Hlýrra á Svalbarða en í Ósló

Á laug­ar­dag mæld­ist 21,7 stiga hiti á Sval­barða og því var hlýrra þar en í höf­uð­borg Noregs, Ósló. Þar með féll einnig fyrra hita­met eyja­kla­s­ans frá árinu 1979.

Veðurkort sem sýnir hita á norðurslóðum á laugardag.
Veð­ur­kort sem sýnir hita á norð­ur­slóðum á laug­ar­dag.

Á síð­ustu hund­rað árum hefur hita­stig á Sval­barða aðeins tvisvar sinnum mælst yfir 20 stig. Það gerð­ist nú um helg­ina og þar áður árið 1979.

Á laug­ar­dag mæld­ist þar 21,7 stiga hiti á flug­vell­inum, 0,4 gráðum meira en í fyrra hita­meti frá árinu 1979 þegar 21,3 gráður mæld­ust. Athygli vekur að um helg­ina var því hlýrra á Sval­barða en í Ósló, höf­uð­borg Noregs.

Í Longye­ar­byen á Sval­barða, sem er á 78. breidd­argráðu, er sum­ar­hit­inn yfir­leitt á bil­inu 13-17 stig þegar hann er mestur. Þar er búið allt árið og talað um að þar sé nyrsta fasta búseta árið um kring í heim­inum.

Longye­ar­byen byggð­ist fyrst upp í kringum námu­gröft en í dag heldur þar til fjöldi vís­inda­manna við ýmsar rann­sóknir. Þá hefur ferða­þjón­usta verið að ryðja sér þar til rúms í auknum mæli síð­ustu ár.

„Stór­frétt fyrir margra hluta sakir og aðeins í annað sinn á um 100 árum sem hiti fer yfir 20 stig á Sval­barða,“ skrifar Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur um hita­metið á Facebook-síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár