Borgar­stjóri undrast þögn um „óskiljan­leg við­skipti“ Eyþórs við Samherja

Borg­ar­stjóri segir Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúa og stærsta eig­anda Morg­un­blaðs­ins, vera marg­saga um kaup sín á hlut Samherja í fjöl­miðl­inum og selj­anda­lán sem hefur að hluta verið afskrifað. Hann segir Morg­un­blaðið þegja um málið.

Borgar­stjóri undrast þögn um „óskiljan­leg við­skipti“ Eyþórs við Samherja
Dagur B. Egg­erts­son og Eyþór Arnalds Borg­ar­stjóri spyr hvar hags­munir odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks liggja.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir það lág­marks­kröfu að Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni, geri hreint fyrir sínum dyrum varð­andi kaup sín á hluti Samherja í Morg­un­blað­inu. Eins og Stundin hefur greint frá fékk Eyþór 225 milljón króna kúlu­lán fyrir kaupum á hlutnum sem að miklu leyti hefur verið afskrifað.

Dagur bendir á það í færslu á Facebook að vika sé liðin frá því Sam­herj­a­skjölin birt­ust með sam­starfi Stund­ar­innar, Kveiks, Wikileaks og Al Jazeera. „Morg­un­blaðið hefur brugð­ist við með því að fjalla meira um fjóru­tíu ára gamla bið­stöð Strætó við Hagatorg. Ekkert hefur hins vegar verið fjallað um óskilj­an­leg „við­skipti“ Eyþórs Arnalds eig­anda blaðs­ins og odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn sem hefur orðið marg­saga um meint við­skipti sín við Samherja á hlut í sjálfu Morg­un­blað­inu. Ég segi meint því lang­flest er á huldu um þessa fjár­mála­gjörn­inga sem teygja sig alla leið í skatta­skjóls­fyr­ir­tæki Samherja á Kýpur þaðan sem greiðslur til stjórn­mála­manna og milli­liða í Namibíu komu.“

Dagur segir að Sam­herj­a­skjölin varpi nýju ljósi á þetta mál. Saga Eyþórs hefði marg­breyst í mál­inu og nú segði hann Samherja hafa tekið alla áhættu vegna kaupanna með lán­veit­ing­unni. Áður sagði Eyþór kaupin vera „alvöru, sjálf­stæð við­skipti“ og að eng­inn hafi gefið sér neitt. Þá bendir Dagur á að Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, hafi sagt í við­tali á Hring­braut að miðað við lýs­ingar Eyþórs væri um að ræða ein­hliða nið­ur­fell­ingu skulda, sem teld­ist gjöf í skiln­ingi skatta­laga og væri því skatt­skyld.

„Hvenær ætlar Eyþór að gera fulla grein fyrir tengslum sínum við Samherja?“

„Í þessu máli standa eftir ótal spurn­ingar,“ skrifar Dagur. „Af hverju fór Eyþór með hlut Samherja í Morg­un­blað­inu ef Eyþór tók enga áhættu af við­skipt­unum, eins og hann segir nú? Er búið þannig um málið að Eyþóri er í raun ómögu­legt að selja hlut­inn líkt og hann lof­aði fyrir tveimur árum og verður því bund­inn Samherja eins lengi og Samherja sýn­ist? Hvenær ætlar Eyþór að gera fulla grein fyrir tengslum sínum við Samherja? Voru afskriftir Samherja 2018 gjöf eða eft­ir­gjöf skuldar til kjör­ins full­trúa og er raun­veru­legur munur á því? Stendur Eyþór ennþá í skuld við Samherja vegna þessa máls? Eru frek­ari skuldir við Samherja eða aðra út af öðrum við­skiptum? Af hverju er borið við trún­aði um þessi mál? Hvar liggur trún­aður Eyþórs: við Samherja eða borg­ar­búa?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár