trúa í dag mælist svo með 6,5 pró­sent fylgi, Viðreisn 5,9 pró­sent, Sós­í­alista­flokk­ur­inn 5,5 pró­sent og Flokkur fólks­ins 5,4 pró­sent. Það myndi skila hverjum þess­ara flokka einum borg­ar­full­trúa.

Mið­flokk­ur­inn, sem boð­aði í vik­unni að hann myndi halda próf­kjör í Reykja­vík, mælist svo með 3,5 pró­senta fylgi sem myndi ekki duga til að fá mann kjör­inn inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, þar sem 23 kjörnir full­trúar eiga sæti.

Síðasta könnun í mars 2021

Í síð­ustu birtu könnun á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg, sem Gallup gerði og var birt 4. mars í fyrra, mæld­ist Sam­fylk­ingin rétt eins og nú með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mæld­ist þá með 26,4 pró­sent fylgi en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, mæld­ist með 25,2 pró­sent í mars í fyrra og dalar því enn síðan þá, sam­kvæmt þess­ari nýju könnun frá Maskínu.

Núver­andi leið­togi flokks­ins í borg­inni, Eyþórs Arnalds, sagði við Kjarnann fyrir nokkrum vikum síðan að hann teldi að flokk­ur­inn myndi bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum og verða sá langstærsti í Reykja­vík. Sagðist hann hafa „til­finn­ingu“ fyrir 35-36 pró­senta fylgi flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár