Stuðningur við ríkisstjórnina að þróast á sama hátt og stuðningur við síðustu ríkisstjórn gerði

Mikil lík­indi hafa verið með þróun á stuðn­ingi við sitj­andi rík­is­stjórn og þeirrar sem sat á undan henni. Báðar fengu meiri­hluta atkvæða í kosn­ingum (51,5 og 51,1 pró­sent), báðar nutu mik­ils stuðn­ings mán­uði eftir að þær tóku við (61 og 62,4 pró­sent), stuðn­ingur við báðar hafði tæp­lega helm­ing­ast á síð­ari hluta kjör­tíma­bils þeirra ( 33 og 35,4 pró­sent) og sam­an­lagt fylgi þeirra flokka sem mynd­uðu rík­i­s­tjórn 2009 og þeirra sem mynd­uðu hana 2013 er mjög svipað 18 mán­uðum áður en rík­is­stjórn­irnar tvær leggja verk sín í dóm kjós­enda ( 35,8 og 34,2 pró­sent).

Tiltektarríkisstjórnin sem missti tiltrú kjósenda

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók fyrst við völdum í febr­úar 2009, þá sem minni­hluta­stjórn sem sat með stuðn­ingi Fram­sókn­ar­flokks­ins fram að kosn­ingum. Þær fóru síðan fram 25. apríl 2009.

Í þeim kosn­ingum fékk Sam­fylk­ingin 29,8 pró­sent atkvæða og Vinstri græn 21,7 pró­sent. Samtals féllu því 51,5 pró­sent atkvæða flokk­unum tveimur í skaut.

Mánuði síðar, í maí 2009, mæld­ist stuðn­ingur við nýju rík­is­stjórn­ina hærri en hann átti nokkru sinni eftir að gera aftur, en þá sögð­ust 61 pró­sent lands­manna styðja hana. Eftir það dal­aði stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur hratt.

Í októ­ber 2011, þegar síð­ari hluti kjör­tíma­bils­ins var hafin, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 33 pró­sent. Fylgi flokk­anna hafði einnig dalað mikið frá kosn­ing­unum 2009. Á þessum tíma fyrir rúmum fjórum árum sögð­ust 21,3 pró­sent hafa hug á því að kjósa Sam­fylk­ing­una en 14,5 pró­sent Vinstri græn. Samtals var fylgi þeirra því 35,8 pró­sent.

Rík­is­stjórnin náði sér aldrei aftur á strik í könn­unum. Stuðn­ingur við hana hélst á svip­uðu reiki fram að kosn­ing­unum þann 27. apríl 2013. Í þeim var stjórn­ar­flokk­unum ræki­lega hafnað. Sam­fylk­ingin fékk ein­ungis 12,9 pró­sent atkvæða og Vinstri græn 10,9 pró­sent. Samtals töp­uðu flokk­arnir tveir 27,7 pró­sentu­stigum milli kosn­inga eftir að hafa stýrt land­inu í fjögur ár. Sem verður að telj­ast afhroð.

Sama þróun hjá sitjandi ríkisstjórn

Við tók rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn hafði fengið 26,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í apríl 2013 og sá síð­ar­nefndi, sem var óum­deil­an­lega sig­ur­veg­ari þeirra kosn­inga, 24,4 pró­sent. Samtals var fylgi nýju stjórn­ar­flokk­anna sem mynd­uðu rík­is­stjórn 51,1 pró­sent.

Og nýja rík­is­stjórnin var vin­sæl. Samkvæmt könnun Gallup frá því í maí 2013 studdu 62,4 pró­sent lands­manna rík­is­stjórn­ina mán­uði eftir að hún tók við völdum.

Síðan hefur fjarað nokkur fljótt undan þeim mikla stuðn­ingi. Í októ­ber síð­ast­liðnum, þegar stjórn­ar­tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar er rúm­lega hálfnuð, mælist stuðn­ingur við hana 35,4 pró­sent. Fylgi stjórn­ar­flokk­anna er heldur ekki upp á marga fiska. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 24,6 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 9,6 pró­sent. Samtals mælist fylgi þeirra 34,2 pró­sent, sem er 16,9 pró­sentu­stigum undir því sem þeir fengu í kosn­ing­unum 2013.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa þó um eitt og hálft ár til að snúa stöðu sinni við því næstu kosn­ingar eru áætl­aðar vorið 2017.

Stöðugleiki Pírata

Gallup birti nýja könnun á fylgi stjórn­mála­flokka í fyrra­dag. Þar kom í ljós að lítil hreyf­ing virð­ist vera á fylgi und­an­farna mán­uði. Píratar mæl­ast langstærsti flokkur lands­ins líkt og þeir hafa gert frá því í apríl. Fylgi flokks­ins hefur nú mælst yfir 30 pró­sent í sjö könn­unum Gallup í röð. Framan af snérist orð­ræða ann­arra stjórn­mála­flokka um mikið fylgi Pírata um að það hlyti að vera tíma­bundið. Sá tími virð­ist lið­inn.

Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar virð­ast eiga mjög erfitt upp­dráttar um þessar mundir. Sam­an­lagt fylgi Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar mælist 24,9 pró­sent. Þeir eru því að mæl­ast með sam­an­lagt svipað fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en 24,6 pró­sent aðspurðra segja að þeir myndu kjósa hann ef kosið yrði í dag.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist síðan með 9,6 pró­sent fylgi, sem er næst lægsta fylg­is­mæl­ing sem flokk­ur­inn hefur fengið á þessu kjör­tíma­bili. Eina skiptið sem fylgi Fram­sóknar hefur mælst lægra í könn­unum Gallup var í maí síð­ast­liðnum, þegar það mæld­ist 8,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár