Bjarni seldi eignir í sjóði 9 og miðlaði upplýsingum til bankamanna

Stundin, í sam­starfi vði The Guardian og Reykja­vík Media, birti í dag gögn um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og starf­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný gögn sem Stund­in birt­ir í sam­starfi við breska blaðið The Guar­di­an og Reykja­vik Media,, í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, sýna að Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi þing­maður og nú­ver­andi starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seldi all­ar eign­ir sín­ar í Sjóði 9 hjá Glitni, fyrir um 50 millj­ónir króna, dag­ana fyr­ir banka­hrunið, eft­ir að hafa meðal ann­ars setið fund sem þing­maður um al­var­lega stöðu bank­ans, og miðlað þeim áfram til banka­manna.

Þetta kemur fram í fyrr­nefndri umfjöllun.

Dag neyð­ar­lag­anna, þann 6. októ­ber, miðl­aði hann upp­lýs­ing­um um störf FME til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni.

Gögn­in sýna einnig að Bjarni byrj­aði að selja hluta­bréf sín í Glitni fyr­ir um 120 millj­ón­ir króna tveim­ur dög­um eft­ir að hann fund­aði sér­stak­lega með banka­stjóra Glitn­is sem þing­maður.

„Síðasta sala Bjarna á eignum sínum í Sjóði 9 átti sér því stað sama dag og Geir H. Haarde hélt fræga ræðu sína og neyð­ar­lögin voru sett. Þennan dag seldi Bjarni hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 fyrir 21 milljón króna en þetta var síð­asti dag­ur­inn þar sem opið var fyrir við­skipti með eignir í Sjóði 9. Bjarni hafði reyndar ekki mik­inn tíma til þess að selja þennan dag þar sem sjóðnum var lokað klukkan 11.29 en þá ákvað Fjár­mála­eft­ir­litið að loka fyrir öll við­skipti með hluta­bréf íslensku við­skipta­bank­anna þriggja. Bjarni hafði því ein­ungis tím­ann frá opnun mark­aða þann dag­inn og fram til klukkan 11.29 til að selja eign­irnar í Sjóði 9.

[links]Samkvæmt tölvu­póstum og við­skipta­kvitt­unum frá Glitni gekk Bjarni frá söl­unni í Sjóði 9 fimmtu­dag­inn 2. októ­ber en tekið var fram að hún ætti ekki að ganga í gegn fyrr en mánu­dag­inn 6.

Þann 2. októ­ber 2008, klukkan 20.49, sendi starfs­maður í einka­banka­þjón­ustu Glitnis tölvu­póst til þeirrar deildar Glitnis sem sá um við­skipti með Sjóð 9. Efni tölvu­pósts­ins var: „Losun á Bjarna Ben 7829 (ekki fyrr en 6.10.)“ Í tölvu­póst­inum stóð. Hæ. Fæ ég leyfi á að selja sj 9 21.000.000 og kaupa í sj 5 og 7 í staðin.“ Þetta var sam­þykkt morg­un­inn eftir, föstu­dag­inn þriðja, og fékk starfs­maður einka­banka­þjónstunnar eft­ir­far­andi tölvu­póst frá starfs­manni í skjala­deild Glitnis: „Búið að losa Sj9.“

Áður hafði Bjarni selt hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 í þrennum við­skiptum fyrir tæp­lega 30 millj­ónir króna þann 2. októ­ber. Auk þessa hafði Bjarni selt eignir upp á 30 millj­ónir króna í skulda­bréfa­sjóðnum Sjóði 1 hjá Glitni þann 24. sept­em­ber 2008 og keypti hann norskar krónur fyrir upp­hæð­ina. Þessar 30 millj­ónir setti Bjarni í norskar krónur,“ segir í umfjöllun Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár