Konum blæðir - UN Women bregst við

Konur eru á flótta í Írak eftir að örygg­is­sveitir Íraka og Kúrda réð­ust á víga­menn Íslamska rík­is­ins í Mósúl í Írak. UN Women á Íslandi hrindir af stað söfnun til að bregð­ast við ástand­inu.

Konur á flótta í Mósúl í Írak.
Konur á flótta í Mósúl í Írak. Mynd: EPA

Neyð­ar­kall barst frá UN Women í Írak á dög­unum og hefur lands­nefndin á Íslandi brugð­ist við með því að hrinda af stað söfnun fyrir konur á flótta. 62.000 manns flúðu frá Mósúl í Írak í síð­asta mán­uði og þar af er rúm­lega helm­ingur konur. „Það má segja að þær konur í Mósúl séu að fara úr ösk­unni í eld­inn vegna þess að borgin er búin að vera undir Íslamska rík­inu síð­ustu tvö ár og eru þær búnar að lifa við skelfi­legar aðstæður,“ segir Inga Dóra Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stýra UN Women á Íslandi, um ástandið sem sam­tökin eru að bregð­ast við.

Söfnun hefur því verið sett af stað en hægt er að senda sms-ið KONUR í 1900 og gefa 1.490.- kr. Mikið hefur verið um að vera þessa vik­una hjá sam­tök­unum en þau frum­sýndu mynd­band vegna söfn­un­ar­innar síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld. „Við erum í ham, miklum ham,“ segir Inga en einnig byrjar 16 daga átak föstu­dag­inn 25. nóv­em­ber. Þá mun UN Women standa fyrir hinni árlegu Ljósa­göngu. Kjarninn fjall­aði nýlega um 16 daga átakið sem UN Women á heims­vísu tekur þátt í til að vekja athygli á kyn­bundnu ofbeldi.

Gleymist að hugsa fyrir einföldum hlutum

UN Women sér nú um að dreifa svoköll­uðum Sæmd­ar­settum til kvenna á flótta en með því að senda sms og styrkja átakið mun eitt slíkt sett rata til konu á flótta. Grunn­pakk­inn er kven­mið­aður en hann inni­heldur vasa­ljós, dömu­bindi og sápu. „Það gleym­ist svo oft að hugsa fyrir ein­földum hlutum eins og dömu­bindum,“ segir Inga. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem UN Women hefur safnað fyrir konur á flótta. „Við höfum verið að safna fyrir Sæmd­ar­settum og kven­mið­aðri aðstoð fyrir konur á flótta frá Sýrlandi sem hafa verið að koma til Evrópu,“ bætir hún við.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar greina frá því að atburðir síð­ustu miss­era í Mósúl séu bein­línis glæpur gegn mann­kyni. „Konurnar hafa verið inni­lok­aðar, það hefur ekk­ert mátt sjást í þær og raddir kvenna hafa ekki mátt heyr­ast opin­ber­lega. 3.500 konum hefur verið haldið sem kyn­lífs­þrælum víga­manna og ef þær hafa neitað kyn­lífi þá hafa þær verið drepnar á staðnum. Þetta hefur því verið algjört hörm­ung­ar­á­stand,“ segir Inga. Hún bendir á að örygg­is­sveitir Íraks og Kúrda séu búnar að ráð­ast inn í borg­ina, það sé stríðs­á­stand á svæð­inu og fólk sé því á flótta.

Fyrirséð ástand

Margar millj­ónir manna eru á ver­gangi innan Íraks og straum­ur­inn frá Mósúl liggur suð­austur af borg­inni. Enginn veit nákvæm­lega hvert fólkið er að fara, að sögn Ingu. Hún segir að landa­mæri Evrópu séu til að mynda alveg lokuð og að fólk stoppi í Grikk­landi og Tyrk­landi og kom­ist hvergi. Ástandið sé því mjög slæmt á þessum slóðum.

Inga segir að UN Women hafi séð þetta ástand fyrir og að það hafi verið vitað að íra­skar her­sveitir hafi verið að und­ir­búa að fara inn í Mósúl, því að borgin hefur verið höf­uð­djásn Íslamska rík­is­ins. Það hafi því verið vitað að neyð­ar­á­stand myndi skap­ast þegar fólk myndi flýja borg­ina. Hún segir að búið sé að und­ir­búa ákveðnar dreif­ing­ar­á­ætl­anir og ákveða hvar hægt sé að setja upp svo­kall­aðar bráða­birgða­búðir og hvað þurfi að vera í neyð­ar­pökkum. „Síðan berst kall út til svæð­is­skrif­stofa út um allan heim og til fólks sem styrkir UN Women um að nú vanti pen­inga til þess að gefa þessi sett,“ segir Inga.

Skírskotun í gamla dömubindaauglýsingu

UN Women á Íslandi fram­leiddi mynd­band eins og fyrr segir í sam­starfi við TM en það var frum­sýnt á dög­unum. Hér fyrir neðan má sjá mynd­bandið.

Inga segir að þau séu að leika með klass­íska dömu­binda­aug­lýs­ingu sem margir muna eftir frá níunda ára­tugnum. Nema eins og sést í mynd­band­inu þá láta þau hana ekki enda í gleði heldur í stríðs­á­standi og á flótta. Myllu­merkið sem notað er með her­ferð­inni er #kon­umblæðir og vísar það meðal ann­ars til Sæmd­ar­pakk­ans þar sem dömu­bindi eru í pakk­anum. 

„Konum blæðir bók­staf­lega í átökum og þegar kona þarf að flýja heim­ili sitt án hrein­læt­is­vöru eins og dömu­bindis. Þær eru ekki með aðgang að renn­andi vatni og hvað gera þær þá?“ spyr Inga. Hún segir að þetta snú­ist líka um hvernig hægt sé að halda í reisn og sæmd. Þess vegna ber pakk­inn nafnið Sæmd­ar­sett.

Íslendingar gjafmildir í ár

Ljósa­gangan 2016 er einnig til­einkuð konum á flótta og mun hún vera farin föstu­dag­inn 25. nóv­em­ber kl. 17 frá Arn­ar­hóli. Maryam Raísi leiðir göng­una í ár og flytur við­stöddum hug­vekju. Maryam og móðir hennar, Torpikey Farrash, hafa verið á flótta und­an­farin 15 ár. Eftir þriggja ára dvöl í Svíþjóð var þeim neitað um hæli og eftir það ákváðu þær að koma til Íslands. Þeim var neitað um hæli eftir þriggja mán­aða dvöl og í fjóra mán­uði hafa þær beðið eftir sím­tali hér á landi. Nú hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála ákveðið að taka mál Maryam og Torpikey fyrir. Á síðu við­burð­ar­ins á Facebook segir að þátt­taka Maryam í ár sé tákn­ræn fyrir þá hörmu­legu stöðu sem millj­ónir flótta­kvenna um allan heim búa við.

„Íslend­ingar hafa verið ofsa­lega gjaf­mildir og rausn­ar­legir í ár í að styrkja og bæta aðstæður fyrir konur á flótta. Og þess vegna er gangan til­einkuð konum á flótta,“ segir Inga. Hún segir að þessi við­burður hafi alltaf gengið mjög vel en hann er alltaf hald­inn á alþjóð­legum bar­áttu­degi gegn kyn­bundnu ofbeldi þann 25. nóv­em­ber. „Það er alltaf ömur­legt veður,“ segir Inga og hlær en bætir við að þátt­takan sé alltaf góð og stemn­ingin líka.

Nýr vernd­ari sam­tak­anna verður kynntur á ljósa­göng­unni en hlut­verk hans er að leggja sitt af mörkum til að auka sýni­leika UN Women, vekja almenn­ing til vit­undar um starf­semi sam­tak­anna og stuðla að við­horfs­breyt­ingum hvað mál­efni kvenna varðar.

Að lokum bendir Inga á að hægt verði að kaupa í jóla­pakk­ann veg­legra Sæmd­ar­sett sem inni­heldur dömu­bindi, sápu, tann­bursta, tann­krem, teppi, hlý föt og vasa­ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár