Bergþór Ólason bað ráðuneyti um að skilgreina fyrir sig hamfarahlýnun

Í svari umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra við fyr­ir­spurn þing­manns Mið­flokks­ins segir að fyr­ir­spurn­inni, um skil­grein­ingu á hug­tak­inu ham­fara­hlýnun, hefði ef til vill átt að beina til Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar, fremur en til ráð­herra.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins beindi fyrr á þessu ári skrif­legri fyr­ir­spurn til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, um hvort til væri skil­grein­ing á hug­tak­inu ham­fara­hlýnun. Ef skil­grein­ingin væri til, vildi þing­mað­ur­inn fá að sjá hana.

Fyr­ir­spurn­inni hefur nú verið svarað fyrir hönd ráð­herra, en í svar­inu segir að fyr­ir­spurnin „hefði mögu­lega átt að beina til Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum“ og segir í svar­inu frá ráð­herra að fyr­ir­spurn­inni sé svarað út frá útgefnu efni, en ef frek­ari grein­ing ósk­ist væri rétt fyrir þing­mann­inn að fá frek­ari umfjöllun um málið hjá Árna­stofnun.

Þess má geta að orðið ham­fara­hlýnun var valið orð árs­ins árið 2019, af hlust­endum RÚV og Stofnun Árna Magn­ús­sonar, en fyrstu heim­ildir um orðið eru frá árinu 2013 og mun Ari Trausti Guð­munds­son jarð­vís­inda­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna fyrstur hafa notað það í umfjöllun í íslenskum fjöl­miðlum, sam­kvæmt umfjöllun mál­fars­ráðu­nautar Rík­is­út­varps­ins um orðið.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að orðið ham­fara­hlýnun hafi verið notað und­an­farin ár sem sam­heiti við lofts­lags­breyt­ingar eða hlýnun jarðar og þess getið að Lofts­lags­ráð hafi fjallað um notkun hug­taks­ins í skýrslu um aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum, Að búa sig undir breyttan heim, sem gefin var út í jan­úar 2020.

Í þeirri skýrslu segir orð­rétt:

„Í almannaum­ræðu hefur verið rætt um að nota eigi sterkara orð um lofts­lags­breyt­ingar til þess að vekja hug­hrif sem hæfa alvar­leika hlýn­unar og hafa ýmis orð borið á góma. Nýyrðið ham­fara­hlýnun hefur verið notað í bland við lofts­lags­breyt­ingar og hlýnun jarðar sem hafa skipað sér sess í mál­inu en þykja af mörgum of hlut­laus fyrir jafn alvar­legan vanda. Hugtakið lofts­lags­ham­farir hefur einnig verið notað í almennri umræðu um lofts­lags­vand­ann og sam­hliða því verið kallað eftir að þjóð­ríki lýsi yfir neyð­ar­á­standi vegna stöð­unnar í lofts­lags­málum. Í stað þess að nota hug­takið lofts­lags­ham­farir yfir lofts­lags­vand­ann mætti hugsa sér að nota það til þess að vísa til sér­stak­lega alvar­legra atburða vegna lofts­lags­breyt­inga sem skapa neyð­ar­á­stand, eins konar und­ir­flokk nátt­úru­ham­fara þar sem orsaka­tengsl eru milli atburða og hlýn­unar jarðar. Hins vegar skal hafa í huga að mun fleiri lofts­lagstengdir atburðir sem verða munu á Íslandi falla ekki undir skil­grein­ingu ham­fara og því er gagn­legt að eiga hug­tök sem vísa til minni atburða, minna tjóns af lofts­lags­völdum, t.d. eru flest flóð sem valda tjóni á Íslandi svokölluð ama­flóð (e. nuisance flooding) en ekki ham­fara­flóð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár