Fyrir einu ári síðan: Arion banki skráður á markað

Á þessum degi fyrir einu ári síðan, þann 15. júní 2018, voru bréf í Arion banka tekin til við­skipta í Kauphöll Íslands. Hann varð þar með fyrsti íslenski bank­inn til að verða skráður á markað eftir banka­hrunið í októ­ber 2008.

Höskuldur H. Ólafsson hringir bjöllunni frægu við upphaf viðskipta með bréf í Arion banka fyrir einu ári.
Hösk­uldur H. Ólafsson hringir bjöll­unni frægu við upp­haf við­skipta með bréf í Arion banka fyrir einu ári. Mynd: Nasdaq Iceland

Lokakafl­inn í flétt­unni um fram­tíð Arion banka, eina stóra við­skipta­bank­ans á Íslandi sem er ekki að meiri­hluta í rík­i­s­eigu, fór fram á fyrri hluta árs­ins 2018.

[links]Hann hófst þegar líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa allt að fimm pró­sent hlut í bank­an­um. Sjóð­irnir höfðu til 12. febr­úar að svara til­boð­inu. Þeir sögðu pass hver á fætur öðr­um.

Í kjöl­farið var þeim skila­boðum komið til Banka­sýslu rík­is­ins að vilji væri hjá Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arn­ir, að virkja kaup­rétt á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka og greiða um 23 millj­arða króna fyrir 13 pró­sent hlut rík­is­ins.

5. febr­úar var sam­þykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 pró­­sent hlut í sjálfum sér af Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­­þings, stærsta eig­anda bank­ans. Um er að kaup á eigin bréfum í sam­ræmi við ákvörðun hlut­hafa­fund­ar. Til við­bótar var greidd arð­greiðsla upp á 7,9 millj­arða króna.

[adspot]Mikil póli­tísk átök urðu um ofan­greindar vend­ing­ar. Hluti þing­manna vildi að stjórn­völd myndu grípa inn í ferlið með ein­hverjum hætti, annað hvort með því að nýta for­kaups­rétt sinn á hlutum í Arion banka eða með því að hafna nýt­ingu Kaup­þings á kaup­rétt­inum á hlut rík­is­ins. Ástæðan var meðal ann­ars sú að umfjöllun fjöl­miðla, m.a. Kjarnans, hafði sýnt fram á að það var mikið falið virði í Arion banka. Stjórn­völd töldu hvor­ugt ger­legt, enda engar for­sendur til staðar til nýt­ingar á for­kaups­rétt­inum og nýt­ing kaup­réttar í sam­ræmi við gerða samn­inga. Auk þess er það skoðun margra ráða­manna að æski­legt sé að ríkið selji að minnsta kosti hluta þeirra banka­eigna sem það á.

Fyrstur banka á markað eftir hrunið

Um miðjan maí 2018 var til­kynnt að Arion banki yrði fyrsti íslenski bank­inn sem yrði skráður á markað frá banka­hruni. Um tví­skrán­ingu yrði að ræða, á Íslandi og í Svíþjóð. Samhliða hófst vinna við útboð á hlut af því sem Kaupþing átti í bank­anum.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að mark­mið Arion banka yrði að vera með arð­semi eigin fjár sem væri yfir tíu pró­sent, en hún hafði verið ein­ungis 3,6 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018. Þessu mark­miði átti að ná með því að breyta fjár­mögnun bank­ans þannig að umtals­vert eigið fé yrði greitt út og að víkj­andi lán yrðu sótt. Auk þess átti að minnka rekstr­ar­kostnað, meðal ann­ars með því að fækka starfs­fólki, og að end­ingu var stefnt að hóf­legum útlána­vexti.

Arion banki var svo skráður á markað í júní. Lítið var um vend­ingar það sem eftir lifði þess árs. Eign­ar­haldið var áfram að mestu hjá Kaup­þingi, sem átti enn um þriðj­ung af öllu hlutafé um síð­ustu ára­mót, og hjá vog­un­ar­sjóð­unum sem stýra Kaup­þingi, sem áttu tæp­lega fjórð­ung beint.

Segjast geta séð í gegnum sjóðina

Vert er að taka fram að ekk­ert liggur fyrir opin­ber­lega um hverjir eru end­an­legir eig­endur þess­arra sjóða. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um hvort t.d. ein­hverjir íslenskir fjár­festar eru á meðal þeirra sem hafa fjár­fest í þeim.

Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sagði þó í sjón­varps­þætt­inum 21 í síð­asta mán­uði að eft­ir­litið gæti séð hvort að þeir sem áttu eða stýrðu bönk­um á Íslandi fyrir hrun séu á bak­við þá sjóði sem fara með virkan eign­ar­hlut í skráðum íslenskum banka. „Við förum ekki offari í því að dæma menn fyr­ir­fram úr leik. Það þarf að fara yfir hvert og eitt mál.“

Miklar breytingar á örfáum vikum

Það sem af er þessu ári, 2019, hefur allt síðan verið á fleygi­ferð innan Arion banka. Uppgjör bank­ans vegna síð­asta árs olli miklum von­brigðum. Arðsemin var ein­ungis 3,7 pró­sent og hagn­aður árs­ins 7,8 millj­arðar króna. Það var 6,6 millj­örðum krónum minna en árið áður.

Stór ástæða þessa var sú að þrír stórir við­skipta­vinir bank­ans lentu í veru­legum vand­ræðum, eða fóru bein­línis á haus­inn með til­heyr­andi útlána­töpum og afskriftum á kröfum.

[adspot]Þar var um að ræða United Silicon, Primera Air og loks WOW air.

Það sem af er ári hefur verið skipt um stjórn­ar­for­mann og banka­stjór­inn Hösk­uldur H. Ólafsson var lát­inn hætta, en ekki hefur verið ráðið í hans stað enn sem komið er. Þá hefur eig­enda­hóp­ur­inn tekið miklum breyt­ingum. Þar ber helst að nefna sölu Kaup­þings ehf. á stórum hluta sinnar eignar í bank­anum en slita­búið á nú ein­ungis 20 pró­sent eftir að hafa selt 15 pró­sent hlut í vor.

Á meðal þeirra sem eru nú áhrifa­miklir í eig­enda­hópi Arion banka eru Stoðir, sem áður hétu FL Group, með 4,65 pró­sent hlut auk þess sem vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital, einn stærsti eig­andi Kaup­þings, hefur bætt við sig beinum eign­ar­hlut og á nú 16,03 pró­sent í Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár