Pólitísk ákvörðun að gefa fyrirtækjum betri meðferð en vinnandi fólki

Atvinnu­leys­is­bætur þurfa að hækka veru­lega, sam­kvæmt Eflingu, svo fólki sé ekki refsað fyrir að hafa verið rekið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Stjórn­völd ein­fald­lega skuldi vinnu­afl­inu sann­gjarna með­ferð.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Til að vinna gegn atvinnu­leysi þurfa stjórn­völd að skapa sam­fé­lags­lega mik­il­væg störf. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Eflingar í dag. Þar er bent á að fjölda fólks vanti í störf í heil­brigð­is­kerf­inu og umönn­un­ar­kerf­unum lands­ins og und­ir­bún­ingur fyrir sjálf­bært hag­kerfi þurfi ræki­legan stuðn­ing með mann­afls­frekum opin­berum fram­kvæmdum.

„Verka og lág­launa­fólk hefur á und­an­förum árum knúið áfram hjól atvinnu­lífs­ins með vinnu sinni. Það hefur staðið skil á sköttum og gjöldum. Krafan er sú að það njóti verndar rík­is­ins á þessum erf­iðu tímum. Stjórn­völd ein­fald­lega skulda vinnu­afl­inu sann­gjarna með­ferð.“

Áhættan við að veita björgunaraðgerðum gegnum stjórnir einkafyrirtækja mikil

Í færsl­unni segir að síðan kór­ónafar­ald­ur­inn lagð­ist yfir heims­byggð­ina hafi rík­is­stjórnir um allan heim gripið til björg­un­ar­að­gerða vegna með­fylgj­andi efna­hag­skreppu. Með björg­un­ar­pökkum og íhlutun seðla­banka hafi stjórn­völd úthlutað gríð­ar­legum fjár­munum. Margar þess­ara aðgerða hafi miðað að því að létta undir með fyr­ir­tækjum, nú síð­ast með upp­sagn­ar­styrkjum. Þá er bent á að tveimur klukku­stundum eftir að til­kynnt var um það úrræði hafi Icelandair fram­kvæmt stærstu fjölda­upp­sögn Íslands­sög­unnar, fjár­magn­aða af rík­inu.

„Áhættan við að veita björg­un­ar­að­gerðum gegnum stjórnir einka­fyr­ir­tækja er mikil. Hluta­bóta­leiðin, þar sem fyr­ir­tæki geta fært hluta launa­kostn­aðar á ríkið og lækkað starfs­hlut­fall á móti, hefur verið nýtt af stór­fyr­ir­tækjum jafn­vel í þann mund sem þau færa hund­ruð millj­óna til hlut­hafa gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup hluta­bréfa. Björg­un­ar­að­gerðir enda til jafns hjá þeim sem þurfa þær og þeim sem hafa nóg úr að moða. Risar á mark­aði, sem hafa árum saman barist gegn sann­gjörnum sköttum á arð­greiðslur gegnum sín hags­muna­sam­tök, við­halda þannig sam­keppn­is­for­skoti sínu með neyð­ar­að­stoð ætl­aðri öðrum,“ segir í færslu Eflingar.

Á meðan lýsi stjórn­ar­þing­menn því yfir við kosn­ingar um fjár­auka­lög að með þessum greiðslum séu vasarnir tómir og ekki til pen­ingar til að hækka atvinnu­leys­is­bætur. Öllum sé hins vegar ljóst að öll við­bót­ar­út­gjöld rík­is­ins nú um stundir eru fjár­mögnuð með lán­tökum. Pólitísk ákvörðun hafi verið tekin um að gefa fyr­ir­tækjum betri með­ferð en vinn­andi fólki.

Enn fremur segir að atvinnu­leys­is­bætur þurfi að hækka veru­lega, svo fólki sé ekki refsað fyrir að hafa verið rekið í kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Bótum hafi í áraraðir verið haldið lágum til að hrinda fólki út á vinnu­markað, en sú aðferð virkai­ekki þegar vinnu­mark­að­ur­inn losar sig við vinnu­afl í stórum stíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár