Greiða sexfalt fyrir umsókn um ESTA-ferðaheimild

Margir hafa lent í því und­an­farið að greiða marg­falt verð fyrir svo­kall­aðar ESTA-umsóknir sem sækja þarf um fyrir dvöl í Banda­ríkj­unum. Sendi­ráðið hvetur fólk til að sækja um leyfið á opin­berum síðum banda­rískra stjórn­valda.

Íslend­ingar hafa margir hverjir borgað marg­falt verð fyrir ESTA-ferða­heim­ild til Banda­ríkj­anna en sér­stakar vef­síður á net­inu sér­hæfa sig í að vera milli­liðir varð­andi þjón­ust­una. Þessar síður rukka tugi banda­rískra doll­ara fyrir þjón­ust­una á meðan heim­ildin sjálf kostar 14 doll­ara eða 1.500 krónur. Sumar þess­ara síðna rukka allt að 88 doll­ara eða 9.500 krónur, sam­kvæmt athug­unum Kjarnans.

Ísland er aðili að raf­ræna vega­bréfs­kerf­inu Visa Waiver Program sem gerir íslenskum rík­is­borg­urum kleift að ferð­ast til Banda­ríkj­anna án vega­bréfs­á­rit­unar. Frá og með 12. jan­úar árið 2009 varð raf­ræna kerfið fyrir ferða­heim­ildir (e. Electronic System for Travel Authorization) áskilin hluti raf­ræna vega­bréfs­kerf­is­ins. Rafræn ferða­heim­ild er umsókn­ar­kerfi fyrir alla far­þega frá aðild­ar­löndum raf­ræna vega­bréfs­kerf­is­ins, þar með talið Ísland.

Vegna auk­inna örygg­is­ráð­staf­ana þurfa far­þegar nú að sækja fyr­ir­fram um ferða­heim­ild­ina. Sem og áður þarf enn að hafa tölvu­les­an­legt vega­bréf frá aðild­ar­landi raf­ræna vega­bréfs­kerf­is­ins. ESTA-umsókn­ar­ferlið fer fram á net­inu og er á vegum Heima­varn­ar­ráðs Banda­ríkj­anna.

Þess ber að geta að ferða­heim­ildin er ekki vega­bréfs­á­ritun. Til­gangur ferða­heim­ild­ar­innar er að gefa Heima­varn­ar­ráði Banda­ríkj­anna tæki­færi á að rann­saka alla far­þega frá aðild­ar­löndum raf­ræna vega­bréfs­kerf­is­ins áður en þeir ferð­ast frá sínu heima­landi. Íslenskir far­þegar sem ferð­ast til Banda­ríkj­anna þurfa að sækja um ferða­heim­ild að minnsta kosti 72 tímum fyrir brott­för. Samþykkt ferða­heim­ild tryggir ekki land­göngu en er for­krafa um að ferð­ast til Banda­ríkj­anna með flugi eða skipi.

Tæpar 50.000 kr. fyrir fimm manna fjölskyldu

Íslensku flug­fé­lögin benda við­skipta­vinum sínum á hvar hægt sé að sækja um ESTA-ferða­leyfi í gegnum rétt­mæta síðu á net­inu. Margir virð­ast þó ákveða að leita að síð­unni á net­inu í gegnum leit­ar­vélar og eru þá frek­ari líkur á að lenda á síðum sem rukka sér­stak­lega fyrir þjón­ust­una.

Kjarninn tal­aði við fólk sem keypt hefur þjón­ustu af vef­síðum sem sjá um þessa milli­göngu. Í flestum til­fellum var nóg að senda tölvu­póst til baka og þá var auka­þjón­ustan end­ur­greidd. Þó eru margir sem gera sér ekki grein fyrir því að þessi við­bót­ar­kostn­aður sé óþarfur og greiða gjaldið án athuga­semda.

Einn við­mæl­andi Kjarnans greinir frá því að korta­fyr­ir­tækið, sem við­kom­andi er hjá, hafi ekki viljað gera end­ur­greiðslu­kröfu þegar hann gerði sér grein fyrir hvað gerst hafði. Skýr­ing­arnar sem fyr­ir­tækið gaf hefðu verið þær að þá gæti fólk lent í því að fá ekki árit­un­ina þegar á hólm­inn væri komið.

Annar ein­stak­lingur sem hafði sam­band við Kjarnann segir að hann hafi borgað tæpar 50.000 krónur fyrir ferða­leyfi fyrir fimm manna fjöl­skyldu þegar hann hafi ein­ungis þurft að borga 7.500 krónur fyrir leyfin fimm.

Bandaríska sendiráðið í Reykjavík
Banda­ríska sendi­ráðið í Reykja­vík

Opinberar síður stjórnvalda enda á „.gov“

Í svari banda­ríska sendi­ráðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að þau séu með­vituð um vef­síður sem selja slíka þjón­ustu. Sendi­ráðið bendir á að þjón­ustan sé lög­leg, þ.e. leyfi­legt sé fyrir þriðja aðila að sækja um ESTA-ferða­leyfi fyrir ein­stak­linga og séu fyr­ir­tæki sem veita slíka þjón­ustu. Ekki sé þó hægt að ábyrgj­ast þessi fyr­ir­tæki.

Banda­ríska sendi­ráðið tekur það fram að ef fólk sé í ein­hverjum vafa hvar eigi að sækja um ESTA-ferða­leyfi eða hvort vef­síða sé opin­ber síða banda­rískra stjórn­valda þá sé hægt að þekkja þær á því að þær enda allt á „.gov“.

Vefsíða bandarískra stjórnvalda.
Vefsíða banda­rískra stjórn­valda.

Þurfa að skoða hvert mál fyrir sig

Kjarninn hafði sam­band við tvö korta­fyr­ir­tæki, Valitor og Borgun. Borgun svar­aði ekki fyr­ir­spurnum Kjarnans þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir til að fá svör. Samkvæmt Valitor ráð­leggur fyr­ir­tækið kort­höfum að forð­ast vef­síður aðila sem veita þjón­ustu við umsókn ESTA-leyfis og nota frekar opin­bera skrán­ing­ar­síðu ESTA. Í svari Valitor segir að þegar kort­hafar leiti eftir ESTA á Google sé að finna vef­síður milli­liða sem að bæta þóknun við ESTA gjaldið.

Valitor hefur fengið kvart­anir sem snúa að því að kort­hafar eru rukk­aðir um hærra verð fyrir ESTA-leyfi en þeir telja sig eiga að greiða. „ESTA-leyfi til Banda­ríkj­anna kostar 14 USD ef sótt er um leyfið beint til yfir­valda en vef­síður milli­liða taka auka gjald fyrir að sjá um ESTA-umsókn. Þeir leggja sína þóknun ofan á ESTA gjaldið, vænt­an­lega með sam­þykki kort­hafa sem fyllir út umsókn á þeirra síðu,“ segir í svar­inu.

Jafn­framt segir að það þurfi að skoða hvert mál fyrir sig, því kort­hafar þurfi ávallt að ganga úr skugga um að þeir hafi gilt ESTA-leyfi ef þeir óska eftir bak­færslu, þar sem bak­færsla geti haft þau áhrif að ESTA-leyfið verði aft­ur­kallað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið undanfarið ár