Óvissan í Trumplandi

Staðan í banda­rískum stjórn­málum er for­dæma­laus um þessar mundir. Spennan hefur verið næstum áþreif­an­leg í New York þar sem Donald Trump vinnur nú að því að setja saman starfs­lið sitt.

Það var þrúg­andi þögn í hópnum sem stóð fyrir utan kosn­inga­vöku Hillary Clinton þann 8. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og góndi upp á risa­vax­inn skjá­inn sem færði okkur fréttir af sigri Trumps í hverju rík­inu á fætur öðru. Aðeins fáeinum mín­útum áður hafði gleði­bylgja færst yfir hóp­inn þegar fyrstu töl­urnar birt­ust, en nú var Trump ofan á. ,,It is early yet, these num­bers will change” útskýrði mað­ur­inn við hlið­ina á mér. Sjálf ýtti ég aftur á reload takk­ann á New York Times app­inu mínu. Hita­mælir­inn sýndi auk­inn hita með rauðu, en áður en fyrstu tölur birt­ust sýndi hann Hillary með um 85% líkur á að vinna kosn­ing­arnar nú var hún komin í 54%. Líkurnar á því að Trump myndi vinna 46%. Rauða liðið í Ameríku eru repúblikanar, bláa liðið eru demókratar. Það var eins og annað þetta kvöld, allt öfug­snúið.

Sonur minn 10 ára var enn hund­fúll yfir því að við hefðum ekki fengið sæti inn í höll­ina og hann fengi því ekki að bera fyrsta kven­kyns for­seta Banda­ríkj­anna augum þegar hún myndi lýsa yfir sigri, heldur hafði okkur verið skóflað út á planið fyrir utan Jacob Javits Center. Hér skyldi vera götupartý fyrir þá sem væru minna mik­il­vægir og hefðu ekki tryggt sér sæti inn í höll­inna með við­eig­andi fjár­stuðn­ingi við fram­boðið. Mér var hætt að lít­ast á blik­una, enda var þetta götupartý orðið frekar súrt, svo við fórum heim til vina og skelltum í kosn­inga­vöku. ,,Ekki gott ef Hillary ætlar að stjórna land­inu svona, leyfa bara sumum að vera inní í partý­inu, á meðan aðrir standa úti” ályktaði son­ur­inn yfir órétt­læti kvölds­ins.

En kvöldið var rétt að byrja og svo fór að Hillary mætti aldrei í eigið partý, heldur var það gul­hærði mað­ur­inn sem hélt sig­ur­ræð­una nokkur hund­ruð metrum frá, fyrir framan æstan múg­inn sem hróp­aði í sig­ur­vímu ,,lock her up”.

Daginn eftir var þögnin í borg­inni ærandi, fólk sat og starði tóm­lega út í loftið í lest­inni. Afgreiðslu­konan í búð­inni bað Guð um að blessa mig og Ameríku í óspurðum fréttum. Sonurinn spurði hvert vini hans sem væru múslimar yrðu sendir. Rit­höf­und­inum í næstu íbúð, sem er kona á níræð­is­aldri af gyð­inga­ættum var svo skellkuð að henni var orða vant.

Í New York borg höfðu aðeins 10 pró­sent kjós­enda kosið einn þekktasta íbúa borg­ar­innar, Donald Trump. Og þrátt fyrir að Hillary Clinton hafi hlotið um 2 millj­ónum fleiri atkvæði á lands­vísu, vann Trump fleiri ríki og þar með kosn­ing­arnar. Allar kann­anir bentu til þess að Hillary myndi vinna allra síð­ustu dag­ana fyrir kosn­ing­arnar og sama mátti segja um útgöngu­spár á kjör­dag.

Hvað nú?

Hefðin er að þegar nýr for­seti er kjör­inn tekur við tíma­bil þar sem svo­kall­aður verð­andi for­seti (e. Pres­ident elect) und­ir­býr sig. Sá sem er að hætta er kall­aður óhæf önd eða Lame Duck. Það nafn kom fyrst fram í tengslum við breskan verð­bréfa­sala sem gat ekki greitt skuldir sínar en hefur ein­hverra hluta vegna þótt gott heiti yfir frá­far­andi for­seta. Sá gefur þeim nýja rými til und­ir­bún­ings­ins og tekur engar afdrifa­ríkar ákvarð­anir lengur. Nú er því Barack Obama orð­inn Lame Duck og Donald Trump verð­andi for­seti í und­ir­bún­ings­ferli.

Trump gefst því svig­rúm í nokkrar vikur til að ráða til sín ráð­herra í rík­is­stjórn sína og ráða í þær fjöl­mörgu stöður sem losna við stjórn­ar­skipti. Í heild sinni þarf nýr for­seti og hans fólk að ráða til sín um 4.000 manns. Af þessum 4.000 störfum þarf öld­unga­deildin að sam­þykkja um 1.000 ráðn­ingar fyrir lok apríl næst­kom­andi. Þetta tíma­bil stendur frá kjör­degi þar til hann hefur tekið við starf­inu og skipað í allar stöð­urnar og sett nýja stefnu í fyrir öll þau ríf­lega 100 stjórn­sýslu-app­aröt sem heyra undir for­set­ann. Byrja að und­ir­búa nýja fjár­hags­á­ætlun fyrir allar stofn­an­irnar og for­gangs­raða.

Flestir reyndir stjórn­mála­menn sem eiga raun­hæfa mögu­leika á því að taka við valda­mesta emb­ætti Banda­ríkj­anna hafa hingað til verið nokkuð und­ir­búnir undir þetta ferli þegar þeir sigra for­seta­kosn­ingar. Allt bendir þó til þess að Donald Trump hafi ekki verið búinn að hug­leiða mikið hver myndi taka við hvaða hlut­verki, myndi hann sigra. Því hafa síð­ustu dagar farið í að fjöl­miðlar liggja á hurð­ar­hún­inum hjá honum í þeirri von að fá ein­hverja inn­sýn inn í hvernig ferlið gengur. Hefðin er að ákveðin hópur blaða­manna (e.press pool) fái að fylgja verð­andi for­seta hvert sem hann fer en Trump hefur lítið gefið út á þá hefð og stundum hafa fjöl­miðlar ekki haft hug­mynd um hvar næsti for­seti Banda­ríkj­anna er nið­ur­kom­inn. Þetta hefur valdið mik­illi hneysklan hjá sér­fræð­ingum hér og ekki síst fjöl­miðla­mönnum.

Hurð­ar­húnn­inn hjá Trump er hins vegar ekki einn eða tveir, því hann á turna víðs vegar um landið og þó hefðin sé að verð­andi for­seti haldi sig í Washington DC þegar þetta ferli á sér stað er Trump hins vegar mjög heima­kær og hefur sagst ætla að dvelja mikið heima hjá sér í New York á for­seta­tíð sinni.

Síðustu daga hefur hann því eytt flestum stundum í Trump turn­inum sínum í hjarta mið­borgar Man­hattan. Þessari þörf Trump hefur þó reynst þraut­inni þyngri að koma í kring, því um leið og menn eru kjörnir for­setar Banda­ríkj­anna fylgir þeim gíf­ur­leg örygg­is­gæsla. Nú er því búið að afgirða fjöl­förn­ustu versl­un­ar­götu Man­hattan í miðri jóla versl­unn­inni svo hægt sé að tryggja öryggi Trumps. Á milli Gucci og Prada standa nú lög­reglu­menn með vél­byssur svo rauð­vara­lit­aðar konur í pelsum með smá­hunda og þver­röndóttir ístrukarlar kom­ast ekki lengur óhindrað að glingr­inu. Við þessa örygg­is­gæslu hafa svo bæst stöðug mót­mæli fyrir utan heim­ili hans sem bæta nú veru­lega mann­lífs­flór­una á Fimmtu breið­götu. Áætlaður kostn­aður vegna örygg­is­gæsl­unnar fyrir Trump í New York telur nú um 113 millj­ónir íslenskar krónur á dag.

Ráðningar Trumps

Trump hefur hitt fjölda manns síð­ustu daga og hafa þær örfáu til­nefn­ingar sem hann hefur til­kynnt valdið miklum ótta og hneyksla meðal fjölda fólks. Einn sá fyrsti til að vera til­nefndur var Stephen K. Bannon sem yfir-stra­teg­isti Trump í Hvíta hús­inu. Stephen hefur rekið frétta­vef­inn Breit­bart News sem eru þekktur fyrir að vera yst á hægri vængnum. Fjöl­mið­il­inn hefur verið sak­aður um að hafa talað máli þeirra sem telja hinn hvíta kyn­stofn æðri öðrum sem og haldið úti hat­ursum­ræðu gegn sam­kyn­hneigðum, gyð­ingum og fleirum. Ráðn­ingin hefur verið harð­lega gagn­rýnd af með­limum beggja flokka.

Ekki var ráðn­ing Trumps á Michael Flynn sem hern­að­ar­ráð­gjafa síður gagn­rýnd, en sá gengdi mik­il­vægu hlut­verki í hern­að­ar­í­hlutun Banda­ríkj­anna í Írak og Afganistan. Þar var hann meðal ann­ars yfir Defense Intelligence Agency og þótti hvorki vera mjög nákvæmur í störfum sínum né góður stjórn­andi. Eftir að hafa verið lát­inn fara frá Obama stjórn­inni fór hann í allskyns ráð­gjafa­verk­efni sem þykja mjög vafasöm. Hann er sér­stak­lega þekktur fyrir að hafa mjög öfga­fullar skoð­anir á múslimum og vera hlynntur öfga­fullum skoð­unum Trumps um skrán­ingu múslima í Banda­ríkj­unum.

Staða yfir­sak­sókn­ara Banda­ríkj­anna er afar mik­il­væg. Trump hefur til­nefnt Jeff Session, öld­unga­deilda­þing­mann frá Alabama í það starf. Session hefur verið við hlið Trumps í gegn um alla kosn­inga­bar­átt­una og er tal­inn hafa ráð­lagt honum að fá Mike Pence sem vara­for­seta­efni. Hann hefur líkt og margir kollegar hans í Repúblikana­flokknum verið á móti gift­ingu sam­kyn­hneigða, fóst­ur­eyð­ingum, rétt­indum barna ólög­legra inn­flytj­enda sem hafa alist upp í Banda­ríkj­unum að fá rík­is­borg­ara rétt og hefur verið sak­aður um að vera ras­isti. Hann hefur starfað í stjórn­málum í þrjá ára­tugi, mest allan tím­ann í Alabama.

Nikki Haley er nýskip­aður sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum. Þessi ráðn­ing kom fremur mikið á óvart en hún er rík­is­stjóri í Suður Karólínu og er dóttir ind­verskra inn­flytj­enda. Hún studdi Marco Rubio í for­vali repúblik­ana og var gagn­rýnin á Trump á meðan á kosn­inga­bar­átt­unni stóð. Þrátt fyrir að hafa öðl­ast ein­hverja reynslu í utan­rík­is­málum á sviði við­skipta­samn­inga er reynsla hennar á utan­rík­is­málum á borð við þau sem fara fram hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum nán­ast engin. Henni er ætlað að hafa nokkuð svip­aðar skoð­anir á utan­rík­is­málum og flokk­ur­inn hennar. Hún er þó þekkt fyrir að vera ákafur stuðn­ings­maður Ísraels og að hafa sem rík­is­stjóri hert fóst­ur­eyð­inga­lög­gjöf­ina.

Þessar ráðn­ingar og fleiri eru svo í bland við ráðn­ingar á borð við ráðn­ingu Reince Priebus sem starfs­manna­stjóra, sem hefur starfað sem stjórn­ar­maður lands­nefndar repúblikana­flokks­ins og er því einn helsti kerfis­karl flokks­ins. Hann var kjör­inn í þetta emb­ætti fyrir 5 árum síðan og var afar náinn Trump eftir að hann vann for­val flokks­ins. Priebus er tal­inn eiga að hafa það hlut­verk að brúa á milli for­set­ans og hans fólks og þing­flokks repúblikana­flokks­ins og koma þannig vilja for­set­ans í fram­kvæmd þegar þarf einnig þingið til.

Nýjar ráðn­ingar og vanga­veltur for­set­ans koma nú fram á hverjum degi. Mitt Romney fv. for­seta­fram­bjóð­andi er einn þeirra sem for­set­inn hefur rætt við of verið orð­aður við stöðu utan­rík­is­ráð­herra. Fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York borgar og einn ákafasti stuðn­ings­maður Trumps, Rudy Guiliani er einnig orð­aður við stöð­una. Á hverjum degi mætir hópur manna, flestir hvítir mið­aldra karlar, á fund Trumps sem mátar þá í lausu stöð­urnar og á meðan spá fjöl­miðlar í spilin þegar þeir liggja ekki undir reiði­lestri Trumps.

Fjölmiðlar teknir á teppið

Í vik­unni sem leið mættu útgef­endur nokk­urra helstu fjöl­miða­sam­steypna hér vestra, ásamt nokkrum af þekkt­ustu fjöl­miðla­mönnum lands­ins á fund Trumps í einn af turn­unum hans í New York. Fund­ur­inn var ,,off the record” en fljót­lega fóru að ber­ast fréttir af fund­inum og ef marka má þær las verð­andi for­seti fjöl­miðl­unum pistil­inn fyrir að vera að hans mati ósann­gjarna við sig og fram­boð sitt.

Í byrjun vik­unnar lak svo út að Trump hefði mælt sér mót við eig­anda og fjöl­mið­al­menn frá New York Times. Við heim­ili hans hafði safn­ast saman fjöldi fjöl­miðla­manna í gyllta andyr­inu í Trump­turn­inum á 5 Avenue, stein­snar frá fræga rúllu­stig­anum sem Trump rúll­aði sér niður fyrir ríf­lega ári síðan, líkt og Simpson sjón­varps­þátt­ur­inn hafði spáð fyrir, og til­kynnti um fram­boð sitt, stóðu blaða­menn­irnir á afgirtu svæði. Bak við rautt flauels­band sem hékk uppi á gylltum staurum stóðu þeir, und­ir­rituð hnippti í blaða­mann sem kyrfi­lega var merktur spænskum miðli og spurði ,,Veistu nokkuð hvar Trump er? eins og ekk­ert væri eðli­legra. Blaða­mað­ur­inn bað­aði út hönd­unum, ,,who knows where he is? - at least not the media” sagði hann úrillur. Þá var bara að hrista af sér kjána­hroll­inn og vona að kauði myndi láta sjá sig fljót­lega. Ekki á hverjum degi sem maður drepur tím­ann með því að skoða ung­barna­fata­línu Trumps­fjöl­skyld­unnar sem var einmitt til sýnis glugg­anum við hliðin á blaða­manna­hópnum.

En þá kom til­kynn­ing um að Trump hefði hætt við fund­inn. Örvingla fjöl­miðla­menn rang­hvolfdu aug­unum í andyr­inu. Blaða­menn­irnir end­ur­hlóðu Twitter ört. Fljót­lega kom þó í ljós -á Twitter, þar sem alltaf má treysta á að finna verð­andi for­seta, að hann væri kom­inn á fund með New York Times og þar fór við­talið fram fyrir framan heilan her af fjöl­miðla­mönnum blaðs­ins. For­set­inn sat við hlið Arthur Sultzberger þriðja ætt­liðs, stjórna­for­manns blaðs­ins og svar­aði spurn­ingum reynd­ustu blaða­manna blaðs­ins.

Í við­tal­inu dró Trump all­veru­lega úr stór­karla­legum yfir­lýs­ingum sínum sem höfðu fleytt honum í emb­ættið fyrir nokkrum vikum. Hann sagð­ist m.a. vera hættur við að ákæra Hillary Clinton, honum þætti ákaf­lega mik­il­vægt að skoða Par­ís­ar­sátt­mál­ann vel og hann væri opinn fyrir að breyta afstöðu sinni og svona mætti lengi áfram telja. Hann afneit­aði hópi nýnas­ista sem lýst hafa yfir stuðn­ingi við hann og verið tölu­vert í fjöl­miðlum eftir kjör hans. Mörgum þótti við­talið bera þess merki að Trump hafi líkt og áður sveigt og beygt mál­flutn­ing sinn eftir því hverjir voru áheyr­endur. Blaða­menn New York Times hafa verið ákaf­lega gagn­rýnir á mál­flutn­ing Trumps og líkt og áður hefur Trump látið þá heyra það – á Twitter.

Hagsmunaárekstur Trumps

Óljós svör Donalds Trumps í við­tal­inu við New York Times um hags­muna­tengsl sín vegna við­skipta hans ann­ars vegar og for­seta­emb­ætt­is­ins hafa vakið tölu­verða athygli. En sam­kvæmt lögum hér má for­seti ekki hafa per­sónu­lega hags­muni sem gætu haft áhrif á störf hans sem for­seti. Við­skipta­veldi Trumps verður því sam­kvæmt lögum að fara í hend­urnar á aðila sem ekki hefur vensla tengsl við Trump. Á það hefur Trump þó ekki sjálfur fall­ist á og hefur lagt til að börnin sín muni sinna við­skipt­unum á meðan hann sinnir starfi sínu sem for­seti. Trump á fyr­ir­tæki í að minnsta kosti 18 löndum fyrir utan Banda­ríkin sam­kvæmt sam­an­tekt Washington Post, þar á meðal í Kína, Sádí-Arabíu, Sam­ein­uðu fursta­dæm­unum og á Indlandi.

Aðskiln­aður hans við við­skipti sín virð­ast ekki byrja vel, því eftir kjör hans hefur komið fram hjá fjöl­miðlum að í sam­tali við for­seta Argent­ínu sem hringdi í hann til að óska honum til ham­ingju með kjör hans, hafi hann beðið for­set­ann um að liðka fyrir leyf­is­veit­ingu vegna bygg­ingu hans í land­inu. Forseti Argent­ínu hefur ekki dregið þessar fréttir til baka. Í síð­ustu viku hafði hann svo dóttur sína með sér á fund for­sæt­is­ráð­herra Japans, sem þótti afar óheppi­legt, ekki síst vegna þess að hún hefur ekki form­legt hlut­verk í stjórn hans, sem og vegna þess að hún á að taka við við­skiptum hans, sem meðal ann­ars eru í Japan. Þessi tengsl verða án efa til umræðu mikið þegar nær dregur því að hann taki form­lega við emb­ætt­inu en margir hafa bent á að erfitt verður að leysa þetta, nema þingið gefi honum sér­staka heim­ild þar sem hrein­lega er ákveðið að horft sé fram­hjá þessum hags­muna­tengslum. Aðrir telja að þingið verði að ákæra hann vegna tengsl­anna láti hann ekki af stjórn fyr­ir­tækja sinna sjálfur og setji í hendur óháðra aðila. En fátt bendir til þess að Trump ætli sér að gera það.

Ef eitt­hvað er hægt að lesa í stöð­una sem upp ier núna, virð­ist Trump vera jafn­óðum að draga mikið í land með yfir­lýs­ingar sínar sem hann lagði alla áherslu á í kosn­inga­bar­áttu sinni, svo sem að byggja múr við Mexíkó, ákæra Hillary Clinton, fara út úr NATÓ í snatri og Par­ís­ar­sátt­mál­anum – sem og að afnema Obamacare með öllu. Á sama tíma virð­ist hann velja sér liðs­menn með jafn­vel ýkt­ari og öfga­fyllri skoð­anir en sínar eigin, í bland við harð­kjarna kerf­is­fólk.

Hin stöðuga þver­sögn sem hann býður upp á í sam­tölum sínum við fjöl­miðla gegn því það sem hann hefur áður lofað kjós­endum sínum virð­ist engan enda ætla að taka.

Hvað hann sagði áður, hverju hann lof­aði og hvort það sem hann segir eigi sér stoð í raun­veru­leik­anum, sé ger­legt eða ímyndun ein, skiptir ekki máli. Þetta er Trumpland og þú gætir verið rek­inn – jafn­vel úr landi.

Sú veika von and­stæð­inga Trumps um að Rússar eða ein­hverjir aðrir hafi hakkað sig inn í kosn­inga­kerfið í þrem ríkjum þar sem Trump vann með mun meiri mun í raf­rænu kosn­ing­unum en þeim í papp­írs­formi hefur orðið til þess að farið hefur verið fram á end­ur­taln­ingu í Wisconsin ríki. Beiðnin kemur ekki frá Clinton heldur for­seta­fram­bjóð­and­anum og græn­ingj­anum Jill Stein. Jafnvel þó eitt­hvað miss­jafnt hafi komið fram er mjög ólík­legt að ógild­ing atkvæða myndi duga til að að breyta nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. En gera má ráð fyrir að fjöl­margir séu til­búnir að styðja allar leiðir til að koma í veg fyrir að Trump taki form­lega við sem for­seti enda snertir sú óvissa sem hann skapar fjölda hags­muna­afla, ekki bara íbúa lands­ins.

Það er því legið er í svoköll­uðum kjör­mönnum sem form­lega leggja fram atkvæði fyrir ríkin sín og geta tækni­lega kosið annan kandídat en meiri­hluti kjós­endur valdi í þeirra ríki. Ekkert bendir til þess að hægt verið að fá þann fjölda sem þarf til að ,,skipta um skoðun” svo Trump fái ekki form­lega afhent emb­ættið. En þó má segja að sú stað­reynd að repúblikanar hafi ekki tvo þriðju atkvæða í öld­unga­deild­inni sé það sem margir þakki fyrir nú, því þar með geta demókratar enn stöðvað mál með mál­þófi eða hótun þess að fara í mál­þóf, en það vopn hefur reynst repúblikönum dýr­mætt í for­seta­tíð Obama til að stöðva mál.

En þrátt fyrir að margir séu nú að reyna alla mögu­legar leiðir til að koma í veg fyrir að Trump verði for­seti er lík­leg­ast að sú stað­reynd verði ekki breytt. Trump er verð­andi for­seti og enn allt bendir til að því muni áfram fylgja algjör óvissa fyrir íbúa þessa lands, sem og heim­inn all­ann. Fjöl­miðlar munu áfram bíða í ofvæni eftir því að segja okkur frá því hvað Trump segir eða gerir næst, getur - eins og í góðum raun­veru­leika­þætti, eng­inn misst af næstu senu. Aðal­hlut­verkið er í mótun á raun­tíma og áhorf­end­urnir sitja allir límdir við við­tækin, því eng­inn veit hvað er framundan - nema kannski Trump sjálfur – ef marka mætti orð hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár