Kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn mansali og félagslegu undirboði

For­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og félags- og barna­mála­ráð­herra kynntu sam­eig­in­lega aðgerðir stjórn­valda gegn man­sali og félags­legu und­ir­boði á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

For­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og félags- og barna­mála­ráð­herra kynntu sam­eig­in­lega aðgerðir stjórn­valda gegn man­sali og félags­legu und­ir­boði á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Þetta kemur fram í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Aðgerð­irnar lúta meðal ann­ars að því að efla lagaum­gjörð­ina og eft­ir­lits­heim­ildir og að tryggja við­eig­andi aðstoð og vernd fyrir fórn­ar­lömb vinnumansals og nauð­ung­ar­vinnu.

Í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins segir að man­sal heyri að mestu leyti undir dóms­mála­ráðu­neytið, ef frá sé talin félags­þjón­usta við þolendur og meinta þolendur mansals, en verk­efni sem lúta að félags­legum und­ir­boðum og brotum á vinnu­mark­aði heyri undir félags­mála­ráðu­neytið. For­sæt­is­ráðu­neytið komi að þess­ari vinnu í krafti for­ystu- og sam­hæf­ing­ar­hlut­verks síns og í sam­hengi við aðgerðir stjórn­valda til stuðn­ings lífs­kjara­samn­ingum, en í yfir­lýs­ingu þess efnis hafi skýrt verið kveðið á um aðgerðir gegn man­sali, félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði.

Óska eftir ráðgjöf

Meðal þess sem for­sæt­is­ráðu­neytið hefur haft for­göngu um er að óska eftir ráð­gjöf frá Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu (ÖSE). Stofn­unin hefur víð­tæka reynslu af stefnu­mótun gegn man­sali og alþjóð­lega sér­þekk­ingu á brota­flokknum sem mun nýt­ast stjórn­völdum þar sem man­sal er alþjóð­legur vandi og oft tengt fjöl­þjóð­legum, skipu­lögðum glæpa­sam­tökum.

Á vett­vangi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er nú unnið að eft­ir­fylgni með áherslu­skjali stjórn­valda um aðgerðir gegn man­sali og ann­ars konar hag­nýt­ingu. Í tengslum við þá vinnu mun dóms­mála­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp sem verður í senn ætl­aður til eft­ir­fylgni með aðgerðum stjórn­valda gegn man­sali og til frek­ari stefnu­mót­unar eftir því sem þörf krefur. Auk við­eig­andi ráðu­neyta og ábyrgð­ar­að­ila ein­stakra aðgerða verður óskað eftir til­nefn­ingum frá aðilum sem hafa inn­sýn, þekk­ingu og reynslu á þessu sviði.

Jón Sigurðsson með yfirumsjón með aðgerðum

Sam­starfs­hópur félags- og barna­mála­ráð­herra um aðgerðir gegn félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði skil­aði skýrslu í jan­úar síð­ast­liðnum þar sem til­greind voru tíu lyk­il­verk­efni sem þyrfti að ráð­ast í. Félags- og barna­mála­ráð­herra hefur falið Jóni Sig­urðs­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra sem leiddi vinnu sam­starfs­hóps­ins, að hafa yfir­um­sjón með því að fram­fylgja aðgerð­unum, sem og þeim aðgerðum sem snerta félags­leg und­ir­boð í stuðn­ingi stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár