Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi

Viðbúnaður víða um Frakkland í dag. Hvað knýr andstöðuna áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við fólk á vettvangi.

Mótmæli í Orléans
Mótmæli í Orléans Mót­mæl­endur í Orléans mót­mæltu flokks­þingi Þjóð­fylk­ing­ar­innar og hróp­uðu slag­orð gegn fas­isma. Á sama tíma fóru fram mót­mæli víðar í Frakk­landi. Mynd: ROMAIN PERROCHEAU / AFP

AFP hefur sent frétta­menn, ljós­myndara og myndbands­fréttamenn til borga víðs vegar um Frakkland til að fylgjast með fjölmennum mótmælum vegna hækkandi framfærslu­kostnaðar sem búist er við um allt land í dag.

Hér er yfirlit yfir það sem þau hafa séð á meðan lögregla og öryggis­sveitir reyna að koma í veg fyrir endur­tekningu á ofbeldi, íkveikjum og ránum, sem urðu í tengslum við sambærileg mótmæli um síðustu helgi.

„Enn opið“

Nálægt Bastillu­hverfinu í París hafði öllum vörum verið komið úr hillum fata­verslunar fyrir mótmælin. Nálægur veitinga­staður hafði verið byrgður fyrir með plötum en skilti á honum sögðu að hann væri „enn opinn“. Víða annars staðar í höfuð­borginni höfðu verslunar­eigendur einnig sett tréplötur fyrir glugga.

Mikið lögreglulið var á Bastillu­torgi, ásamt fjölda blaða­manna, en fáir mótmælendur sáust þar. Lögregla tilkynnti fólki í gjallar­horni að mótmæli væru bönnuð á svæðinu og bað mótmælendur að fara „tafar­laust“ að annarri gönguleið …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár