Bjarni: „Kann að hljóma mikið eins og í frumskóginum“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að nú þurfi að skapa traust á milli manna í fjár­mála­geir­anum. Rík­is­stjórnin vilji styðja við það að reglur verði sam­ræmdar á þessum for­dæma­lausu tímum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að rík­is­stjórnin geri ráð fyrir því að hafa gott sam­starf við bank­ana í land­inu og að hún sé „byrjuð í sam­tali við þá.“ Reyna muni á alls kyns álita­efni. Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í við­tali á Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

Hann segir að eitt af því sem þau í rík­is­stjórn­inni heyri frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum almennt sé að þau vilji hjálpa sínum við­skipta­vinum en vilji þó ekki fá önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki „í bakið,“ til að mynda ef þau séu að gefa greiðslu­fresti og sýna erf­iðri stöðu skiln­ing þá megi ekki önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki ráð­ast á þann við­skipta­vin ef eitt­hvað annað sé í gangi.

„Þetta kann að hljóma mikið eins og í frum­skóg­inum en það þarf að vera eitt­hvað sam­komu­lag og skapa traust milli manna og það er vanda­samt að gera það því þetta eru aðilar sem eru að keppa á fjár­mála­mark­aði og annað. En við viljum styðja menn í að skapa sam­ræmdar reglur þannig að – eftir því sem hægt er með þessar for­dæma­lausu aðstæður – hægt sé að veita skjót svör,“ segir ráð­herr­ann.

Ríkissjóður gæti verði rekinn með hundrað milljarða króna halla á þessu ári

Þá kemur fram í máli Bjarna að rík­is­sjóður geti verið rek­inn með hund­rað millj­arða króna halla á þessu ári en mik­il­vægt sé að fólk haldi störfum sínum og miða aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna heims­far­ald­urs­ins sem nú geisar að því að miklu leyti.

Ráð­herr­ann segir að með því að halda aftur af atvinnu­leysi, með til­heyr­andi kostn­aði fyrir ríkið, sé hægt að tak­marka tap rík­is­ins til lengri tíma. Án aðgerða verði ríkið og Ísland fyrir gríð­ar­legum skelli. Hann bendir á að skell­ur­inn verði reyndar vondur hvað sem öðru líður.

Hann segir að atvinnu­leysi geti rokið upp í átta pró­sent og að fjöldi fyr­ir­tækja geti farið í þrot. „Þess vegna segi ég, að við þurfum að stíga stór skref núna. Við þurfum að koma af fullum krafti inn í þessa mynd. Vegna þess að frá okkar bæj­ar­dyrum séð, sem erum að halda utan um rík­is­fjár­málin, þá er það í raun­inni mesta tjónið sem getur orðið. Að þetta raun­ger­ist.“

Reyna að létta undir með ýmsum aðgerðum

Bjarni segir enn fremur að yfir­völd vinni að mörgum leiðum til að létta undir með hag­kerf­inu og almenn­ingi. „Það sem mér finnst kannski skipta mestu er að fólk skilji er að við getum reynt að létta undir með svo marg­vís­legum aðgerðum. Þetta er ekki bara hlut­verk þings­ins heldur er auð­vitað Seðla­bank­inn með stórt hlut­verk,“ segir hann.

Hann vill þannig „auka súr­efni þarna úti, þegar það verður súr­efn­is­skortur í fjár­mála­kerf­inu, það er að segja hjá fyr­ir­tækj­unum. Vegna þess að tekj­urnar falla. Þær eru að falla sums staðar um 50 pró­sent og jafn­vel meira. Geta fallið 70, 80 pró­sent í ein­staka til­vikum. Mögulega meira en það meira að segja.“ Í þessu ástandi þurfi slík fyr­ir­tæki stuðn­ing.

Trúir því að Seðlabankinn muni lækka vexti enn frekar

Bjarni seg­ist hafa trú á því að Seðla­bank­inn muni lækka vexti frekar og hleypa þannig meira súr­efni í kerfið og auð­velda bönkum að styðja sína við­skipta­menn.

„Við erum á hinum kant­inum og erum að segja við fyr­ir­tæki að við skulum taka hluta af launa­kostn­að­inum. Það gerum við með þessar hluta­starfa­leið, þar sem að fyr­ir­tæki geta sagt upp starfs­hlut­falli 50 pró­sent og haldið starfs­mönnum hjá sér á 50 pró­sent launum á meðan þeir eiga rétt á því að fá greiðslur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðnum fyrir bróð­ur­part­inum af mis­mun­inum,“ segir hann.

Bjarni segir að fólk með 650 þús­und og minna muni fá um það bil 90 pró­sent af upp­hæð­inni. Hann tekur þó fram að það sé gróf ágiskun. Frumvarp sé enn til með­ferðar á þing­inu.

Hann segir að sömu­leiðis þurfi að grípa ein­yrkja og verk­taka með sama kerfi en þeir þurfi að upp­fylla ákveðin skil­yrði.

„Ég held það sé samt engin ein leið jafn stór og mik­il­væg og sú að styðja fyr­ir­tækin í að halda fólki hjá sér á launum og taka hluta af laun­unum. Þetta er mjög sniðug aðferð,“ segir Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár