Íslenski kvennafrídagurinn innblástur mótmæla í Frakklandi

Franskar og spænskar konur mót­mæltu kyn­bundnum launa­mun og ofbeldi á dög­unum og krefj­ast kjara­jafn­réttis og útrým­ingar ofbeldis á konum og stúlkum.

Tvær stúlkur á mótmælum í Madríd á Spáni 7. nóvember 2016
Tvær stúlkur á mót­mælum í Madríd á Spáni 7. nóv­em­ber 2016 Mynd: EPA

Fjöldi kvenna í Frakk­landi lagði niður vinnu þann 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kl. 16:34 til þess að mót­mæla kyn­bundnum launa­mun. Samkvæmt tölum Evr­ópu­sam­bands­ins eru laun kvenna fyrir sömu vinnu og vinnu­tíma í Frakk­landi 15 pró­sent lægri en karla. Aðgerða­sinnar segja að þannig séu konur að vinna „frítt“ eða með öðrum orðum: þær vinna 38 daga launa­laust á ári miðað við karl­ana. For­mæl­endur mót­mæl­anna hvöttu konur því að leggja niður vinnu og benda á að kyn­bund­inn launa­munur sé ekki ein­ungis rétt­inda­mál kvenna, hann hafi áhrif á almennan tekju­ó­jöfnuð. Sama dag mót­mæltu konur kyn­bundnu ofbeldi í Madríd á Spáni.

Fólk spyr sig af hverju kyn­bund­inn launa­munur við­gang­ist enn í vest­rænum lýð­ræð­is­ríkjum árið 2016 og enn og aftur kalla konur á rétt­læti. Rétt­ur­inn til að fá sömu laun fyrir sömu vinnu virð­ist ekki vera annað en sann­gjörn krafa en samt gengur illa að ná þessu fram. Bar­áttu­fólk er þó ekki til­búið að gef­ast upp og heldur áfram glímunni.

Þær konur sem stóðu í broddi fylk­ingar segja að mik­il­vægt sé að vekja athygli á launa­mun kynj­anna árið 2016 og að stjórn­völd standi við vilja­yf­ir­lýs­ingar um raun­veru­legar umbætur í þessum málum. 

Íslenska kvennafríið fyrirmynd

Eins og ekki hefur farið fram­hjá neinum hér á landi þá lögðu konur á Íslandi niður vinnu þann 24. októ­ber síð­ast­lið­inn í til­efni þess að 41 ár er liðið síðan fyrsti kvenna­frí­dag­ur­inn var hald­inn á land­inu. Á hinum ýmsu miðlum, sem fjallað hafa um kvenna­fríið í Frakk­landi, er Ísland rætt í sömu andrá og svo virð­ist sem konur og bar­áttu­fólk hafi orðið fyrir áhrifum af kvenna­frídeg­inum hér á landi.

Einnig hefur umræðan færst yfir á sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter undir myllu­merk­inu #7novem­bre16H34. Talsmenn kvenna­frís­ins í Frakk­landi hafa lagt áherslu á umræðu á sam­fé­lags­miðl­unum og hafa þús­undir kvenna sýnt átak­inu áhuga.

Ofbeldi einnig mótmælt

Konur komu saman og mót­mæltu ofbeldi gegn konum annað árið í röð í Madríd á Spáni sama dag, þann 7. nóv­em­ber. Femíníska hreyf­ingin 7N spratt upp úr mót­mæl­unum á síð­asta ári þar sem tug­þús­undir kvenna fylltu stræti Madrídar. Samkvæmt tölum Evr­ópu­sam­bands­ins urðu 13 millj­ónir kvenna í Evrópu fyrir ofbeldi árið 2013.

Kven­rétt­inda­fé­lagið var eitt þeirra sem stóð með kyn­systrum sínum og sýndi sam­stöðu á net­inu.

16 dagar aðgerða

Frá 25. nóv­em­ber til 10. des­em­ber næst­kom­andi munu aðgerða­sinnar standa fyrir sér­stöku átaki til að vekja athygli á kyn­bundnu ofbeldi. Til­gang­ur­inn er að vekja konur og karl­menn til athafna til þess að útrýma ofbeldi gegn konum og stúlkum úti um allan heim.

Áherslan árið 2016 er sú að þörf sé fyrir sjálf­bæra fjár­mögnun til að reyna að binda enda á þetta ofbeldi. Helsta áskor­unin er að fjár­magna þessa bar­áttu en það gengur mis­jafn­lega vel. Vegna þessa eru úrræðin ekki eins góð og þau gætu verið með meira fjár­magni.

UN Women sér um her­ferð sem teng­ist þessum 16 dögum aðgerða sem nefn­ist UNiTE og hvetur fólk til að taka þátt úti um allan heim á þessu tíma­bili, bæði með því að láta orðið ber­ast í nær­sam­fé­lag­inu og sýna sam­stöðu á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merkj­unum #orangetheworld og #16days.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár