Meirihluti stjórnmálaflokka vill hækka kolefnisgjald

Passa verður að kolefn­is­gjald legg­ist ekki þyngst á þau sem minnst hafa á milli hand­anna að mati þeirra flokka sem vilja hækka kolefn­is­gjald. Útblástur frá vega­sam­göngum er helsta upp­spretta los­unar sem er á beinni ábyrgð Íslands.

Kolefnisgjald leggst meðal annars á bensín og dísil olíu.
Kolefn­is­gjald leggst meðal ann­ars á bensín og dísil olíu. Mynd: EPA

Sex stjórn­mála­flokkar vilja hækka kolefn­is­gjald, sem til að mynda er lagt á inn­flutt bensín og olíu, til þess að stemma stigu við losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en tveir flokkar vilja ekki hækka gjaldið. Þetta kom fram í nýjasta þætti Hvað getum við gert? á RÚV en í þætt­inum voru fram­bjóð­endur stjórn­mála­flokka spurðir um afstöðu flokks­ins til kolefn­is­gjalds.

Að mati þátta­stjórn­enda var svar eins flokks ekki nógu skýrt og því óvíst hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji hækka kolefn­is­gjald eða ekki.

Þau sem vilja hækka kolefnisgjaldið

Fram­bjóð­endur sem komu fram fyrir hönd Við­reisnar, Pírata, Vinstri Grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Sós­í­alista­flokks­ins sögð­ust vilja hækka kolefn­is­gjald.

Hanna Katrín Frið­riks­son frá Viðreisn sagði mik­il­vægt að kolefn­is­gjaldið lendi ekki harð­ast á þeim sem lægstar hafa tekj­urnar og að gjaldið mis­muni ekki fólki eftir búsetu. Eva Dögg Dav­íðs­dóttir frá Vinstri grænum tók í sama streng og benti á að kolefn­is­gjald hefði verið hækkað þrisvar á kjör­tíma­bil­inu en það hefði verið skýr áhersla flokks­ins í stjórn­ar­sam­starf­inu. Þá sagði Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum að kolefn­is­gjaldið ætti að leggj­ast á fleiri teg­undir meng­unar, til dæmis á stór­iðju, til að end­ur­spegla raun­veru­legan kostnað meng­un­ar­innar.

Ásmundur Einar Daðason, full­trúi Fram­sóknar, sagði flokk­inn fylgj­andi hækkun kolefn­is­gjalds og að hann vildi setja á lagg­irnar sér­stakt lofts­lags­ráðu­neyti. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir frá Sam­fylk­ing­unni sagði blöndu grænna íviln­ana og kolefn­is­gjalda, sem flokk­ur­inn vill hækka, vera góða og nauð­syn­lega. Katrín Bald­urs­dóttir, full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sagði að hækka þyrfti kolefn­is­gjald sem og að taka völdin af stór­fyr­ir­tækjum sem ekki væri hægt að stoppa í kap­ít­al­ísku efna­hags­kerfi.

Þau sem ekki vilja hækka gjaldið

Líkt og áður segir vilja tveir flokkar ekki hækka kolefn­is­gjaldið, Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn. Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir frá Flokki fólks­ins sagði að ekki væri hægt að rétt­læta það að velta ábyrgð og kostn­aði af losun yfir á almenn­ing vegna þess að útblástur frá bíla­um­ferð væri svo lít­ill hluti los­unar. Hún sagði það ekki á færi allra að kaupa raf­magns­bíla og því myndi hækkað kolefn­is­gjald fyrst og fremst falla á þá sem minna hafa á milli hand­anna.

Karl Gauti Hjalta­son frá Mið­flokki tók í sama streng og sagði að frekar ætti að lækka kolefn­is­gjald heldur en að hækka það.

Þau sem ekki eru skýr

Líkt og áður segir mátu þátta­stjórn­endur svör Sjálf­stæð­is­flokks­ins ekki nógu skýr. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir sem mætti í þátt­inn fyrir hönd flokks­ins sagði að vandi við skatta væri sá að þeir fjár­munir sem eru inn­heimtir með skatt­heimtu yrðu ekki nýttir tvisvar. Atvinnu­lífið þyrfti að vera með í veg­ferð­inni og vilji til þess væri þar til staðar. Aftur á móti þyrfti atvinnu­lífið að hafa svig­rúm til að fjár­festa í nýrri tækni. Hún sagði að fólki og fyr­ir­tækjum hefðu verið gert gert kleift að skipta yfir í orku­vænni kosti en að þá þyrftu þeir kostir að vera til staðar sem og næg raf­orka til þess að hægt sé að fjár­festa í þeim kostum.

Í áherslum flokks­ins í orku- og lofts­lags­málum er það ekki sér­stak­lega nefnt hvort hækka eigi kolefn­is­gjald eða lækka en þar segir meðal ann­ars að grænir skattar eigi ekki að hafa það mark­mið að auka tekjur hins opin­bera. Grænir skattar eigi að vera tíma­bundið úrræði sem hættir að skapa tekjur þegar kolefn­is­hlut­leysi hefur verið náð. Það er nokkurn veg­inn í takt við til­gang kolefn­is­gjalds­ins í dag.

Einn flokkur sem er í fram­boði var ekki með í þætt­inum en það var Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn. Í mál­efna­skrá flokks­ins sem finna má á heima­síðu hans er kolefn­is­gjald hvergi nefnt sér­stak­lega. Þar eru segir aftur að Íslend­ingar þurfi að bretta upp ermar í því verk­efni að skipta út bensín og dísil bílum fyrir raf­mangs­bíla.

Kolefnisgjald geti dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis

Kolefn­is­gjald er ein þeirra aðgerða sem finna má í aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum, undir kafl­anum „Hvatar til umskipta“ en kolefn­is­gjaldi er ætlað að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis og þar með losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Í umfjöllun um kolefn­is­gjald á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að það sé lagt á gas- og dísilolíu, bensín, brennslu­olíu og jarð­ol­íu­gas og annað loft­kennt vetniskolefni og að það taki heild­stætt á losun kolefnis frá jarð­efna­elds­neyti, bæði frá sam­göngum og öðrum upp­sprettum.

Þar segir einnig að grein­ing Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands bendi til þess að hægt sé að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis með því að leggja gjald á kolefni. „Gjaldið verður til þess að heim­ilin nota 1-2% minna af bens­íni og olíu en ella. Hjá fyr­ir­tækjum minnkar olíu­notkun að jafn­aði um 0,3% þegar olíu­verð hækkar um 1%,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins um nið­ur­stöður grein­ing­ar­innar.

Losun frá vegasamgöngum tvöfaldast frá 1990

Í lögum um umhverfis og auð­linda­skatta er fjár­hæð kolefn­is­gjalds­ins til­greind. Á hvern lítra af gas- og dísilolíu er kolefn­is­gjaldið 11,75 krónur, það er 10,25 krónur á hvern lítra af bens­íni, 14,45 krónur á hvert kíló­gramm af brennslu­olíu og 12,85 krónur á hvert kíló­gramm af jarð­ol­íugasi og öðru loft­kenndu kol­vatns­efni.

Samkvæmt bráða­birgða­tölum sem birtar eru á vef stjórn­ar­ráðs­ins voru tekjur rík­is­sjóðs af kolefn­is­gjaldi tæpir 5,4 millj­arðar árið 2019. Ári fyrr voru tekj­urnar rúmir 5,3 millj­arðar og hækk­uðu mikið á frá árinu þar á undan en í upp­hafi árs 2018 var kolefn­is­gjaldið hækkað um 50 pró­sent. Líkt og áður segir er kolefn­is­gjaldið hugsað til þess að draga úr notkun fremur en að vera tól til tekju­öfl­unar. Þar af leið­andi er eðli­legt að tekjur rík­is­sjóðs af kolefn­is­gjaldi hækki ekki línu­lega í takt við upp­hæð gjalds­ins.

Helsta upp­spretta los­unar sem er á beinni ábyrgð Íslands er frá vega­sam­göngum. Samkvæmt tölum Umhverf­is­stofn­unar frá því fyrr á þessu ári var hlut­fall hennar þriðj­ungur af heild­ar­losun sem fellur á beina ábyrgð Íslands árið 2019. Losun frá vega­sam­göngum dróst saman um 19 kílótonn frá fyrra ári sem gerir um tvö pró­sent sam­drátt. Árin þar á undan hafði losun frá vega­sam­göngum auk­ist ár frá ári en á milli áranna 1990 og 2019 tvö­fald­að­ist losun frá vega­sam­göngum hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár