Vilja að talað sé um Borgarlínu í loftslagsáætlun höfuðborgarsvæðisins

Full­trúar borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í sam­göngu- og skipu­lags­ráði vís­uðu skýrslu­drögum um lofts­lags­stefnu fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið á ný til umsagnar – og vilja að talað sé um Borg­ar­línu og þétt­ingu byggðar í aðgerða­á­ætlun skýrsl­unnar.

Pawel Bartoszek borgarfulltrúi Viðreisnar er formaður samgöngu- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.
Pawel Bartoszek borg­ar­full­trúi Við­reisnar er for­maður sam­göngu- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Bára Huld Beck

Þessa dag­ana liggja drög lofts­lags­stefnu fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið fyrir öllum sveit­ar­stjórnum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Drögin eru afrakstur vinnu sem hefur átt sér stað á vett­vangi Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) með lið­sinni fyr­ir­tæk­is­ins Umhverf­is­ráð­gjöf Íslands (Environice).

Stjórn SSH sam­þykkti að senda skýrslu­drög út til sveit­ar­fé­laga í upp­hafi þessa árs og sveit­ar­fé­lögin eru nú hvert fyrir sig með drögin til umsagnar fyrir sitt leyti. Lofts­lags­stefnan inni­heldur meðal ann­ars það mark­mið að höf­uð­borg­ar­svæðið verði kolefn­is­hlut­laust fyrir árið 2035 og fjölda „hug­mynda“ að aðgerðum í lofts­lags­málum. Þessar hug­myndir verða síðan settar í hendur sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að vinna úr á sínum vett­vangi.

Skýrslu­drögin og drög að umsögn sem búið var að skrifa fyrir hönd umhverfis- og skipu­lags­sviðs borg­ar­innar, voru á dag­skrá fundar sam­göngu- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar á mið­viku­dag­inn. Málið var þó ekki afgreitt áfram í borg­ar­kerf­inu, heldur settu full­trúar Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata fram all­nokkrar athuga­semdir við drögin að lofts­lags­stefn­unni og vís­uðu þeim aftur til umsagnar hjá umhverfis- og skipu­lags­sviði borg­ar­innar.

Vilja að markmið verði skuldbindandi

Athuga­semd­irnar sem full­trúar meiri­hlut­ans settu fram á fund­inum voru í nokkrum liðum. Í fyrsta lagi sögðu full­trúar meiri­hlut­ans að Borg­ar­línan væri stærsta lofts­lags­að­gerð og fram­kvæmdin í sam­göngu­málum sem framundan væri á næstu árum og að hún þyrfti að „vera nefnd með beinum hætti í aðgerð­ar­lista“, en í aðgerða­list­anum sem settur er fram í skýrsl­unni er meðal ann­ars talað um að „greiða leið þeirra sem vilja og geta nýtt sér aðra sam­göngu­máta en einka­bíl­inn“ og að „byggja upp öfl­ugri og jafn­vel gjald­frjálsar almenn­ings­sam­göngur.“

Að auki sögðu full­trúar meiri­hlut­ans að nefna þyrfti þau sókn­ar­færi sem ný sam­göngu­tækni á borð við örflæði hefði í för með sér. Einnig væri þétt­ing byggðar „gríð­ar­lega mik­il­væg lofts­lags­að­gerð“ sem þyrfti að nefna með beinum hætti í aðgerða­list­anum.

Þá sögðu full­trúar meiri­hlut­ans að það þyrfti að end­ur­skoða „bíla­stæða­reglur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og stefna mark­visst að fækkun bíla­stæða og auk­inni gjald­töku vegna þeirra“ – en í aðgerða­list­anum eins og hann er settur fram í skýrslu­drög­unum er reyndar talað um auka gjald­töku á bíla­stæðum og fækka gjald­frjálsum stæðum, nema fyrir bíla sem losa ekki gróð­ur­húsa­loft­teg­undir og end­ur­skoða bíla­stæða­sam­þykktir, séu slíkar til.

Einnig sögðu full­trúar meiri­hlut­ans að það þyrfti að „skoða umhverf­is­vænar sam­göngur til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og halda mögu­leikum á spor­bundnum sam­göngum opnum“, auk þess sem vinna þyrfti að upp­bygg­ingu hjóla­stíga­nets fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið og nálæg svæði.

„Rétt er að stefnan verði metin á 1-2 ára fresti og auk gagna um stöð­una varð­andi losun sé gagna aflað um stöðu mis­mun­andi sveit­ar­fé­laga við inn­leið­ingu mark­mið­anna. Að auki telur meiri­hluti skipu­lags- og sam­göngu­ráðs að mark­mið lofts­lags­stefnu fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið þurfi að vera skuld­bind­andi fyrir sveit­ar­fé­lögin. Formaður mun leggja til að mál­inu sé vísað til sviðs­ins að nýju,“ sagði í bókun full­trúa Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata á fund­inum á mið­viku­dag­inn.

Málinu var þannig vísað aftur til umhverfis- og skipu­lags­sviðs borg­ar­innar, sem fær þá vænt­an­lega það verk­efni að koma með ný drög að umsögn fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar um þessar til­lögur.

Vegasamgöngur stærsti einstaki losunarþáttur höfuðborgarsvæðisins

Fyr­ir­tækið Environice skil­aði í fyrra skýrslu um kolefn­is­spor höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins árið 2019. Samkvæmt henni voru vega­sam­göngur stærsti ein­staki lið­ur­inn í kolefn­is­spori svæð­is­ins, með rúm 25 pró­sent af heild­ar­los­un­inni.

Þar á eftir komu sjó­flutn­ingar (og fiski­skip) með tæp 22 pró­sent, stór­iðja með tæp 16 pró­sent, urðun úrgangs með tæp 9 pró­sent og land­notkun með rúm 8 pró­sent. Öll önnur losun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nam sam­an­lagt um 20 pró­sentum af kolefn­is­spor­inu.

Skipulagsmál „kjarninn“ í aðgerðum sveitarfélaga í loftslagsmálum

Í skýrslu­drög­unum sem nú eru til með­ferðar hjá sveit­ar­stjórnum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir að sveit­ar­stjórnir geti „lagt mikið af mörkum í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum“ enda sé þær það stjórn­vald sem næst er fólk­inu.

„Hvað sem hlut­verki ann­arra líður gegnir rík­is­valdið þó öðrum fremur lyk­il­hlut­verki í lofts­lags­mál­unum, enda ræðst heild­ar­ár­ang­ur­inn að miklu leyti af þeim ramma sem atvinnu­lífi, sveit­ar­stjórnum og ein­stak­lingum er settur með lög­gjöf og öðrum stjórn­valds­á­kvörð­unum á lands­vísu. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa þegar unnið að ýmsum verk­efnum sem eru til þess fallin að minnka kolefn­is­spor svæð­is­ins. Skipu­lags­mál eru í raun kjarn­inn í þeirri vinnu, þar sem á skipu­lags­stig­inu ráð­ast veiga­miklir þættir á borð við þétt­leika byggðar og mögu­leika fólks á að kom­ast leiðar sinnar innan byggð­ar­innar með lofts­lagsvænum hætti,“ segir einnig í skýrslu­drög­unum.

Þar segir einnig, í kafla þar sem fjallað er um losun frá vega­sam­göngum, að svo kunni að fara að notkun almenn­ings­sam­gangna muni ekki aukast í réttu hlut­falli við auknar fjár­fest­ingar til að byrja með.

„Hafa verður í huga að þjón­ustu­stig þarf að hækka veru­lega til að notkun auk­ist. Því þarf bæði þol­in­mæði og mark­vissa upp­bygg­ingu til að ná árangri, auk þess sem huga ætti að aug­lýs­inga- og ímynd­ar­her­ferð. Enn fremur þarf að þrengja að einka­bílnum s.s. með auk­inni gjald­töku á bíla­stæðum og afnámi sam­göngu­styrkja fyrir jarð­elds­neytisknúin öku­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár