„Fjórflokkurinn“ hefur aðeins einu sinni fengið minna fylgi í alþingiskosningum

Sam­an­lagt fylgi rót­grón­ustu stjórn­mála­afla lands­ins, fjór­flokks­ins, var 64,2 pró­sent í kosn­ing­unum í gær. Það er ögn lægra hlut­fall greiddra atkvæða en í kosn­ing­unum 2017, en hærra en árið 2016.

Fyrstu tölur á landsvísu, eins og þær voru settar fram í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 árið 1991, sýndu mikla yfirburði fjórflokksins. Rótgrónu flokkarnir hafa síðan gefið eftir.
Fyrstu tölur á lands­vísu, eins og þær voru settar fram í kosn­inga­sjón­varpi Stöðvar 2 árið 1991, sýndu mikla yfir­burði fjór­flokks­ins. Rótgrónu flokk­arnir hafa síðan gefið eftir. Mynd: Skjáskot/Stöð 2

„Tryggðin við gamla kerfið, fjór­flokka­kerfið, er greini­lega enn mjög mikil,“ sagði full­trúi Kvenna­list­ans svekkt í sjón­varps­sal á kosn­inga­kvöld árið 1991, þegar fyrstu tölur úr flestum kjör­dæmum lands­ins höfðu skilað sér í hús.

Fjór­flokk­ur­inn; Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Alþýðu­flokkur og Alþýðu­banda­lagið, hafði þá sam­eig­in­lega hlotið næstum 9 af hverjum 10 atkvæðum sem höfðu verið talin í fyrsta kast­inu, öllu meira en hafði verið raunin fjórum árum fyrr er flokk­arnir fjórir fengu ein­ungis um 75 pró­sent atkvæða – sem heyrði til tíð­inda.

Þessi tryggð við fjór­flokk­inn, eins og fjórir rót­grón­ustu flokkar lands­ins og arf­takar þeirra eru enn oft kall­aðir, var ekk­ert nýtt og hélst lengi enn. Á und­an­förnum ára­tug hafa hlut­irnir þó breyst ansi hratt og nýir flokkar náð að setja mark sitt á íslensk stjórn­mál svo um munar.

Nið­ur­staða alþing­is­kosn­ing­anna í gær var sú að flokk­arnir fjórir fá sam­an­lagt sína næst­verstu nið­ur­stöðu frá upp­hafi, 64,2 pró­sent. Flokkar sem stofn­aðir hafa verið á und­an­förnum ára­tug fá á móti vel rúm­lega þriðj­ungs­fylgi.

Versta niðurstaðan 2016

Í kosn­ing­unum árin 2007 og 2009 fengu Sjálf­stæð­is­flokkur, Sam­fylk­ing, Vinstri græn og Framsókn sam­an­lagt um 90 pró­sent atkvæða eins og oft­ast hafði verið raunin um ára­tuga­skeið.

Í kosn­ing­unum árið 2013 féll sam­an­lagt fylgi fjór­flokks­ins hins vegar niður í 74,9 pró­sent og síðan þá hefur það enn dvínað.

Fjór­flokk­ur­inn fékk ein­ungis 62,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2016, sem er versta sam­an­lagða nið­ur­staða þess­ara flokka frá upp­hafi, en rétti ögn úr kútnum og fékk 65 pró­sent í kosn­ing­unum 2017. Núna árið 2021 er nið­ur­staðan síðan afar svipuð og síð­ast, sem áður segir.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár