Þingmenn Pírata óska eftir fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Eva Pandora Bald­urs­dóttir og Jón Þór Ólafsson hafa óskað eftir því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd komi saman og ræði hvort Bjarni Bene­dikts­son hafi í störfum sínum sem þing­maður nýtt sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar sjálfum sér og fjöl­skyldu til fram­dráttar.

Eva Pandora Baldursdóttir, þingmaður Pírata og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Eva Pandora Bald­urs­dóttir, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hægt er að óska eftir fundi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og það hafa þing­menn Pírata í nefnd­inni gert, þau Eva Pandora Bald­urs­dóttir og Jón Þór Ólafsson. Þau vilja ræða hvort núver­andi for­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjórn hafi í störfum sínum sem þing­maður nýtt sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar sjálfum sér og fjöl­skyldu sinni til fram­dráttar.

Tilefnið er ný gögn sem sýna að Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi þing­maður og nú­ver­andi starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seldi all­ar eign­ir sín­ar í Sjóði 9 hjá Glitni, fyrir um 50 millj­ónir króna, dag­ana fyr­ir banka­hrunið, eft­ir að hafa meðal ann­ars setið fund sem þing­maður um al­var­lega stöðu bank­ans, og miðlað þeim áfram til banka­manna.

Þrjá nefnd­ar­menn þarf til að koma á fundi og óska þau Eva Pandóra og Jón Þór eftir þriðja nefnd­ar­mann­inum í við­bót til að taka undir þessa beiðni þeirra.

Þau telja að skoða þurfi hvort aðgangur þing­manna að þeim gögnum sem aflað í starfi geri það að verkum að þeir ættu að telj­ast inn­herjar. Sú atburð­ar­rás sem opin­ber­ast hafi gefið til­efni til þess að nefndin ræði þetta mál sem fyrst.

Þó að til­kynnt hafi verið um þing­rof verður þing ekki rofið fyrr en á kjör­dag. Þó að þingi hafi verið frestað þá halda þing­menn umboð­inu sínu frá kjós­endum og ábyrgð til að sinna eft­ir­lits­skyldu, segir í beiðn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár