Sunnudagur án staðfestra smita: Sýnin voru einungis 25 talsins

Enginn greind­ist með COVID-19 á Íslandi í gær, sunnu­dag, en ein­ungis 25 sýni voru tekin á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Það eru miklu færri sýni en tekin hafa verið und­an­farna daga.

Einungis 25 sýni voru tekin á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær og reynd­ist ekk­ert þeirra jákvætt, sam­kvæmt nýj­ustu tölum á vefnum covid.is. Engin sýni voru tekin hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í gær.

Því greind­ist eng­inn með COVID-19 smit í gær, en hafa ber í huga hve fá sýni voru tekin, marg­falt færri en und­an­farna daga. Á laug­ar­dag voru þannig 199 sýni tekin á veiru­fræði­deild­inni og við bætt­ist annar eins fjöldi hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Virkum smitum í sam­fé­lag­inu heldur áfram að fækka, en þau eru nú 158 tals­ins og hefur þeim fækkað á hverjum ein­asta degi síðan 5. apríl, er fjöldi þeirra sem voru með virkan sjúk­dóm náði hámarki. Þá voru 1.096 manns með virkan sjúk­dóm.

Þrettán manns eru nú á sjúkra­húsi vegna kór­ónu­veirusmits, en ein­ungis einn sjúk­lingur er á gjör­gæslu. 695 manns eru í sótt­kví sem stendur, en 18.800 ein­stak­lingar hafa lokið sótt­kví.

Alls hafa 46.352 sýni verið tekin á Íslandi til þessa og 1.752 smit hafa greinst í heild­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár