Bann við notkun svartolíu innan íslenskrar landhelgi

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið óskar eftir umsögnum um drög að reglu­gerð­ar­breyt­ingu sem bannar notkun svartolíu innan íslenskrar land­helgi.

Leyfi­legt brenni­steins­inni­hald í skipa­elds­neyti sem notað er innan land­helgi Íslands og innsævis verður lækkað úr 3,5 pró­sent niður í 0,1 pró­sent þann 1. jan­úar 2020. Þetta kemur fram í drögum að reglu­gerð­ar­breyt­ingu sem bannar notkun svartolíu innan íslenskrar land­helgi. Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar taka til reglu­gerðar um brenni­steins­inni­hald í til­teknu fljót­andi elds­neyti.

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið óskar eftir umsögnum um drögin á sam­ráðs­gátt stjórn­valda en frestur er til 7. júní næst­kom­andi.

Þann 1. jan­úar á næsta ári taka einnig þær breyt­ingar gildi að innan meng­un­ar­lög­sög­unnar en utan land­helg­innar mun leyfi­legt brenni­steins­inni­hald í skipa­elds­neyti lækka niður í 0,5 pró­sent. Það er í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands sam­kvæmt við­auka VI í MARPOL-samn­ingnum sem Ísland full­gilti í febr­úar 2018.

Ætlað að stuðla að betri loftgæðum við strendur Íslands

Samkvæmt ráðu­neyt­inu er auk til­ætl­aðs ávinn­ings fyrir lofts­lagið breyt­ing­unni ætlað að stuðla að betri loft­gæðum við strendur Íslands og hvetja til notk­unar á lofts­lagsvænni orku­gjöfum á skipum. „Svart­olía“ er sam­heiti yfir þungar og seigar olíur sem eru með ákveðna eig­in­leika og geta inni­haldið hátt hlut­fall brenni­steins. Svart­olía er meðal ann­ars notuð í skipa­sigl­ingum og mengar meira en annað elds­neyti. Þegar hún brennur losnar mikið af sóti úti í and­rúms­loftið.

Í frétt umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að þessar breyt­ingar úti­loki í raun brennslu svartolíu, þar sem hún hafi í lang­flestum til­vikum hærra brenni­steins­inni­hald en þetta. Þó geti skip áfram brennt svartolíu ef þau nota við­ur­kenndar hreins­un­ar­að­ferðir til að draga úr losun brenni­steins­dí­oxíðs en þá sé að mestu leyti komið í veg fyrir losun brenni­steins út í and­rúms­loftið og þá sót­mengun sem verður vegna notk­unar svartol­í­unnar.

Skip verða að nota viðurkenndar aðferðir til að draga úr losun brennisteinsdíoxíðs

Með breyt­ing­unum verður leyfi­legt brenni­steins­inni­hald í skipa­elds­neyti á Íslandi 0,1 pró­sent innan land­helg­innar og á innsævi, það er einnig í fjörðum og flóðum. Þegar komið er lengra út á sjó og út fyrir land­helg­ina má brenni­steins­inni­haldið hins vegar ekki vera meira en 0,5 pró­sent. Bent er á að til sam­an­burðar hafi brenni­steins­inni­hald í svartolíu sem var mark­aðs­sett hér á landi árið 2017 verið á bil­inu 0,64 til 1,94 pró­sent en með­al­talið á heims­vísu sam­kvæmt gögnum frá Alþjóða­sigl­inga­mála­stofn­un­inni (IMO) var 2,59 pró­sent.

„Þær breyt­ingar sem lagt er til að verði gerðar munu leiða til þess að sam­bæri­legar kröfur munu gilda um brenni­steins­inni­hald í skipa­elds­neyti í íslenskri land­helgi og nú gilda á svoköll­uðum ECA-svæðum í Eystra­salti og Norð­ur­sjó (e. Emission Control Areas). Þetta hefur í för með sér að notkun svartolíu í land­helgi Íslands er úti­lokuð, nema skip noti við­ur­kenndar aðferðir til að draga úr losun brenni­steins­dí­oxíðs,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár