Fólkið sem hatar Gretu

Hin 16 ára Greta Thunberg hefur verið á milli tann­anna á fólki síðan hún byrj­aði nýlega að vekja heims­at­hygli fyrir bar­áttu sína á sviði umhverf­is­mála. Hópar og ein­stak­lingar, sem afneita lofts­lags­vís­indum, hafa veist harka­lega að henni á opin­berum vett­vangi. Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi sá sig knúna til að vara sér­stak­lega við orð­ræð­unni í garð Gretu.

Fólkið sem hatar Gretu
Greta í Washington Hópur mót­mæl­enda gegn mengun hefur fylgt Gretu Thunberg á ferð hennar í Banda­ríkj­unum. Mynd: Shutterstock

Vart þarf að fjöl­yrða um hver Greta Thunberg er. Þessi unga stúlka frá Svíþjóð hefur fangað athygli heims­byggð­ar­innar með sínum ein­falda boð­skap um að börnin erfi jörð­ina. Hún hefur hitt þjóð­ar­leið­toga, ávarpað Sam­ein­uðu þjóð­irnar og sett af stað alþjóð­lega hreyf­ingu ung­menna sem sætta sig ekki við að fram­tíð þeirra sé fórnað fyrir skamm­tíma­hags­muni eldri kyn­slóða.

Sú vit­und­ar­vakn­ing er eðli­lega þyrnir í augum þeirra sem standa vörð um slíka hags­muni. Stór­fyr­ir­tæki verja millj­örðum í að styrkja stjórn­mála­menn sem eru til­búnir að tala gegn vís­indum og jafn­vel betri vit­und í skiptum fyrir völd og pen­inga. Með linnu­lausum áróðri hefur þeim tek­ist að skapa óvissu í hugum margra kjós­enda um hvort virki­lega sé nauð­syn­legt að færa fórnir til að koma í veg fyrir þær ham­farir sem lofts­lags­vís­inda­menn eru sam­mála um að bíði okkar ef ekk­ert verður að gert. Hver vill jú færa fórnir ef hægt er að kom­ast hjá því?

Efni …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár