Ekki vitað hvort 279 börn á skólaaldri séu skráð í grunnskóla á Íslandi

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra telur mik­il­vægt að komið verði á mið­lægu skrán­ing­ar­kerfi svo að unnt verði að fylgj­ast með því hvort og hvar börn á skóla­skyldu­aldri eru skráð í grunn­skóla.

Alls eru 1.646 börn ekki skráð í grunn­skóla innan sveit­ar­fé­lags og af þeim eru 279 börn sem óvíst er hvort eða hvar eru í grunn­skóla. Þetta kemur fram í svari Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns Pírata, um skóla­sókn barna sem svarað var í gær.

Þar segir að ráðu­neyti hennar hafi sent spurn­inga­lista á sveit­ar­fé­lög til að kanna fjölda barna á skóla­skyldu­aldri sem ekki sóttu grunn­sókna í sveit­ar­fé­lag­inu. Alls bár­ust svör frá 68 af 72 sveit­ar­fé­lögum.

Flest þeirra barna sem óljóst er að stundi nám eru í Reykja­vík, stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, en þar eru þau 80 tals­ins. Alls eru 61 slíkt barn skráð í Hafn­ar­firði, 54 í Reykja­nesbæ og 47 í Kópavogi.

Sveit­ar­fé­lögin voru beðin um að til­greinda ástæður þess að börn sem væru skráð í skóla. „Í þeim níu sveit­ar­fé­lögum sem til­kynna um fjölda barna með lög­heim­ili innan sveit­ar­fé­lags­ins þar sem óljóst er hvort þau stundi nám í grunn­skóla telja sjö sveit­ar­fé­lög ástæð­una vera þá að fjöl­skyldur hafi þegar flutt úr landi en ekki breytt skrán­ingu lög­heim­ilis og koma því fram sem íbúar sveit­ar­fé­lags­ins. Reykja­vík­ur­borg bendir á að eftir athug­anir væri óljóst hvar 179 börn, sem voru skráð til heim­ilis í Reykja­vík, sóttu skóla. Eftir nán­ari eft­ir­grennslan og rann­sókn er enn ekki vitað um hvort og þá hvar 80 börn eru skráð í skóla. Lang­flest barn­anna hafa aldrei verið skráð í skóla í Reykja­vík og er mjög stór hluti þeirra börn af erlendum upp­runa. Tvö sveit­ar­fé­lag­anna, Kópa­vogur og Fjarða­byggð, til­greina ekki ástæður þess að börn innan þeirra sveit­ar­fé­laga eru ekki skráð í skóla.“

[adspot]Í svari Lilju segir að erfitt geti verið að meta ástæður þess að börn sem skráð eru til heim­ilis hér á landi sæki ekki skóla, sér í lagi þegar sveit­ar­fé­lögum tekst ekki að hafa upp á for­eldrum og for­ráða­mönnum barna á skóla­skyldu­aldri.

Miðlægt skráningakerfi mikilvægt

Andrés spurði einnig um hver það væri sem beri ábyrgð á að öll börn á grunn­skóla­aldri stundi nám og að gripið sé til ráð­staf­ana ef í ljós komi að svo sé ekki.

Í svari ráð­herra segir að sveit­ar­fé­lögum sé skylt að tryggja að skóla­skyld börn njóti skóla­vistar og að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið fari með yfir­stjórn þeirra mál­efna sem lög um grunn­skóla taka til. Þáq kveði lög um grunn­skóla á um ábyrgð for­eldra á námi barna sinna og að þeim beri að fylgj­ast með náms­fram­vindu þeirra í sam­vinnu við þau og kenn­ara þeirra. For­eldrar skóla­skylds barns bera ábyrgð á að það inn­rit­ist í skóla þegar það kemst á skóla­skyldu­aldur og sæki skóla. „Af þessu er ljóst að það er á ábyrgð sveit­ar­fé­laga, skóla­stjóra grunn­skóla, for­eldra og for­ráða­manna að öll börn á skóla­skyldu­aldri sæki grunn­skóla og að gripið sé til við­eig­andi ráð­staf­ana ef í ljós kemur að svo er ekki.“

Í svari ráð­herra segir að sú könnun sem gerð var á skóla­sókn barna í tengslum við fyr­ir­spurn Andrésar Inga varpi ljósi á „mik­il­vægi þess að komið verði á mið­lægu skrán­ing­ar­kerfi svo að unnt sé að fylgj­ast með því hvort og hvar börn á skóla­skyldu­aldri eru skráð í grunn­skóla.“ Ráðu­neytið hefur skipað starfs­hóp um skrán­ing­ar­kerfi grunn­skóla­barna og í honum eiga sæti full­trúar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Þjóð­skrár Íslands, Hagstofu Íslands, Mennta­mála­stofn­unar og Reykja­vík­ur­borgar, auk mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis. „Hlutverk hóps­ins er að skil­greina þarfir og óskir sem slíkt kerfi þarf að upp­fylla og m.a. að skoða hversu umfangs­mikið skrán­ing­ar­kerfið þarf að vera með til­liti til hvaða upp­lýs­inga það þarf að ná utan um. Gert er ráð fyrir að nið­ur­stöður vinn­unnar liggi fyrir í sept­em­ber,“ segir í svari Lilju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár