Aðalmeðferð í Marple-máli sérstaks saksóknara hefst á morgun

Aðal­með­ferð í Marple-mál­inu svo­kall­aða hefst í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á morgun, 7. sept­em­ber. Gert er ráð fyrir því að hún taki um tvær vikur. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir eru ákærð í mál­inu auk fimm félaga.

Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús er ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli er ákærður fyrir hylm­ingu. Málið snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki. Hin ákærðu eiga yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi verði þau fundin sek.

[caption id="attachment_9796" align="align­right" width="300"] Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings.[/caption]

Alls hefur emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara ákært þá Hreiðar Má og Magnús fjórum sinnum. Hreiðar Már hefur tví­vegis verið dæmdur sekur í málum gegn honum, þótt annað þeirra mála eigi enn eftir að fara fyrir Hæsta­rétt. Magnús hlaut dóm í Al Thani-mál­inu en var sýkn­aður í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu tengt Kaup­þingi fyrr á þessu ári. Báðir afplána þeir nú langa fang­els­is­dóma á Kvía­bryggju.

Upptöku krafist í ákæru


Í ákæru máls­ins kemur fram að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi lagt hald á sam­tals 47 millj­ónir evra, um 6,8 millj­arða króna, í tengslum við rann­sókn þess.

Í ákærunni kemur fram að fund­ist hafi umtals­verðir fjár­munir í ýmsum erlendum fjár­mála­stofn­unum sem skráðir voru í eigu Skúla Þor­valds­sonar eða félaga hans. Ýmist var um að ræða eigna­söfn eða inn­stæður. Eign­irnar voru frystar að beiðni emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara þann 3. júní 2011. Þegar eign­irnar voru síð­ast virtar var virði þeirra 46,7 millj­ónir evra, eða um 6,8 millj­arðar króna.

Í ákærunni er gerð krafa um að Skúla og félögum hans verði gert að sæta upp­töku á þessum eignum með vísan til 69. greinar almennra hegn­ing­ar­laga. Samkvæmt þeirri grein skal hið upp­tæka vera eign rík­is­sjóðs. Þar segir hins vegar einnig: „Hafi ein­hver beðið tjón við brotið, skal hann þó eiga for­gang til and­virð­is­ins, ef bætur fást ekki á annan hátt“. Þrotabú Kaup­þings er klár­lega sá aðili sem hefur beðið tjón vegna brots­ins. Þrota­búið hefur hins vegar enn ekki gert til­kall til fjár­mun­anna. Það getur gert slíkt hvenær sem er, meira að segja eftir að dómur er fall­inn í mál­inu, en þangað til verða fjár­mun­irnir í eigu rík­is­sjóðs ef fall­ist verður á upp­töku­kröfu sér­staks sak­sókn­ara.

Kaupþing gerir raunar kröfu á sak­born­ing­anna sjálfa í mál­inu. Búið fer fram á að Hreiðar Már, Magnús, Guðný og Skúli verði dæmd til að greiða því sam­tals um sex millj­arða króna, um 15,7 millj­ónir evra og tæp­lega 3,6 millj­ónir dala.

Milljarðar millifærðir á Skúla


Þótt Marple hafi verið í eigu Skúla þá var félagið með skráð aðsetur hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg, starfs­menn þess banka sátu í stjórnum þeirra félaga sem sátu í stjórn þess og Magnús Guð­munds­son, for­stjóri bank­ans, „hafði umsjón með Marple og ann­að­ist fjár­fest­ingar og fjár­sýslu fyrir hönd félags­ins,“ sam­kvæmt ákærunni. Þeim Hreiðari Má, Magnúsi og Guðnýju Örnu er gefið að hafa fært fjár­muni, um átta millj­arða króna, úr sjóðum Kaup­þings til Marple án þess að lög­mætar við­skipta­legar ástæður lægju þar að baki. Þetta bætti fjár­hags­stöðu Marple um sömu upp­hæð.

Í fyrsta kafla ákærunnar eru Hreiðar Már og Guðný Arna ákærð fyrir fjár­drátt en þeir Magnús fyrir hlut­deild í slíkum. Skúli er ákærður aðal­lega fyrir hylm­ingu en til vara fyrir pen­inga­þvætti. Málið snýst um milli­færslu á rúm­lega þremur millj­örðum króna af reikn­ingi Kaup­þings þann 17. des­em­ber 2007 inn á reikn­ing Kaupþing í Lúx­em­borg sem var síðan færð þann 28. des­em­ber inn á reikn­ing Marple Holding S.A. SPF, sem er í eigu Skúla Þor­valds­sonar.

Í öðrum kafla hennar eru sömu sakir settar fram gagn­vart sama fólk­inu. Nú snýst málið um tæp­lega 3,1 millj­arða króna milli­færslur sem fór sömu leið um mán­að­ar­mótin júní/júli 2008.

Í ákærunni segir: „Ákærðu klæddu ein­hliða fjár­muna­færslur í bún­ing tví­hliða við­skipta milli Kaup­þings hf. og Marple og sköl voru útbúin eftir á sem ætlað var að sýna fram á að við­skipti hefðu átt sér stað[…]Þau gögn sem ákærðu útbjuggu vegna hinna til­búnu við­skipta höfðu þann eina til­gang að leyna hinu rétta eðli fjár­muna­færsln­annaog fela þannig auðg­un­ar­brotin. Þrátt fyrir ítar­lega leit hafa samn­ingar, sem rétt­lætt gætu færsl­urnar, ekki fund­ist hjá Kaup­þingi“.

Gefið að hafa keypt skuldabréf lang yfir markaðsvirði


Í þriðja kafla ákærunnar er þeim Hreiðari Má og Guðnýju Örnu gefið af hafa framið umboðs­svik og Magnúsi gefið að hafa átt hlut­deild í slíkum vegna við­skipta sem áttu sér stað 20. maí 2008. Skúli er ákærður fyrir hylm­ingu og til vara fyrir pen­inga­þvætti. Í þessum hluta eiga Hreiðar Már og Guðný Arna að hafa átt að mis­nota aðstöðu sína með því að láta Kapuþing kaupa skulda­bréf útgefin af bank­anum sjálfum af Marple á nafn­verði bréf­anna að við­bættum áföllnum vöxtum fyrir um 57,5 millj­ónir evra og 45,4 millj­ónir dala. Samkvæmt ákæru var þetta kaup­verð „langt yfir mark­aðs­verði skulda­bréf­anna og ollu Kaup­þingi hf. með því fjár­tjóni“.

Í ákærunni segir að Magnús hafi, að und­ir­lagi Hreiðars Más, látið Kaupþing í Lúx­em­borg kaupa þessi sömu skulda­bréf með miklum afföllum í apríl og maí 2008 en selja þau síðan til Marple á sama verði og þau voru keypt. Þegar Kaupþing á Íslandi keypti svo skulda­bréfin aftur nokkrum dögum síðar sat mis­mun­ur­inn, hagn­að­ur­inn, eftir í Marple, félagi í eigu Skúla sem Magnús stýrði. Alls nam þessi hagn­aður tæpum 2,1 millj­arði króna miðað við gengið í maí 2008.

Ákæruna má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár